Leita í fréttum mbl.is

Afmælið búið

Og við þökkum fyrir okkar Kissing

Heimilisfaðirinn í sykursjokki...og strákarnir farnir út í fótbolta.

Við vorum í vandræðum með að finna gjöf handa Jóhannesi. Við vorum ákveðin í að hann fengi EKKI leikföng, þar sem þeir bræður eiga helling af slíku...sem hefur ekki verið snert síðan við fluttum í húsið! Fyrir utan þegar við höfum verið með gesti...og þá hafa gestirnir náð í leikföngin sjálfir...

Dagurinn í dag var velheppnaður í alla staði.  Mikil gleði í gangi.

Hér er svo matseðillinn (öllu heldur kökuseðillinn...):

- Grétu-brauðréttur - sem er by the way alveg svaka góður og ferskur.
- Einn heitfengur (heitur brauðréttur með m.a. pepperoni og beikoni)
- Marens með karamellukremi
- Brún með hvítu (brúnterta með frosting)
- Afmælisdöðluterta
- Glútenlaus bananamuffens
- Hrískökur
- "Chokoladebrud"
- tekex og ostar
- skúffukaka hlaðin með sælgæti
- Súkkulaðismákökur (þið vitið...pissandi fyrir framan Olís...)

Jamm...svo þið kannski skiljið að Einar er í sykursjokki...reyndar verð ég að verja hann aðeins og segja að hann er ægilega þreyttur, búinn að vinna á nóttinna alla vikuna, og byrjaði bæði og endaði á stuttum skiptum.  

Jæja...best að gæða mér á síðustu sneiðinni af afmælisdöðlutertunni...læt hina um sykurdrullið...!!

LaugardagsknúsHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Til hamingju með daginn !

Já maður verður alveg sykraður uppfyrir haus þegar svona afmæli eru í gangi sko.  En þá er það leyfilegt líka.

Hér verður afmæli næst í sept svo ég get farið að setja mig í gírinn.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 17.8.2008 kl. 00:28

2 identicon

Gott að allt heppnaðist vel er verra að kallinn skuli vera í sykursjokki hann hefur greinilega étið fyrir sig og Sindra ;)

jóna björg (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 08:43

3 Smámynd: Tína

Shit (pardon my french) hvað ég hefði verið til í að snerta aðeins á þessu borði hjá ykkur!!!!! Ég gjörsamlega steingleymi alla mannasiði þegar ég sé brauðrétti og tala ekki um súkkulaðikökur .

Knús á þig yndislegust og takk fyrir kvittið. Alltaf jafn ljúft að sjá fótspor þín á síðunni minni.

Tína, 17.8.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband