Leita í fréttum mbl.is

Afmælisbarnið

Við fórum til Ömmu Báru áðan.  Ég sótti Einar í vinnuna svo við gætum skroppið, svo er hann að fara í höfuðborgina á fund á eftir nefinlega.  

Ólöf Ósk gerði flotta "scrap"-mynd handa afmælisbarninu og svo keypti ég voða sætan páskakertastjaka.  

Þetta vakti þvílíka stormandi lukku hjá Ömmu Báru.  Hún var ægilega glöð og ánægð með gjafirnar en ekki minna glöð yfir að við skildum koma til hennar.  

Hún er svo voða yndisleg, þessi gamla kona.  Hún er svo alsæl með að ég sé að fara að vinna á Höfða en hún býr þar.  Svo það er nú gott.  

Jæja, maturinn er að verða tilbúinn...er að prófa eitthvað sem ég fann á einhverri bloggsíðu...vona að það bragðist vel...það sem ég prófaði um daginn (af blogginu) var allavegana hreinasta snilld... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Mikið ertu gott tengdabarnabarn  Og svo ertu alltaf að malla eitthvað sniðugt. Hvað er í pottunum núna? Ég átti svínalundir í frystinum, sem ég ætla að grilla .. já grilla!! Er að spá í að hafa steiktar kartöflur og eitthvað gott og matarmikið salat með ólífum og fetaosti með!

Hugarfluga, 27.3.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: SigrúnSveitó

segi ekki hvað ég mallaði, það var ekki þess virði að aðrir reyni það!

Hins vegar mæli ég með svínalundunum hérna til hliðar, einhverntímann þegar þú ætlar ekki að grilla.  En nammi namm, grill, kannski ég lokki elskuna mína til að taka út grillið um helgina Það hljómar vel.

SigrúnSveitó, 27.3.2007 kl. 17:56

3 Smámynd: Hugarfluga

Ú, já. Sú uppskrift virkar jömmílisjös!! Prófa hana næst þegar ég er með lundir!

Hugarfluga, 27.3.2007 kl. 18:13

4 Smámynd: SigrúnSveitó

æjæjjjj, var að kíkja á veðurspána fyrir helgina...það verður ekki grillað ef hún breytist ekki...

SigrúnSveitó, 27.3.2007 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband