20.6.2008 | 20:00
Er ekki tími til kominn...
...að blogga?!!!
Vá, skrítið að blogga svona lítið eftir að hafa verið nánast háð því ekki alls fyrir löngu!
Eeeeen, það er líka allt í lagi, veit sko að þið getið lifað án mín og bloggsins...þó lífið væri eflaust litlausara hehe...
--
Best að gefa ykkur smá rapport um liðna viku.
17. júní var ég að vinna til kl. 16...og slapp þar með við að fara í bæjinn...ég er ekki alveg gefin fyrir svona bæjarlæti... En krakkarnir fóru og skemmtu sér vel. Kosturinn við að eiga svona stór börn
Um kvöldið fór ég svo í Akraneshöllina með strákunum og þar var dansleikur. Fjölskylduskemmtun. Verð að segja að það var skemmtilegra í fyrra! Nema reyndar fyrir þær sakir að nú hitti ég fólk sem ég þekki...þekkti varla hræðu hér á sama tíma í fyrra!!
Við reyndar urðum fyrir vonbrigðum þar sem ekki komu allir fram sem auglýstir voru...en það leið fljótt hjá.
---
Svo hefur lífið verið vinna, í vinnunni og heima fyrir. Við erum langt komin með sjónvarpsloftið og er ég að vona að við náum að hafa það nokkuð klárt á þriðjudag þegar gestirnir okkar koma. (Þau ætluðu reyndar að koma í dag en urðu að fresta för af óviðráðanlegum orsökum.)
Jón Ingvi byrjaði fótboltaferilinn í fyrradag. Ákvað að prófa fótboltaæfingu...og við vorum ákveðin í að gefa honum amk nokkrar æfingar áður en verslaðar yrðu græjur...Það var okkar plan...og okkar plan er ekki alltaf að gera sig...því hann fékk að vita að það væri mót um helgina og hann gæti verið með! Sem hann auðvitað vildi og nú er hann sem sagt farinn að heiman fram á sunnudagskvöld! Mótið er reyndar hérna á Akranesi en allir hópar gista í skólanum og eru í fæði þar.
Og drengurinn skoraði mark í síðasta leiknum í dag, og var að vonum ALsæll!
---
Nú eru svo bara 4 vaktir eftir fram að sumarfríi hjá mér; kvöldvakt á þriðjudag og svo helgin næsta! Svo er sko sommerholiday!!!
Nú er sko bara rólegheit í kvöld...að mestu...kannski við spörslum aðeins "þarna uppi" og kannski smá kitterí...svo get ég farið að pússa...og fljótlega að grunna...þá er þetta allt að koma og svei mér ef við glápum ekki bara og gúffum eitthvað smá......halló...ég sagði SMÁ!!!
Að lokum ætla ég að deila með ykkur tveimur myndum...af mér sjálfri, önnur tekin jólin 1984...ef ég man rétt...svona út frá hári og peysu...hin er eldri, ætli ég sé ekki ca. 10 ára?!!!
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 178744
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jiiii frábærar myndir......
Hrönn Sigurðardóttir, 20.6.2008 kl. 20:03
gúffa....hmmmmm..sykurlaust sælgæti þá eða..
styttist í að við komum og ég hlakka ekkert sérstaklega til, líður vel í danaveldi þessa dagana..en svona er þetta oft með mig..svo þegar ég kem til íslands þá líður mér vel þar..
jóna björg (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 21:09
Já, Hrönn...algerlega frábærar myndir
Jóna, sælgætislaust hjá mér, eða sko heimatilbúið kannski, og svo ostar og kex. Hjá Einari er þetta nóakropp og lakkrís og eflaust líka ostar og kex
Já, þetta er mjög mikið þú, þegar þú kemur hingað þá viltu ekki út aftur... Hlakka til að sjá ykkur...og sýna ykkur húsið
SigrúnSveitó, 20.6.2008 kl. 21:23
Já sumarið er tíminn ......sem ekki er svo mikill tími vegna þess að meður er að njóta þessa stutta surmars sem hér er.
Kveðja og knús úr sveitinni.
JEG, 20.6.2008 kl. 21:56
Er þetta the one and only Spori??? ;)
ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 23:08
hmmm MYNDIR KANNSKI!!!!!!!!!!!!!!
Tanni Ofurbloggari, 21.6.2008 kl. 08:20
....uuuuhhh, ertu ekki alveg að koma og taka þetta út???? ...ok, tek myndir í dag...lofa, lofa!!!
Raggý, ég veit ekki alveg, held kannski ekki að þetta sé Spori, finnst eitthvað ekki-sporalegt við hann...en samt...verð að grennslast fyrir um þetta mál...Lilja veit það örugglega. Ég er t.d. ekki alveg að átta mig á hvar myndin er tekin...kannski í Grænanesi...en veit ekki...
SigrúnSveitó, 21.6.2008 kl. 08:24
Frábært hjá honum Jóni Ingva! Alveg æðislegar myndir af þér Sigrún mín
Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 21.6.2008 kl. 10:46
Ok, ég fékk snretu af bráðkveddu :) hélt þú værir fallinn.
jóna björg (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 17:27
Neibb, Jóna, ekki fallin, 1 ár, 2 mánuðir og einhverjir dagar án sykurs og verð vonandi sykurlaus áfram! Gott þú fékkst bara SNERT af bráðkveddu!
SigrúnSveitó, 21.6.2008 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.