Leita í fréttum mbl.is

Stundum...

...tékka ég mailinn minn til að athuga hvort einhver hafi kommentað á blogginu...og stundum hefur enginn kommentað neitt...en þá verð ég bara að skrifa eitthvað LoL Mér finnst svo gaman nefninlega að fá komment.

Get svo sem ósköp fátt sagt ykkur í dag.  Fór reyndar að æfa í morgun með henni Grétu minni, og svo kom hún með mér heim í kaffi.  Var sko ekki búin að koma síðan við fluttum.  Það var alveg glimrandi gaman, gott kaffi og gott spjall.  Skemmtileg hún Gréta.  Hún er að fara í sumarfrí svo ég vinn ekki með henni aftur fyrr en einhverntímann í ÁGÚST!!!  En þá er bara um að gera að vera duglegar í ræktinni svo við hittumst!!! Og hana nú!!! (Eins gott að hún lesi bloggið mitt!!!!Tounge)

Ragnhildur frænka sendi mér sms og bauð Einari (og mér ef ég vildi...) tvo boðsmiða á landsleikinn í kvöld.  Ég varð steinhissa...vissi ekki af neinum landsleik...en Einar varð bæði glaður og leiður...hann varð glaður yfir miðunum...en leiður yfir að komast ekki...er að vinna til 22 Frown En tengdapabbi græddi og varð mjög glaður.  Takk Raggý og Inga.
Verst að þið skuluð ekki geta notað miðana sjálfar og Inga; þú verður bara að gera svo vel og láta Raggý um garðvinnuna og hlúa vel að þér og litlu bumbustelpunni ykkar!! (Skipað gæti ég væri mér hlýtt...Cool)

myspace layout


Ég bjó til múslínammið áðan...Jóhannes hjálpaði mér að búa til kúlur...og það varð mikil rýrnun...hann borðaði svo vel af þeim Grin algert nammi gott!!!

Jamm...this is my lifeHeart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Úúú.... ég kíki bara til þín í konfekt hehe.... er ekki nema ca 1 klst og 20 mín til þín jammm.... ef þú ert á Skaganaum sko.

Maður þurfti sko að hafa tímasetninguna í lagi þegar maður var bommm...

Sólarknús og sælukrekist til þin góða í blíðunni. Kveðja úr sveitinni.

JEG, 28.5.2008 kl. 15:55

2 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Ég skal sko kommenta hjá þér skvís. Mér finnst einmitt líka svo gaman þegar að einhver kvittar fyrir sig.
Vonandi er svona gott veður hjá ykkur eins og okkur.
Knús og klemm frá okkur.

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 28.5.2008 kl. 17:34

3 identicon

Mín var ánægjan .. verst að þeir feðgar gátu ekki farið saman á leikinn :)   Því miður verðum við að láta okkur nægja að horfa í sjónvarpinu en annars er frúin að hressast.

ps.  það er e-ð með þessa kommenta-fíkn sem fylgir því að halda úti bloggi :D

 

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 19:30

4 Smámynd: Eyrún Inga Þórólfsdóttir

Hér með kvittun fyrir innlit, múslinammið litur spennandi út!

Eyrún

Eyrún Inga Þórólfsdóttir, 28.5.2008 kl. 20:44

5 Smámynd: Vigdís Silja Þórisdóttir

Elsku vinkona ! Vildi nú bara segja til hamingju með að vera flutt inn í nýja húsið þitt  og aldeilis hvað þú ert orðin svakafín um hárið, hvað var það nú meira ? Jú nammið þú ert alltaf svooo dugleg ef það eru ekki handarbeti dá bakar du eller pysslar med godis . sjáumst svo bara í eldhúsinu kram & puss                                                   kveðja hvíta konan í eldhúsinu

Vigdís Silja Þórisdóttir, 28.5.2008 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband