Leita í fréttum mbl.is

ekki plast sem var sökudólgur...

Ég ætla að taka aftur upp þann sið sem ég hafði fyrir einhverju síðan að koma með gullkorn dagsins hér á blogginu.  Finnst það svo notalegt.  Svo í dag er fyrsti dagurinn.

---o---

Sá sem særir samvisku sína, veitir sjálfur sér versta sárið.

---o---

Og svo að málefni dagsins...eða gærdagsins.  Einar uppgötvaði í gærkvöldi að það var sprungin peran í ljósinu yfir vaskinu á baðinu...hann kom með hana og sýndi mér stórt GAT á henni og spurði hvort þetta gat myndi passa fyrir "plaststykkið" sem ég fann í baðinu.  Ég gat ekki betur séð en að lögunin passaði.  Sennilega hafa strákarnir sprautað vatni upp á ljósið (þeir voru að leika með litlar sprautur) og peran sprungið í tætlur og þeytt broti í baðið.  Þegar ég sýndi Jóni Ingva peruna í morgun þá sagði hann; "þess vegna hefur komið þessi hvellur þegar við vorum í baði"!!  Skýringin komin og mér er létt!!!  

Litli sjúllinn svaf hjá múttunni sinni í nótt.  Hann svaf ekkert of vel, en það var meira út af hósta og kvefi en fætinum litla.  Í gærkvöldi var hann draghaltur og aumur, en í morgun var hann ekki lengur aumur í fætinum og þá fer hann strax að hoppa og skoppa.  Það eru engar ýkjur þegar við segjum að hann kunni ekki að labba, því hann hleypur allt sem hann þarf að fara.  Áðan minnti ég hann á að labba, þá spurði hann; "Má ég labba hratt?"!!!  Yndislegur fjörkálfur, það verður ekki annað sagt.

Jæja, best að skella mér í smá lestur og lærdóm á meðan sjúllinn minn litli horfir á íþróttaálfinn... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það gleður mig að það var ekki plastið því að ég man eftir frasa sem hljóðar svona: plastic is fantastic. Það voru myndlistarmenn sem komu með hann til að hrufla við löngu staðnaðri hippamenningu. Heyr heyr!

Valdís (IP-tala skráð) 24.10.2006 kl. 08:35

2 identicon

hohoho... ;)

ég sjálf í vinnunni (IP-tala skráð) 24.10.2006 kl. 11:04

3 identicon

Sæl Sigrún. Passaðu að láta Siggu ekki þræla þér alveg út. Maður veit nú hvernig hún getur verið :-)

kv, bryndís.

Bryndís (IP-tala skráð) 24.10.2006 kl. 11:17

4 identicon

hehe, ég er svo sjaldan með henni á vakt ;)

ég sjálf, ennþá í vinnunni (IP-tala skráð) 24.10.2006 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband