Færsluflokkur: Bloggar
26.3.2007 | 11:32
Alkóhólismi
Sit og les og les um alkóhólisma og ýmsar greinar (mest á dönsku) tengdar honum. Er að safna kjarki, orku og einhverju fleiru til að ráðast í skriftir. Er búin að taka að mér að skrifa um:
- Hvad er alkoholisme?
- Behandlingsmuligheder.
- Økonomiske bekostninger (herunder sygehusindlæggelser)
- Personlige omkostninger (herunder; med hensyn til alkoholikeren selv, familie og omgangskreds)
Vona að þið skiljið dönsku annars bara leiðinlegt fyrir ykkur að missa af þessu!!
----
Ólöf Ósk er enn slöpp og sloj. Er reyndar hressari, amk er hún að borða smá núna. Svo skellti hún sér líka í bað og lá þar hátt í klukkutíma. Las 139 bls í *jumbobog* (Syrpa á íslensku).
Jæja, ætla að skella mér í ritgerðarskriftina...
Ást og ljós...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2007 | 21:44
Veikindi
Prinsessan á bænum er orðin lasin. Hún fór að fá illt í magann og upp úr hádeginu kom 1. gusan
. Einhverju síðar kom 2. gusan og svo sú 3. Svo núna er hún komin með hita, 39,3°. Greyið litla, henni líður ósköp illa. En nú er hún komin inn í holuna hans pabba síns og ætlar að kúra hjá mér í nótt (Einar að fara á næturvakt).
Ég vona að allir gestirnir okkar sleppi, en í dag hafa ansi margir komið. Strákarnir fengu sitt hvorn vininn í heimsókn, svo komu Raggý og Inga og síðan kom Lára (vinkona mín héðan af Skaganum) og svo var pabbi hjá okkur líka (kom í gærmorgun). Þannig að það er aldrei að vita nema fullt af fólki leggist í bælið...vona þó ekki. Mér er reyndar sjálfri óglatt núna...en það getur víst alveg eins verið út af þessum rúmlegu 100 grömmum af Síríus rjómasúkkulaði sem ég var að TROÐA í mig...
Jóhannes á erfitt með að það er farið að vera bjartara á kvöldin. Ef það er bjart þá ER DAGUR!!! Og hann vill ekki - og segist ekki geta - sofna. En hann geispar samt og gapir og sofnar um leið og hann hættir að þrjóskast, því svefnþörfin hefur ekki snarminnkað...þótt hann vildi það helst. Ég vona að hann eigi eftir að venjast þessu...þar sem það á bara eftir að verða bjartara...og bjartara... Ég verð að segja að ég elska þessa birtu, veit fátt yndislegra en þegar það er bjart allan sólarhringinn (og hlæ að dönum sem tala um sínar "björtu nætur"...það verður samt kolniðamyrkur í einhverja tíma!!). Vorið er yndislegur tími, allt að lifna við...og þó það sé kalt þá er AÐ BIRTA!!!
Jæja, ég ætla að spjalla aðeins við manninn minn áður en hann fer að vinna...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
25.3.2007 | 15:59
Góðir gestir...
...LOKSINS!!
Loksins komu Raggý og Inga í heimsókn. Frábært að hitta þær. Við lofuðum hver annari að það muni ekki líða 9 mánuðir...eða eitt og hálft ár þangað til næst!
Á milli þeirra á myndinni er Hulda, mamma Raggýar og stjúpföðursystir mín. Fallegar konur þarna á ferð, allar þrjár.
Við Raggý þekktumst vel í *gamla daga* en svo þegar við urðum *fullorðnar* þá misstum við sambandið. Hittumst örsjaldan. EN þökk sé BLOGGINU þá náðum við sambandi aftur. Já, ég get þakkað tækninni ýmislegt.
Raggý hafði *föndrað* handa mér yndislega mynd, sem er samansafn af myndum frá því við vorum börn. Allskonar myndir af mér, henni, Lilju sys. og Alla (bróðir Raggýar) og svo myndir af *litlu* systkinum mínum, Aðalsteini og Maríu. Alveg æði. Stelpur, ástarþakkir bæði fyrir myndina en ekki minnst fyrir heimsóknina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.3.2007 | 10:50
Handavinnan mín...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.3.2007 | 09:04
Kjúklingaréttur og eftirréttur frá Lilju sys.
Kjúklingaréttu Tótu:
Sósa: 1 dós kókosmjólk, satay-sósa, karrímauk (sletta).
Kjúklingur: steiktur eða soðinn áður.
Grænmeti: paprika, ananas, sveppir, laukur.
Grænmeti steikt á pönnu. Sósugutlinu blandað saman á pönnu (pott), steikta grænmetinu og foreldaða kjúklingnum bætt út í og hitað.
Nauðsynlegt að hafa hrísgrjón með, jafnvel brauð og hrásalat.
Og í eftirmat mælum við með þessu:
Uppskrift fyrir fjóra til sex:
4 bananar
100 g hveiti
25 g smjör - bráðið
125 ml. kókosmjólk
150 ml. ólífuolía
salt
Hrærið saman hveitinu, smjörinu, kókosmjólkinni og smá salti þar til komið er mjúkt deig. Bætið við smá vatni ef þarf. Skerið banana í helminga og skerið svo hvern helming langsum. Þekið hvern bananabita vel með deiginu og steikið í olíunni á pönnu, þrjá til fjóra bita í einu (eða eins marga og pannan rúmar ;-), í tvær til þrjár mínútur eða þar til bitarnir verða gylltir að lit. Hægt er að strá flórsykri yfir til skreytingar (sælkeranum mér finnst það möst). Borðið svo með vanilluís - heitt eða kalt (ég mæli með því að hafa þetta heitt).
Ég held að þetta sé indverskur eftirréttur - a.m.k. ekki íslenskurBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.3.2007 | 09:00
Svínalund...
...að hætti Gunster.
Hráefni fyrir u.þ.b. 4 fer eftir græðgi ;)- 1 svínalund
- 1 pk parmaskinka
- 1 pk sveppir
- Matreiðslurjómi
- Pipar (helst nýmalaður)
- Sósujafnari, ef þarf
- Kraftur (grænmetis og/eða kjöt)
Aðferð
Skerið lundina í u.þ.b. 2 - 3 cm breiða bita. Fletjið bitana út með hnefanum í þunnar sneiðar c.a. lófa stórar (ekki nota kjöthamar, hann skemmir kjötið). Piprið sneiðarnar eftir smekk. Leggið skinkusneiðarnar á kjötið og nælið fast með tannstöngli. Sneiðið sveppina í þunnar sneiðar. Setjið olíu á pönnuna og hitið. Steikið kjötið fyrst á skinkuhliðinni og snúið því við þegar að skinkan hefur fengið lit og er orðin stökk. Snúið kjötinu við og klárið steikinguna (ath. svínakjöt á að gegnumsteikja). Þegar kjötið er fullsteikt takið það af pönnunni og leggið til hliðar og haldið heitu. Setjið sveppina á pönnuna, bætið við olíu ef þarf og steikið þá uns þeir verða mjúkir. Hellið loks rjómanum samanvið og sjóðið örlítið niður. Smakkið til og bætið kjötkrafti og/eða grænmetiskrafti ef þarf. Athugið að parmaskinka er í eðli sínu mjög sölt svo mjög ólíklegt er að rétturinn þarfnist söltunar. Þykkið sósuna ef þörf krefur og leggið svo sneiðarnar í sósuna og mallið við lágan hita í skamma stund. Upplagt er að reiða fram heimabakað hvítlauksbrauð og salat hússins með þessum rétti.
Ég reyndar skar kartöflur í báta og velti þeim upp úr matarolíu og salti og bakaði í ofni, ásamt sætum kartöflum sem ég skar í tvennt og bakaði með.
Snilldargóður matur. Pabbi og Einar slefuðu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2007 | 22:36
SÆLGÆTI!!
Íslenskt sælgæti er gott!! Ég er búin að gúffa töluvert í kvöld...og er eiginlega alveg að springa...ekki gott.
Er búin að rabba við ÆM og biðja hann að hjálpa mér með þetta...enn eina ferðina. Veit að það gengur...en ég er ekki mjög viljug...en þannig hefur það verið áður.
S.l. sumar þegar sykurinn átti mig síðast, deildi ég þessu með "ykkur" líka...tengdó las það og sagði eitthvað á þá leið; "Úff, var að lesa bloggið þitt elskan...mikið áttu erfitt"!!!
Já, það er ekki alltaf auðvelt að vera með raddir...græna karla...engla og djöbba
að slást...í hausnum...
Færsla skrifuð 18. ágúst 2006:
Ég er að kafna úr sykurleðju!!! Hluti af mér er að klikkast á þessu, buxur farnar að þrengjast (og skyldi engan undra!!!) og hausinn á mér á 100 alla daga; "ekki nammi í dag, það er ekkert mál" en svo spilast þessi rulla í hausnum á mér þar til ég fæ mér sykur!!! ojojoj. En svo er hinn hlutinn af mér sem bara er að fíla þetta í tætlur og langar sko ekki baun í bala að hætta að borða sykur aftur. Og segir, "hvaða máli skipta nokkur kíló til eða frá?!" En þetta skiptir allt máli, útlitsþráhyggjan að drepa mig en tilhugsunin um að borða ekki þetta gómsæta ÍSLENSKA nammi er að drepa mig líka. Veit ekki hvern fjandann ég á að gera (eða hvað, kannski veit ég það alveg...)!!!En hugsið ykkur t.d. gómsætan BRAGÐAREF, úff...nei...þetta gengur ekki...alveg sama hvaða leið ég vel...buhuuuuuu.....
Túttilú...
önnur færsla skrifuð 19. ágúst 2006:
það er allt að verða vitlaust...
...eða er orðið það!!! Það er allt á fullu í hausnum á mér, hann er á 100 allan daginn. Ég er að klikkast. Ég veit hvað ég þarf að gera. Ég verð að hætta borða sykur :( hausinn á mér þolir ekki sykur. Ég verð geðveik af honum. SYKUR ER EITUR!!! Amk. fyrir hausinn á mér.Ég ætla að hætta að "drekka" á morgun...eða hinn...eða hinn...
Ég var að hugsa þetta í morgun og þá kom upp þessi hugsun: "Ég verð að fá mér BRAGÐAREF í dag, ég verð líka að fá mér STÓRAN poka af APPOLLÓ lakkrís".
Ég veit. Þau ykkar sem ekki eiga við þetta vandamál að stríða, þið skiljið þetta ekki. En ég veit að það eru líka þau ykkar sem skilja mig, sem betur fer. Ég er ekki ein.
Nú ætla ég að vinda mér í morgunmatinn...Swiss Miss!!!
Túttilú...
Já, það er ca svona sem hausinn á mér fungerar í dag...24. mars 2007. Ég vona að mér eigi einn góðan veðurdag eftir að takast þetta...að vera sykurlaus einn dag í einu...alla ævi!!! En nú er ég farin í bælið!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2007 | 14:34
Bakverkur áááái
Hef ekki fengið í bakið í mörg ár. Ekki síðan ég fór að lifa því lífi sem ég lifi í dag. Komst að þeirri niðurstöðu að verkurinn var andlega tengdur. Spurning hvort svo sé nú? Mér finnst ég reyndar vera í mjög góðu formi andlega. (Fyrir utan smá afturhvarf til fortíðar í ca hálftíma á fimmtudagskvöldið þegar Einar var ekki eins og ÉG vildi hafa hann...hann spurði mig blíðlega hvort ég vildi að hann keypti múl og beisli svo ég gæti haft hann í taumi...!!! ég vildi það ekki!!!)
Hallast á að verkurinn sé mest eftirköst eftir að hafa sofið í 90 cm rúmi með Jóhannesi í heilan mánuð...fyrir utan 3 nætur...eina þeirra svaf ég með bæði Jóhannes og Jón Ingva í rúminu...og hinar tvær næturnar var Jón Ingvi með mér í rúminu...!! Finnst ég hafa verið búin að blogga um þetta...en skítt "pyt".
Stefni ennþá á sund á morgnana...en hef hreinlega ekki treyst mér að fara að synda meðan það er svona mikið rok...kannski það sé bara léleg afsökun? Hver veit. Það á að fara að lægja eftir helgi...strax á morgun held ég reyndar, svo nú fer þessi afsökun að verða ógild.
Svo held ég að það sé líka sárt fyrir bakið að sitja svona mikið eins og ég geri. En veit ekki hvernig ég kemst hjá því meðan ég er að lesa og skrifa næstu 10 vikurnar eða svo...þannig að þið sjáið að sund hlýtur að vera málið!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
24.3.2007 | 13:29
Súellen!!
Langt síðan ég hef hugsað um Súellen. Rakst inn á bloggsíðu áðan og þar er einmitt lag með Súellen í tónlistarspilaranum. Súellen er sko frá Norðfirði...alveg eins og ég Og Gummi, söngvari Súellen, var með mér í bekk í 7.-9. bekk...eftir að ég fór í skólann í bænum (var í sveitaskólanum í miklu öryggi fyrstu skólaárin).
Að rekast á Súellen þarna inni setti gang í minningabankann og það er magnað hvað gerist í hausnum á mér þegar ég rekst á eitthvað frá gamalli tíð. Gaman að því...svona yfirleitt
En í tilefni af því að það er laugardagur og ég ekki alveg búin að ná botninum í mínu sælgætisáti...þá ætla ég að verða að ósk yngri sonar míns og skella mér út í Krónu og kaupa...NAMMI!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2007 | 09:52
Lørdag
Jæja, þá í þetta sinn. Ég og dóttir mín gláptum
á einhverja bíómynd í gær, Love potion #9 með Söndru Bullock. Ansi skondin mynd, alger þvæla. Ekta svona mömmu/stelpu-kvöldsmynd. Fullt af nammi með...
Og mér hefnist fyrir það, nammið sko...í dag er ég með hausverk og ristillinn í mér er EKKI hrifinn af sykri...svo er ég komin með hina margumtöluðu ÞRÁHYGGJU og hugsa ekki um annað en sykur-nammi-sykur-nammi...allan daginn. Sem sagt aldrei þögn í hausnum á mér. Held svei mér þá að ég hætti aftur í sykrinum...vonandi fæ ég nóg mjög fljótlega... Þeir sem þekkja þetta vita að það er erfitt að hafa aldrei þögn í hausnum...
Svo er hérna ein Fyrir þá sem freta mikið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 179279
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar