Leita í fréttum mbl.is

Og vitiði hvað?!!!

Ég ætla að smella mér í klippingu! Er búin að melta þetta með hárið núna í tvo mánuði eða svo, fór í klippingu á Nobbó um páskana og fékk æðislega klippingu, sem nú er úr sér vaxin.  Núna er ég Þjóðhátið 1993 ákveðin; hárið fær að FJÚKA!  Ekki samt eins mikið og ég átti til hérna in ðí óld deys! Svo mamma þarf ekkert að örvænta...Wink

Annars er lítið að frétta, get þó sagt ykkur að eftir sumarfrí - eða frá 1. sept. - þá verð ég að vinna 4. hverju helgi í stað 3. hverrar! Alger lúxus, I have to say!!! 

Núna er bara sæla og sumar framundan. 1½ mánuður fram að sumarfríi hjá mér og þá verð ég í fríi í rúmar 5 vikur!!! Það verður bara nice.  Ég og drengirnir skellum okkur væntanlega til Græsted, þar sem á að styrkja vinarböndin við dönsku vinina. Strákarnir hlakka mikið til og ætlar Jón Ingvi m.a. að vera amk. 5 daga hjá Camillu, vinkonu sinni. Ég og Jóhannes munum halda til hjá stúlkunni hans í Danmörku, henni Idu, og hennar fjölskyldu. En við Tinna, mamma Idu, erum góðar vinkonur.

Svo verður Neistaflug væntanlega tekið með trompi eins og undanfarin ár. Bara gaman.

Jamm...en nú verð ég víst að þvo á mér hárið... 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki tilvalið að leyfa Maríu að æfa sig? Þig vantar klippingu og henni veitir ekkert af æfingunni - þið græðið báðar:)

Jóhanna (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 16:15

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Of seint...fór í klippingu í dag. Reyndar hvarflaði þetta að mér, en ætli hún sé nokkuð búin að fá sér skæri...held að eldhússkærin mín bíti varla nógu vel...

Annars klippti Lilja mig oft í den, og var þá oftar en ekki notað rakvélablað úr einnota rakvél til að ná rétta "tötsinu"!!!

SigrúnSveitó, 19.5.2008 kl. 17:15

3 identicon

Haha, dásamlega krúttleg mynd af þér 

eva ólafs~ (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 18:43

4 Smámynd: Renata

í alvöru er þetta mynd af þér?

ég elska nýjungar en myndi aldrei aldrei þora svona

Renata, 19.5.2008 kl. 19:16

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

frábær klipping þarna.

já ég tel líka niður í sumarfrí !!

Bless í nóttina

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 19:29

6 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

Steina á afmæli á morgun (þriðjudag) fædd 20. 05. 1960. Láttu það ganga.

Gunni Palli kokkur.

Gunnar Páll Gunnarsson, 19.5.2008 kl. 20:58

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mögnuð mynd af þér í old days.  Frábært hvað þú ert búin að plana fyrir sumarfríið.  Hafðu það gott Sigrún mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 22:07

8 Smámynd: Linda litla

Mikið skil ég það að þú teljir niður í sumarfríiið.

Myndin= GEGGJUÐ

Linda litla, 20.5.2008 kl. 08:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband