Leita í fréttum mbl.is

Rok og rigning...

...en það er allt í lagi þegar ég þarf ekki að fara út að labba!!!  Ég er mjög þakklát fyrir að eiga bíl og ég er mjög þakklát fyrir að eiga heimili sem er vatns- og vindþétt!!  

Þetta er samt bara tvennt af fjölmörgu sem ég er þakklát fyrir.

---

Ég er þakklát fyrir daginn í dag. 

Í dag er ég búin að eiga yndislegan morgun með börnunum mínum. 

Ég átti góða stund í ræktinni, ein með sjálfri mér innan um fullt af konum.  Ég var óhrædd og húllaði af hjartans list inni í miðjum hringnum og var alveg sama hvort þær sæu á mér rassinn og hvernig hann er í laginu = FRELSI!!! 

Ég fór til tannlæknis og dó ekki úr ótta.  Og komst að því að ég er ekki með fullt af skemmdum..sem ég óttaðist...en vissi samt innst inni að gat ekki verið þar sem ég hef farið reglulega til tannlæknis og passa tennurnar mínar...(einn minn stærsti ótti í lífinu eru TANNLÆKNAR!!!).

Ég fór og sótti Jón Ingva í skólann og gladdi prinsinn minn með pyslu og maltöli í hádegismat!!  Vakti mikla lukku hjá mínum manni.

Ég fór, ásamt Jóni Ingva, í sumarbústaðinn til Guggu frænku, þar voru Gugga frænka og mamma.  Átti yndislega stund með þeim systrum.

Núna er ég búin að skutla Jóhannesi og Ólöfu Ósk í íþróttahúsið og er að baka á fullu fyrir afmæli prinsessunnar.  Hún verður sko 12 ára á sunnudaginn!!!

---

Svona er lífið mitt í dag.  Alveg yndislegt.  Fyrir það er ég svo óendanlega þakklát. 

Ég trúi...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ójá lífið er skoh yndislegt og margt að þakka fyrir.  Eigðu góðan dag í rokinu & rigningunni :)

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 17:30

2 Smámynd: hofy sig

Það er svo satt hjá þér að það er þakkarvert að eiga þak yfir höfuðið og alls ekkert sjálfsagt, tannlæknar eru því miður minn stærsti ótti líka, ég er ekki enn búin að yfirvinna þann ótta en það kemur, það er alltaf jafn gaman og uppörvandi að lesa bloggið þitt, þú skrifar eitthvað svo fallega og ert svo aðdáunarlega jákvæð.

Knús á þig.

hofy sig, 27.10.2007 kl. 03:15

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband