Leita í fréttum mbl.is

Heima er best :)

Sit hérna heima með Ólöfu Ósk og Jóni Ingva.Við sitjum hver við sína tölvuna og MammaMia-tónlist hljómar í bakgrunninum.

Einar er að vinna og Jóhannes er hjá besta vini sínum, og frænda, má ekki gleyma því!

Notalegur sunnudagur. Sólin skín úti, og og inn um gluggann, og í hjörtum okkar InLove

Ég er búin að gera klárt í mexíkanska súpu, á von á yndislegum vinkonum í hitting með við ætlum að hafa mánaðarlega. Vinkonuhópur sem ég kynntist haustið 1994 þegar ég byrjaði í hóp á Stígamótum. Ómetanlegur vinskapur skapaðist í þessum hóp og höfum við haldið sambandinu og hist gegnum árin. Get ekki sagt að við höfum hist reglulega en við hittumst t.d. alltaf þegar ég kom til Íslands meðan við bjuggum í Græsted. Fátt jafnast á við góðan vinskap og ég veit að seinniparturinn og kvöldið verður yndislegt.

Svo er ég með köku klára líka, súkkulaðikökuna góðu...slafr... 

Vitiði, ég get þakkað Stígamótum og þessum stelpum fyrir margt og mikið. Til dæmis get ég þakkað þeim að ég er á lífi í dag. Ég var svoooo nálægt því að taka mitt eigið líf þarna upp úr tvítugu. Ekki af því að mig langaði að deyja, heldur einfaldlega vegna þess að ég gat ekki lifað með endalausan sársauka og svarthol inn'í mér. Ég vissi svo sem lengi vel ekki afhverju mér leið svona, hélt bara að ég hlyti að vera að verða geðveik. En svo var ekki, og með mikilli vinnu tókst mér að ná mér að stóru leiti.
Annað sem ég get þakkað Stígamótum og stelpunum fyrir, og það er dóttir okkar, Óskin okkar. Ólöf Ósk er sannkallað kraftaverk Stígamóta, ég fer aldrei ofan af því. Áður en ég byrjaði vinnuna á Stígamótum var ég með svo óreglulegan tíðahring að kvensjúkdómalæknir var búin að tjá mér að ég myndi þurfa massíva hormónameðferð ef ég ætti að eiga möguleika á að eignast barn!! En það þurfti ekki til, Stígamót redduðu hormónunum Wink

Þá vitiði það!!!

Jæja, best að fésast aðeins og kveikja svo undir súpunni góðu...hún á víst að malla í 2 tíma...

Knús í öll ykkar hús, elskurnar mínar.

Molinn:

"Sýn þín verður ekki skýr fyrr en þú getur skoðað hjarta þitt. Sá sem skoðar það utan frá er draumóramaður, sá sem skoðar inn í það vaknar til lífsins."

- Carl Jung

 

myspace layout images

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 23.11.2008 kl. 16:11

2 identicon

Kiss kiss elsku vinkona og takk fyrir æðislegt kvöld, súpan geggjuð, kakan snilld, samveran best og svo er pistillinn þinn um okkur vinkonurnar æðislegur.  Ég þakka Guði fyrir ykkur vinkonurnar mínar - þið eruð bestar.  það er ekki sjálfgefið að 6 konur nái svona vel saman - allar sem ein - og þetta stuðningsnet okkar er ómetanlegt.  Elska ykkur!

knús - Særún

Særún (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 22:39

3 identicon

Takk elsku Sigrún fyrir kvöldið og þessa frábæru súpu (er ennþá hálf slefandi). Þessi vinátta okkar er einstök og veit ég ekki hvar ég væri stödd án hennar. Ég skal muna að láta í mér heyra úti og ef ég stend mig ekki þá skellirðu áminningapósti til mín.

 Knús og enn meira knús

Dana

Dana (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 23:59

4 identicon

Takk æðislega fyrir kvöldið, það var ótrúlegt... svo ekki sé minnst á vináttuna þessi ár:)

Þið eruð án efa þær sterkustu og fallegustu konur (að utan og innan ) sem ég hef kynnst á ævinni.

Ást og knúsur, Helga

Helga (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband