Færsluflokkur: Bloggar
23.3.2007 | 20:59
við mægður...
...splunkunýjar myndir...teknar á webcameruna mína...
Mikil fegurð hér á ferð sérstaklega á þessari seinni!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.3.2007 | 19:13
Ég er búin að sitja hér...
...og reyna að vera kreativ...=reyna að byrja á byrjuninni á verkefninu okkar...en það gengur ekki. Tek mér kannski pásu til morguns...eða mánudags...
...svo ég held ég gefi ykkur bara beljukoss...
og kveðji að sinni...
...tek einn beljudans fyrir ykkur líka...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2007 | 17:45
Ætliði á McDonalds um helgina?
Satt eða logið? Hvað segið þið?
Ég skil amk betur afhverju við fáum illt í magann þegar við borðum á Mac D. Það eru reyndar bráðum 2 ár síðan síðast...börnin hafa ekki viljað fara þangað síðan...við fengum öll í magann...ojojoj...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2007 | 14:00
221 bls.
Jæja, þá er ég búin að lesa 221 bls. af þessum 12-1500... Það er ekki eftir sem búið er
Fékk leiðinlegar fréttir áðan. Vinkona mín, sem er 34 ára, fékk blóðtappa í heila um helgina. Hún er sem betur fer á batavegi, en þetta var mikið áfall fyrir hana og fjölskylduna hennar, eðlilega. Hún er með í bænum mínum.
Þetta er alveg ótrúlegt, og minnir mig á að ég er ekki ódauðleg. Engin veit sína ævina fyrr en öll er. Og eins og ég skrifaði í morgun, þá er lífið stutt og ófyrirsegjanlegt.
Fyrir nokkrum árum fannst mér fólk í kringum mig endalaust vera að fá krabbamein. Maður æskuvinkonu minnar dó úr krabbameini, vinur mágs míns og góður kunningi minn dó á svipuðum tíma. Systir mín fékk krabbamein og fór í gegnum geislameðferð. Og fleiri, mamma vinkonu minnar greindist með krabbamein. Þetta var voða nálægt mér alltsaman.
Þetta gerði mig mjög meðvitaða um lífið og dauðann.
Í því lífi sem ég lifi í dag reyni ég eftir fremsta megni að lifa einn dag í einu, koma fallega fram við alla sem ég mæti, og þá ekki síst þá sem ég elska. Stundum mistekst mér, en þá er ég líka fljót að biðjast afsökunar og bæta fyrir brot mín. Ég vil lifa í sátt og samlyndi og ást, lifa lífinu lifandi - og vakandi. Ég vil ekki vakna upp einn daginn og hugsa; "Ef ég hefði nú bara...".
Sendi ást og ljós til ykkar allra þarna úti.
Sól úti, sól inni, sól í , sól í sinni, sól bara sól.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.3.2007 | 09:50
Fjör á föstudegi...
...dóttir mín var í afmæli í gærkvöldi og kom ekki heim fyrr en að ganga 10...sem þýðir of lítill svefn og skapofsi í framhaldinu. Hún var hundleiðinleg við Jón Ingva, urraði á hann...og mig líka reyndar. En þessi skotta má eiga það að hún fer ekki ósátt í skólann. Hún reyndar rauk út en kom svo aftur skömmu síðar og baðst afsökunar. Það er eitt sem við höfum alltaf lagt áherslu á, nefninlega að fara ekki í fússi og fýlu, hvorki út né að sofa.
Ég man þegar ég fór einu sinni í fússi frá pabba. Daginn eftir var hringt í mig, hann hafði fengið blóðtappa í hjartað og var mjög veikur... Ég hét því þá að þetta myndi ég aldrei gera aftur. Lífið er of stutt og ófyrirsegjanlegt til þess.
Ætla að láta þetta duga í bili...og lesa smá...og dreka smá kaffi...og spjalla smá við Annemarie núna kl 10...og lesa svo meira...og drekka meira kaffi (því það er allt í lagi að drekka mikið kaffi!!!)...og já, bless í bili...!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2007 | 20:54
Íslenskt já takk...
Three men were sitting together bragging about how they had given their new
wives duties.
The first man had married a Woman from Colorado and had told her that she
was going to do the dishes and house cleaning. It took a couple days, but on
the third day he came home to a clean house and dishes washed and put away.
The second man had married a woman from Nebraska He had given his wife
orders that she was to do all the cleaning, dishes, and the cooking.
The first day he didn't see any results, but the next day he saw it was
better. By the third day, he saw his house was clean, the dishes were done,
and there was a huge dinner on the table.
The third man had married a girl from Iceland . He told her that her duties
were to keep the house cleaned, dishes washed, lawn mowed, laundry washed
and hot meals on the table for every meal. He said the first day he didn't
see anything, the second day he didn't see anything, but by the third day
some of the swelling had gone down and he could see a little out of his left
eye, enough to fix himself a bite to eat and load the dishwasher.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.3.2007 | 20:49
Crazý weður!!!
Veðurhorfur næsta sólarhringinn
Spá gerð 22.03.2007 kl. 19:08
Jæja, ætla að skella mér út í óveðrið og sæka elskuna mína á fund...ekki hægt að láta hann ganga heim...hann myndi kannski fjúka til fjalla...ekki vil ég það!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.3.2007 | 13:28
Angakarlinn...
Þetta er frekar dularfullt og vonandi finnst skýring á þessu svo hægt sé að hjálpa barninu.
Okkar strákar voru 10 kg. 5 mánaða (ekki 3ja mánaða eins og þessi drengur)...og þótti mörgum nóg um. Mágur minn spurði eitt sinn; "Hvað gefiði drengnum [Jón Ingvi] að borða? Trölladeig?". En nei, það var nú bara kjarngóð brjóstamjólk...
![]() |
Eins árs og 25 kg að þyngd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.3.2007 | 11:30
íslenskir danir...
Er einhver ykkar sem lumar á uppskrift að dönsku rúgbrauði? Ekki hverju sem er...það mega ekki vera kjarnar í...og það á að vera "Mørk, maltet"!! (Svona eins og Coop framleiðir...ef þið eruð einhverju nær...)
Væri mjög þakklát fyrir að fá uppskrift. Jón Ingvi elskar svona rúgbrauð en getur ekki borðað íslenskt rúgbrauð...þetta SÆTA SULL...!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.3.2007 | 09:50
Óvæntir gestir
Veðurguðirnir sjá okkur fyrir gestum þessa dagana. Fyrst komu Erla og Birgir Elís, veðurteppt í nokkra tíma. Í gær var svo bankað og úti stóðu Benni (tengdapabbi) og Jóna. Á leið heim til Akureyrar, en voru veðurteppt. Svo við græddum fengum að hafa þau í heimsókn í nótt...og ef til vill áfram í dag (Benni er að tala við veðurstofuna). Gaman að fá gesti.
Ég tók mig til og hrærði í bollur í gærkvöldi, skellti deiginu í ísskápinn og vaknaði 6.15 til að skella bollum á plötu og kveikti á ofninum. Skreið svo inn í rúm í korter...fram aftur til að setja bollurnar inn og svo inn í rúm í 18 mínútur!! Svo fórum við á fætur og gátum gætt okkur á nýbökuðum bollum. Þvílík snilld. Svo eru þær ekkert sérlega óhollar heldur, svo ekki er það verra.
Hér kemur uppskriftin ef þið viljið:
1½ dl haframjöl
3 dl vatn
1/2 pk þurrger (eða 25 gr pressuger)
2 dl rifin gulrætur
1-2 dl jógúrt
2 msk olía
1 tsk salt
ca 500 gr hveiti
Setjið haframjöl og vatn í pott og sjóðið í 1-2 mín og hrærið í á meðan. Þegar þetta er orðinn hafragrautur er potturinn tekinn af hellunni.
Kælið grautinn þar til hann er kaldur. Setjið gulrætur, jógúrt, olíu og salt í og hrærið vel saman. Blandið hveitinu og gerinu saman og hrærið saman við grautinn. Deigið á að vera frekar blautt og klístrað. Setjið svo deigið í ísskápinn og látið hefast þar yfir nótt.
Formið bollur með skeið. Látið þær hefast á bökunarplötu í 15 mín.
Bakið v. 200°C í ca 18 mín. í miðjum ofni.
Gerðu þína eigin uppskrift:
Prófaðu að setja
1 dl rúsínur í deigið eða
4 msk hörfræ eða
1 dl heslihnetuflögur.
Mæli með þessari. Hún sló amk í gegn hérna hjá okkur í morgun. Svo er Latte ómissandi...að mínu mati!!
Benni og Jóna eru farin af stað. Ætla að freista þess að komast yfir Holtavörðuheiði áður en fer að hvessa meira...það er sannkallað vetrarríki hér á Fróni þessa dagana.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar