25.12.2007 | 13:01
Jóladagur!
Já, gleðilegan jóladag, alles!!
Við byrjuðum jóladag eins og við erum vön; sváfum lengi og fengum okkur svo kalda afganga í matinn. Svona morgun/hádegismat kl 12! Strákunum þótti þetta frekar skrítið og kusu frekar morgunkorn og ristað brauð!! En Ólöf Ósk er orðin vön svo hún naut þess í botn að fá jólamat í matinn aftur!
Í dag er pabbi svo væntanlegur og ætlum við að gæða okkur á taðreyktu kjöti af veturgömlu í kvella! Slafr...
Jólapakkaflóðið...
Það var mikil spenna í gangi, sérstaklega hjá hinum rólega og yfirvegaða Jóni Ingva. Ég held að hann hefði bara stungið sér á kaf í hrúguna hefði hann fengið að ráða!!!
Jóhannes fékk m.a. blýant og stílabók og hann hefði í sjálfu sér ekki þurft meira! Það var algerlega jólagjöfin í ár hjá honum. Hann stóð og teiknaði og skrifaði og hafði varla tíma til að opna fleiri gjafir. Hann reyndar varð líka gífurlega glaður þegar hann opnaði pakka sem innihélt kuldagalla...íþróttaálfs...! Sagði með mikla gleði í röddinni; "Þetta vantaði mig einmitt"! (Hann átti ekki heilgalla fyrir, bara úlpu og snjóbuxur!)
Jón Ingvi var mjög ánægður með allt sem hann fékk, mjúkt sem hart. Ekkert eitt sem sló í gegn hjá honum, hann var bara alsæll. Og ánægður þegar pakkarnir voru búnir og hann gat farið að leika sér.
Ólöf Ósk var bara alsæl. Fékk það sem hún óskaði sér; föt, náttföt og bækur!! Hún er orðin mjög róleg yfir jólunum, þó hún hlakki til og sé glöð að þá er ekki þessi læti og æsingur lengur. Bara rólegheit...og nettur pirringur yfir æsingnum í Jóni Ingva...
Ég er sjálf mjög ánægð og fékk frábærar gjafir. M.a. Tempur-inniskó frá mínum heittelskaða! Svo nú verður mér sko ekki kalt á tánum!!! Svo fékk ég beljur! Við fengum líka beljuskál, geðveikt flotta! Og svo fengum við sjúklega flottar myndir, sem stjúpi minn tók og lét stækka. Eina af Ormsstöðum og eina af firðinum fagra, eða 740 Paradís eins og María sys. kallar hann!!! Þær verða geymdar vel og svo hengdar upp á góðan stað í nýja húsinu okkar! Svo fengum við gjafakort í Villeroy og Boch, og getum farið og verslað inn í stellið okkar! Gaman, gaman!
Frá tengdamömmu fengum við svipaða gjöf og síðasta ár...eða hestaferð!!! Síðast fórum við í ferð hjá Eldhestum og núna förum við í Hraunferð með Íshestum! Sú ferð verður væntanlega farin í sumar, en s.l. sumar fórum við með tengdó og svo Valtý (bróðir Einars) og fjölskyldu.
Jamm. Svona eru jólin búin að vera hjá okkur so far!
Núna situr Jón Ingvi og dúllar sér inni í herbergi og Jóhannes er búinn að sitja inni í eldhúsi og leira og syngja jólalög; "Nú nýfæddur Jesú í jötunni lá...". Frekar krúttlegt! Skvísan situr inni og les...held ég...!
En núna ætla ég að fara að spila við Jóhannes...og kannski vilja fleiri vera með...spilið sem hann fékk í möndlugjöf!
Njótið dagsins og hvers annars
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðileg jól kæra fjölskylda og hafið það gott yfir hátíðarnar.
Úrsúla Manda , 25.12.2007 kl. 16:38
Yndisleg jól og allir slakir, þannig. Gott að ykkur líður svona vel. Innilegar kveðjur frá mér.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.12.2007 kl. 21:28
Ég sé að þið hafið aldeilis átt góð jól! Gott að heyra
Hugarfluga, 26.12.2007 kl. 17:41
Hæhæ Krúttfamilía og gleðileg jól.
Takk fyrir fallega afmæliskveðju þarna um daginn (betra seint en aldrei að þakka fyrir sig). Er búin að vera með prófstress allan desember og er svona rétt að ranka við mér aftur núna:)
Hafið það gott og ég hlakka til að sjá ykkur, hvenær sem það verður.
( og nú fer myndin fljótlega í póst, hún er alveg að verða ferðafær)
Jólaknús og kossar til ykkar allra
Slauga
Áslaug Hanna (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 00:18
Innilegar jólakveðjur til þín og yndislegu fjölskyldunnar.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 27.12.2007 kl. 00:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.