Leita í fréttum mbl.is

Ég er montin...

...eða það segir dóttir mín LoL

Ásæðan? Þið fáið hana hér:

Í gær sagði ein gömul kona, við lækninn, að hún hafi nú verið svo lánsöm að hafa ekki fengið höfuðverk síðan hún var 26 ára (hún er 92ja ára).  Ég gat ekki orða bundist og sagði; "Ég vildi að ég væri svona lánsöm".  Þá hnippti doktorinn í mig og sagði; "Þú ert nú ekki orðin 26!"

"hehe, nei það eru 6 ár í það", sagði ég og hló.

Og þar sem elskulegri dóttir minni finnst ég alveg afspyrnu GÖMUL þá finnst henni þetta EKKERT fyndið, og finnst ég all-svakalega montin að segja frá þessu!! LoL 

Þetta er náttúrlega bara fyndið!!  

Jóhannesi finnst ég alls ekki gömul og honum finnst ég ÆÐISLEG.  "Hvernig geturðu tekið mark á 4½ árs gömlum strák?", gall í gelgjunni rétt í þessu...Grin 

Hér er eitt fyrir þig, Lilja...!!   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, bara rétt tvítug !! skvísa sem þú ert   Girly Girl  takk fyrir lagið, ég hlustaði líka.  Knús inn í helgina.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.4.2008 kl. 17:39

2 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 17:42

3 identicon

Þú átt svo sannarlega allan rétt á því að vera montin mín kæra. Eins stórkostleg og þú ert.

Takk fyrir lagið - það yljaði mér um hjartarætur.

Knús, Lilja

Lilja Guðný Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 20:11

4 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

knús

Bjarney Hallgrímsdóttir, 4.4.2008 kl. 21:38

5 Smámynd: Úrsúla Manda

Jeminn eini!! Þetta lag hef ég ekki heyrt í MÖRG ÁR!! Við Hrafnhildur Hólmgeirs héldum mikið upp á Poul Young þegar við vorum litlar... urðum fyrir miklum áhrifum frá Báru og Sigrúnu á þessum tíma  öpuðum allt upp eftir þeim! Héldum meðal annars upp á Boy George! Skemmtilegast var þegar þær systur fóru úr húsi, þá laumuðumst við niður í herbergið þeirra og beint í fataskápana, það var jú margt skrautlegt sem við drógum út úr þeim  Bara gaman að rifja svona upp!

Úrsúla Manda , 4.4.2008 kl. 22:20

6 Smámynd: Hugarfluga

Ó mæ god, ég hefði hringt í Reykjavík síðdegis og sagt öllum frá!!! Undir töttögu og sex?? Þú mátt sko alveg vera montin! 

Hugarfluga, 5.4.2008 kl. 18:18

7 identicon

Flott lag. Lagið eldist betur en myndbandið. Þetta er eitt af mínum uppáhaldslögum

tumma (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband