Leita í fréttum mbl.is

Daginn í dag...

Jamm, dagurinn í dag. Yndislegur dagur.

Ég er svo glöð og þakklát fyrir lífið mitt. Ég á svo yndislega fjölskyldu og er búin að eiga notalega dag í faðmi hennar. Strákarnir okkar, þessi fótboltasjúku skinn Heart Þeir fást ekki út úr húsi lengur á laugardögum.  Ég ætlaði að bjóða þeim í borgarferð...uuuuuhhh, og hvað ætti svo sem að vera skemmtileg við það?!!! Amk. sagði Jóhannes, þegar ég kom með þessa hugmynd; "Æææææji, mammmmma, ég neeeeeeeeenni ekki til Reykjavíkur".

Svo kom í ljós að Man. Utd. var að spila kl. 15 svo það var náttúrlega ekki glæta að ná þeim neitt af bæLoL

En það var líka bara í góðu. Þeir skottuðust hér um, ýmist í tölvunni, að horfa á boltann eða að spila sjálfir. Á meðan kláraði ég jólagjafirnar handa öfum og ömmum og einhverjum fleirum og pakkaði inn. Svo nú á ég bara örfáar gjafir eftir og er alsæl með það. Allt sem á að senda út á land er tilbúið! Nema reyndar jólakortin en þau verða klár fljótlega. Er eiginlega búin að ljúka við hönnunina á þeim.

Jæja, svo í kvöld þá tók meiri gleði og hamingja við. Ég er svo lánsöm að *eiga* marga yndislega vini. Í kvöld var ég í stelpugeymi hjá einni af þessum yndislegu konum sem ég hef fengið að kynnast. Reyndar var ég ekki að nenna...þeir sem þekkja mig vita hvað ég á erfitt að koma mér út úr húsi til að fara í eitthvað tjútt og/eða tvist.... Neibb, ég vil helst bara vera heima og kúldrast með fólkinu mínu. En ég var búi að segja ´já, takk´og þá náttúrlega mætir maður! Reyndar þurfti Einar nánast að henda mér út...en ég fór og ég átti alveg yyyyyyndislegt kvöld. Stórgóður matur og æðisleg - sykurlaus - kaka og fráááábær félagsskapur! 

Hvers meira getur kona óskað sér? 

---

Molinn:

"Reyndu ekki að fá fólk til að elska þig, einbeittu þér heldur að því að verða sá maður sem fólk getur elskað."

Ég ELSKA þennan mola.

Nighty night, darlings.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Svvvvvvvvoooo flottur moli. Knús á þig essgan og vona að sunnudagurinn verði ljúfur. 

JEG, 16.11.2008 kl. 00:36

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er snilldarmoli.  Gaman að lesa hvað þú hefur það gott elskan, þú ert líka svo yndisleg manneskja að þú átt þetta allt skilið. Kærleikskveðja til fjölskyldunnar

Ásdís Sigurðardóttir, 16.11.2008 kl. 13:57

3 identicon

já mikið sannleikskorn í þessum mola :o)

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 15:58

4 Smámynd: Renata

awwww, það er góður gullomoli. Gott að vita að það gengur allt vel hjá þér og þínum

eigðu góða vinnuvíku :)

Renata, 17.11.2008 kl. 10:39

5 Smámynd: Tanni Ofurbloggari

Hæhæ

Tanni Ofurbloggari, 17.11.2008 kl. 22:35

6 Smámynd: Dóra

Kærleiksknús til þín  frá Esbjerg Dóra

Dóra, 18.11.2008 kl. 08:51

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hvar finn ég linkinn á handavinnusíðuna þína skvísa?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.11.2008 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband