Leita í fréttum mbl.is

Lífið er yndislegt...

...lalalala...

Jamm, er lífið bara ekki dásamlegt? Ég er búin að eyða stærstum hluta dagsins með mínum heittelskaða og það er bara ljúúúftHeart Hann er svo beeeestur!  Lánsöm ég að vera gift bestasta vininum mínumInLove

--

Jón Ingvi krútt lenti í smá leiðindum í gær, hjólinu hans var stolið fyrir utan skólann Frown en gleðin var stór í dag þegar hjólið kom í leitirnar. Einhver (óprúttinn) hafði tekið það að láni en greinilega skilað því, því það fannst á skólalóðinni, þeirri sömu og var margskoðuð í gær! Svo nú er búið að kaupa nýjan lás, svo það er bara lukkan.

--

Ég brá mér í borgina, með Einari, og keypti mér m.a. efni í 3 pils! Hlakka til að ráðast í það verkefni! Ódýr pils...keypti efni og rennilása fyrir um 4000 kr!!!

Jæja, best að klára að ganga frá...var sko að versla... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Æ það er svo gott þegar að manni finnst lífið svona yndislegt og þegar að maður finnur það hvað maður er ástfangin

En við lentum líka í því í sumar að hjólinu hans Stefán var stolið úr bílastæðinu hjá okkur eina nóttina. Það fannst í skurði hjá tjaldstæðinu eftir mikla leit  ótrúlegt að fólk kunni við svona lagað.

En haltu áfram að vera glöð og ástfangin!

kveðja Þóra. 

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 27.8.2008 kl. 20:49

2 Smámynd: Dabban

hæ frænka... ein spurning.. döðlutertan sem er uppskrift af hér til hliðar... er þetta sigþrúðarterta?

sýnist það svona í fljótu bragði miðað við uppskriftina.. elska þá köku. er að pæla í að prufa hana svona með agave sírópinu í staðinn.

 ertu að nota þá semsagt 1.5 bolla af döðlum í hana?

Dabban, 27.8.2008 kl. 20:57

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Þóra, jamm, ég ætla að halda áfram á sömu braut
Mér finnst fáránlegt að hjóli sé stolið í skólanum en enn fáránlegra að þeim sé stolið við húsið hjá manni, hef einmitt verið að heyra svona sögur hérna...hlaupahjóli stolið við húsið, hjóli stolið...barnastóllinn fannst en aldrei hjólið...líklega farið höfnina...sem er víst fullt af hjólum...!!!

--

Dabba, já þetta er döðlutertan hennar Sigþrúðar. Ég nota 1½ bolla af döðlum, geri mauk úr ½ og brytja rest Nammi namm...núna langar mig líka...ooooohhh, ég er svona eins og pabbi...gæti borðað sætabrauð í morgunmat án þess að blikna...

SigrúnSveitó, 28.8.2008 kl. 07:30

4 Smámynd: Tína

Mikið var nú gott að hjólið skildi koma í leitirnar. En svo ætla ég að gerast frek og heimta að fá að sjá myndir af pilsunum sem þú ætlar að sauma . Hef oft óskað þess að ég kynni að sauma.

Knús á þig duglega og yndislega kona.

Tína, 28.8.2008 kl. 08:08

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Tina, þú getur t.d. skoðað pilsin hér (þau eru neðst)

SigrúnSveitó, 28.8.2008 kl. 10:04

6 Smámynd: Tína

Hriiiiikalega er peysan hans Alla flott!!!! Og ekkert lítið sem þú ert flínk krútta. Anna systir var einmitt að biðja mig um að prjóna á sig peysu (svona eins og er í myndbandinu Last Christmas með WHAM) <-- hennar orð. En hún á s.s að vera síð kaðlapeysa (fjöldi kaðla aukaatriði) offwhite á litinn helst, stroffinn á ermunum eiga að vera í lengri kantinum og svo á að vera hjúges kragi sem hún getur sökkt andlitinu í. Ef þú átt uppskrift af svoleiðis peysu elskan mín, þá máttu gjarnan láta mig vita.

Knús á þig elskuleg.

Tína, 28.8.2008 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband