31.8.2007 | 14:03
Föstudagur
Vaknaði í morgun með ungunum mínum. Þegar þau voru farin í skóla og leikskóla fór ég heim að sofa aftur. Ég vildi stundum að ég þyrfti eins lítinn svefn og minn heittelskaði, en þannig er það bara ekki. Ég fungera ekki ef ég sef bara í 6 tíma, eins og í nótt. Sofnuð um 1 og vakna kl 7. Virkar ekki fyrir mig! Svo ég sem sagt fór aftur að sofa og svaf til kl að verða 11.
Hringdi í lækni. Var ég búin að segja ykkur að sundkennarinn hennar dóttur minnar vill "sönnun frá lækni", eins og dóttir mín orðaði það, fyrir því að hún megi ekki synda bringusund. Ég varð pissed!! Trúir ekki dóttir minni!!! Og eins og Einar sagði, það er ekki eins og hún sé að reyna að koma sér undan, æfir sund á fullu og keppir! Jæja, ég hringdi sem sagt í heimilislækninn og hann var jafn hneykslaður og við!!! (Svo við erum ekkert crazy...) Hann sagðist nú ekki skilja hvað skipti miklu máli að hún væri að synda bringusund, flugsynt barn sem bæði æfði sund og keppti!!! Svo hann ætlaði nú ekki að skrifa neitt vottorð, heldur ætlaði hann sér að hringja í þessa konu og RÆÐA við hana!!! Og svo urðum við sammála um að það væri orðið tímabært að láta bæklunarlækni kíkja á hnéð á stelpuskottinu, þar sem þetta virðist ekki lagast af sjálfu sér. Svo nú er ég líka búin að panta tíma hjá Jóni Ingvari, sem skar mig. Jóni hinum Dásamlega, eins og tengdamamma og tengdaamma kalla hann, en hann skar líka tengdaömmu (Siggu ömmu)...og reyndar fleiri í fjölskyldunni. Svo við reiknum með að stelpuskottið sé í góðum höndum þar.
Annars er ég búin að sitja og drekka kaffi og spjalla síðan ég vaknaði. Jóna (konan hans tengdapabba) kom undir hádegið. Notalegt. Ég elska svona, eins og þið vitið...
Já, svo er helgin framundan...sem minnir mig á að ég þarf að hringja í pabba, sem ætlar að koma og passa ungana þar sem við erum bæði að vinna...
Meira síðar.
Ást...
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það tekur ekki svo langan tima að taka eina mynd og setja á netið hmmm!!!
Tanni Ofurbloggari, 31.8.2007 kl. 14:48
Þú heldur það!!! Nei, en sko ég ætlaði að gera mér lífið léttara og finna mynd á netinu...en veit auðvitað ekki hvað þessi sög heitir (I know; KONUR!!!!) svo ég verð að fá hjálp frá mínum heittelskaða...sem er að vinna...
...hann getur kannski reddað þessu í kvöld...?!!
SigrúnSveitó, 31.8.2007 kl. 15:36
pabbi þinn er yndislegastur allra:)
frænka (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.