Leita í fréttum mbl.is

Sunnudagsmorgunn á Slysó

Jón Ingvi byrjaði daginn snemma í dag.  Jóhannes vaknaði grátandi kl 5.27 og Jón Ingvi vaknaði...og hann sofnaði ekki aftur eins og við hin.  Hann hékk inni í rúmi hjá okkur til kl 7.00 þá gat hann ekki meir og fór inn til sín að horfa á barnatímann á DR1.  Guði sé lof fyrir tímamismuninn...sem styttist um næstu helgi...

Um 8 leitið gat hann ekki hamið hungur sitt lengur og ég fór fram og fékk mér morgunmat, honum til samlætis.  Fljótlega bættist fjörkálfurinn okkar í hópinn.  Þegar ég svo skömmu síðar skellti mér í bað kom Jóhannes með, svo bættist Jón Ingvi í hópinn og ég forðaði mér úr þrengslunum.  Þeir bræður dunduðu sér lengi vel með litlar sprautur.  Svo allt í einu fór Jóhannes að gráta og sagðist hafa meitt sig.  Ég spurði hann hvort hann vildi þá ekki koma upp úr baðinu sem hann vildi.  Ég tók hann upp úr og það FOSSAÐI blóð úr ristinni á honum!!!  Hann hafði skorið sig illilega, á einhverju sem ég gat ekki ímyndað mér hvað var. 

Við brunuðum niður á slysó og hittum þar dr. Harald og hann saumaði hvorki meira né minna en 5 spor í fótinn á litla íþróttaálfinum okkar!!!  Jóhannes stóð sig eins og hetja, gretti sig og fékk smá tár í augun þegar hann fékk deyfinguna og sagði; "Ái, þetta er voooont".  Svo var það búið, fóturinn sofnaður og Haraldur saumaði 5 spor í og ég söng "Lille frække Frederik" á meðan.

Íþróttaálfurinn okkar fékk að velja sér verðlaun, enda átti hann það sannarlega skilið.  Valdi sér skrítinn bolta.  Svo fékk hann ís líka.  Núna situr hann, já SITUR, inni í herbergi og horfir á íþróttaálfinn.  Það verður fróðlegt að sjá hvort hann geti sleppt því að skoppa með...

Þegar heim kom fann ég reyndar sökudóginn, eitthvert plaststykki sem ég hef ekki hugmynd um hvaðan kom.  

Jæja, ætla að hjálpa Jóni Ingva að læra. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Dugnaðarstrákur hann Jóhannes. Gaman að fá ykkur í heimsókn áðan í himnaríki. Mér fannst reyndar blæða ansi mikið úr fætinum þrátt fyrir saumaskap læknisins! Vonandi er það hætt núna eftir nýja plásturinn frá mér. Sjáumst mjög fljótlega.

Gurrí (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 16:44

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Hæ, það blæðir ennþá smá. Hann fékk stíl og er farinn að sofa, þessi elska. Er búinn að haltra seinnipartinn. Ég hringi upp á sjúkrahús á morgun ef mér finnst hann slæmur...

Kv.

SigrúnSveitó, 22.10.2006 kl. 19:50

3 identicon

Æjjj snúlli litli hvaða óhapp var nú þetta. Vona að hann verði fljótur að ná sér og láti nú aðra fjölskyldumeðlimi dekra við sig ;c) Knús til litlu hetjunnar frá okkur hér á Sel.

Hilsen pilsen Bryndís

Bryndís Ósk (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband