Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta ROKgengur í blíðunni. Mér skilst að það sé moldrok úti núna.

Guðríður Haraldsdóttir, 31.5.2007 kl. 15:48

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Jamm, það eru læti í logninu núna, var að hjóla...er með augun full af Langasandi...eða mold...hver veit.

Í morgun var þvílík blíða, lognið var algert...svo breyttist það um hádegið og lognið trylltist... 

SigrúnSveitó, 31.5.2007 kl. 16:23

3 Smámynd: Hugarfluga

Amláttuvur! Það er bara allt að gerast í blíðunni! Nú er aldeilis veðrið til að byggja eitt stykki hús, takk fyrir og komdu sæl og berrössuð! Þetta bara skotgengur!

Hugarfluga, 31.5.2007 kl. 20:03

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Jú, jú, nú er brjálaður bisniss í blíðunni!! Ekki málið að skutla upp eins og einu húsi

SigrúnSveitó, 31.5.2007 kl. 20:28

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Gott bygg og gott rok !  

Búin að nota nokkrar af þínum frábæru uppskriftum, segi alltaf að þetta séu Sveitauppskriftir af Skaga og læt fólk fá bloggið þitt...ok? Væri sjéns að komast á prósentur?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 31.5.2007 kl. 22:23

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Frábærlega sagt " það eru læti í logninu núna" á örugglega eftir að stela því. Ég vona svo bara að það rokgangi hjá ykkur turtildúfunum

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2007 kl. 00:12

7 Smámynd: SigrúnSveitó

Já, Guðný Anna, það er spurning með prósenturnar En mér þykir ánægjulegt að sveitauppskriftirnar sé fólki til ánægju, og auðvitað er í góðu að benda fólki á síðuna mína

Ásdís, ég get sagt þér að lognið fer hratt yfir hérna hjá okkur í dag... Það mun hins vegar lítið gerast í húsabyggingunni í dag og um helgina þar sem Einar er að vinna...en það þarf víst líka

SigrúnSveitó, 1.6.2007 kl. 08:26

8 identicon

frábært hvað gengur vel

jóna björg (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 08:40

9 Smámynd: SigrúnSveitó

Já, þetta er svaka spennó.  Einar er búinn að biðjast undan öllu félagslegu næstu vikurnar...helst þar til húsið er fokhelt...því þá er hægt að breyta lánum í betri kost...svo ætli ég verði ekki bara einstæð móðir næstu mánuði...en við lifum það af, og vel það

Biddu Sindra að knúsa þig stórt frá mér.  Sakna þín, elsku vinkonan mín. 

SigrúnSveitó, 1.6.2007 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband