Leita í fréttum mbl.is

Sultukrukkan og kaffið...

Þegar hlutirnir í lífi þínu virka næstum óyfirstíganlegir; þegar 24 tímar í sólarhringnum er ekki nóg, mundu þá eftir sultukrukkunni og kafiinu...

Prófessor nokkur stóð fyrir framan heimspekinemendur sína, með nokkra hluti fyrir framan sig. Þegar tíminn byrjaði, tók hann, án þess að segja orð, stóra, tóma sultukrukku fram og fyllti hana með golfkúlum. Þegar hann var búinn, spurði hann nemendurnar hvort glasið væri fullt og þeir voru sammála um að svo væri.
 
Þá tók prófessorinn kassa með smásteinum fram og hellti þeim í glasið. Hann hristi glasið létt, svo smásteinarnir smugu milli golfkúlanna. Svo spurði hann nemendur sína hvort glasið væri fullt og þeir voru sammála um að glasið væri fullt.
 
Nú tók prófessorinn fram kassa af sandi og byrjaði að hella í glasið. Sandurinn fyrllti auðvitað restina af holrúmunum í krukkunni. Aftur spurði prófessorinn nemendur sína hvort krukkan væri full. Nenendurnir svöruðu einum rómi; ”já” og þá útbjó prófessorinn tvo bolla af kaffi og hellti báðum niður í krukkuna, og holrúmið milli sandkornanna fylltist.
 
Nemendurnir hlógu...
 
"Jæja" sagði prófessorinn, þegar hláturinn hljóðnaði. "Ef þið nú ímyndið ykkur, að þessi krukka tákni líf ykkar. Golfkúlurnar eru mikilvægu hlutirnir  - fjölskyldan ykkar, kærustur/kærastar, börn, heilsan, vinir, uppáhaldsáhugamál- þeir hlutir sem myndu fullkomna líf ykkar þó allt annað hyrfi. Smásteinarnr eru aðrir hlutir sem hafa þýng var tilbage, stadig ville gøre jeres liv fuldendt. Ðingu, svo sem vinna, hús, bíll og svo framvegis. Sandurinn er allir aðrir smálhlutir".
 
Prófessorinn hélt áfram: "Ef þið setjið sandinn fyrst í krukkuna þá er hvorki pláss fyrir smásteinana né golfkúlurnar. Það sama gildir um lífið. Ef þið notið alla ykkar orku og allan ykkar tíma í smávægilegu hlutina þá verður aldrei pláss fyrir það sem virkilega skiptir ykkur máli. Verið vakandi fyrir þeim hlutum sem skipta hamingju ykkar máli. Leikið við börnin ykkar. Passið upp á heilsuna. Bjóðið makanum út að borða. Farið aukahring á golfvellinum. Það mun alltaf vera tími til að þrífa húsið og hreinsa niðurföllin. Sinnið ”golfkúlunum” fyrst – því sem skiptir mestu máli. Komið forgangsröðinni í lag – restin er bara sandur.


"Einn af nemendunum rétti upp hendina og spurði hvað kaffið táknaði. Prófessorinn brosti: "Ég er ánægður með að þú spyrjir. Það er bara til að sýna, að það er sama hvað við höldum að við höfum mikið að gera, það er alltaf pláss fyrir kaffibolla með vini".

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 14.11.2008 kl. 13:28

2 Smámynd: JEG

Nákvæmlega það er alltaf tími fyrir kaffi......

Kveðja úr Hrútósveitó. 

JEG, 14.11.2008 kl. 13:37

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 13:32

4 Smámynd: Tína

Með betri sögum sem ég hef heyrt. Takk fyrir þetta dúllan mín.

Tína, 15.11.2008 kl. 14:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband