Leita í fréttum mbl.is

vaktavinna

Það má segja að það hafi verið vaktaskipti á heimilinu, í orðsins fyllstu merkingu, undanafarinn sólarhring og rúmlega það.  Einar fór á morgunvakt í gær, ég á kvöldvakt og dreif mig svo heim því Einar var að fara á næturvakt, ég fór svo á morgunvakt í dag...En í kvöld erum við bæði heima.  Og Einar er kominn í helgarfrí, en ég fer að vinna á morgun.  Mikið að gera á stóru heimili.  En það er svo sem ekkert nýtt.  Og alls ekki nýtt að Einar vinni mikið til að vinna fyrir okkur hér.  Vonandi breytist það þegar ég klára að læra...

Nú er að nálgast afmæli prinsessunnar á bænum.  Jú, Ólöf Ósk verður 11 ára á laugardaginn!!  Á morgun er veislan fyrir bekkjarfélagana, síðar fyrir fjölskylduna þar sem við erum buzy fólk...  Á laugardaginn brunum við svo í höfuðborgina og hittum múttuna mína sem er að koma annað kvöld.  Hún ætlar að skella sér með okkur í bæjarferð.  Ólöf Ósk ætlar að eyða peningum...ef henni tekst ekki að gera það á morgun...hana langar mest í karokitæki...kannski er þess vegna best að byrja í hljómtækjaverslun bæjarins til að leita nú ekki langt yfir skammt!!!  

Á laugardaginn förum við svo í bæjinn, hittum mömmu, förum til tengdamömmu með börnin og síðan liggur leiðin á Hótel Sögu.  Þar er árshátíð og við verðum á hótelinu um nóttina Ullandi 

Nenni ekki að segja meira þá hef ég ekkert að segja marga næstu daga. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband