Færsluflokkur: Bloggar
28.8.2007 | 11:58
Afmælisbörn dagsins
Tveir mágar mínir eiga afmæli í dag, báðir 32 ára.
Valtýr, litli bróðir Einars, fær bestu kveðjur frá okkur hér.
Brynjar, maður Elínar sys., fær líka bestu kveðjur frá okkur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.8.2007 | 09:57
Ég er LOFTHRÆDD!!!!!!!!
Vissi að ég væri svolítið lofthrædd...en ég vissi ekki að ég væri svona svakalega mikið lofthrædd. Ég fór að hjálpa mínum heittelskaða í húsinu...taka mál og svona fyrir burðarveggjum. Og það gekk ljómandi vel...þar til hann sagði að nú yrðum við að fara upp á "stillads" og mæla fyrir bitanum... Upp komst ég...en svo þurfti ég að labba fram og tilbaka. Ok meðan ég gat haldið mér í eitthvað...en svo kom staðurinn (norðurhliðin) og þar var ekkert til að halda í, tvær spýtur hlið við hlið til að labba á...og þær DÚUÐU!!! Ómægod!!! Einar reyndar labbaði á undan og leiddi mig...en ég ýki ekki þegar ég segi að ég fór að skæla!!!
Svo segir Einar; "Ástin mín, ég vissi ekki að þú værir svona lofthrædd"! Hélt sig vita allt um mig eftir tæpl. 11 ára sambúð...!! En ég gat með góðri samvisku snökkt; "Ekki ég heldur!!!"!!!!!!!!!
Þegar við vorum komin niður aftur sagði þessi elska; "Þú verður þá ekki með mér á stillads að klæða loftin..."
NEI, vitiði, ég held bara ekki...ég myndi hvort eð er ekkert sjá fyrir tárvotum augum!!!
Það er gott að kynnast sínum takmörkunum...!! Gott að geta grátið...tvo daga í röð!!!
En núna ætla ég að standa við loforðið sem ég gaf Jóhannesi áðan og finna saumauppskrift...grænu íþróttaálfsbuxurnar hans eru BÚNAR, gersamlega gatslitnar, enda notaðar MIKIÐ af þremur börnum! Svo ég ætla að finna snið, fara svo í höfuðborgina very soon og kaupa grænt efni og sauma nýjar buxur á gorminn!!!
Svo get ég sagt ykkur að Jón Ingvi átti góðan dag í gær í skólanum og dagvistinni. Hann var ánægður þegar hann fór af stað í morgun. Yndislegt.
Eigiði góðan dag, elskurnar og gangi á vegi Æðri Máttar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.8.2007 | 00:30
Mánuður fram yfir
Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir".
"Hvernig í ósköpunum veist þú það?" spurði unga frúin.
"Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið.
"Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir.
"Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séum kominn mánuð fram yfir, hvern andskotann að kemur ykkur það við?".
"Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð.
"Borga ykkur ert ekki í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?"
"Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi."
"Og hvað á þá konan mín þá að gera?"
"Nú hún verður þá bara að nota kerti" svaraði Alfreð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.8.2007 | 10:33
Húsið og fleira
Hér eru tvær myndir, teknar á föstudaginn var.
Þetta er sum sé veggurinn sem skilur bílskúrinn frá húsinu. Gatið sem Einar stendur í, er í forstofunni.
Fínt, ikk´?!!!
Annars byrjaði alvara lífsins í dag, skólinn byrjaði! Ég fylgdi Jóni Ingva í skólann og talaði við kennarann, bað hann að sjá til þess að Jón Ingvi myndi skilja bækur eftir í skólanum, svo hann væri ekki að burðast með allt of þunga tösku heim!!!
Svo skundaði ég niður til skólastjórans, til að biðja um að Jón Ingvi fengi aðstoð. Hann er strax kominn með kvíðahnút í magann yfir skólanum. Ég get ekki rætt um þetta án þess að gráta, svo ég grét meðan ég sagði henni hvað væri málið. Mér finnst þetta svo sárt. Ég veit nákvæmlega hvað hann er að ganga gegnum þar sem þetta er "the story of my life". Fela sig í hárinu og vera með kvíðahnút í maganum. Ég held að það besta fyrir Jón Ingva hefði verið að komast í svona lítinn sveitaskóla eins og ég var í. Fullkomið öryggi. En það er ekki í boði. Hins vegar lofaði Hrönn (skólastjóri) mér því að það yrði gert allt til að hjálpa honum, hann ætti rétt á að líða vel!!! Það er kominn nýr þroskaþjálfi í skólann og hún ætlaði að biðja hana að fara inn í bekkinn þessa viku og jafnvel næstu líka til að fá mynd af þessu. Og ef enn er þörf þá munum við fara til skólasálfræðingsins þegar hún kemur úr leyfi 1. nóv.
Ég vona innilega að nú verði gert eitthvað. Ekki bara eins og s.l. vetur þar sem ég upplifði að það var alltaf "verið að fara að gera eitthvað" sem aldrei var gert.
Þess vegna ákvað ég líka að bíða ekkert, heldur æða strax af stað 1. skóladaginn og beint til æðsta manns/konu!!!
Þannig að þetta er vonandi í farvegi...GÓÐUM farvegi!!!
Skrítið samt, þar sem hann er með þennan kvíðahnút í maganum yfir að hitta krakkana að þá vill hann samt vera í dagvist alla daga. Svo við tókum um það ákvörðun, ég, Jón Ingvi og Einar, að hann verði í dagvist alla daga til kl. 16 (við Einar vildum 15.30 en hann sjálfur 16.00). Þannig verður hann líka "stabíll leikfélagi" ef svo má segja. S.l. vetur var hann bara suma daga og kannski hefur það líka haft áhrif, erfiðara að tengjast honum ef hann er bara stundum og stundum ekki í dagvistinni.
Vonandi...
Amk. við vinnum að því að honum fara að líða betur í skólanum og hjálpum honum að byggja upp sjálfstraust og sterkari sjálfsmynd!!! Litli drengurinn minn, sem er orðinn svo stór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.8.2007 | 19:06
Aðstoð óskast!!!
Eins og þið eflaust hafið lesið þá keyptum við nýja myndavél um daginn. Ægilega fína. En myndirnar er svo STÓRAR að það tekur heila eilífð að dæla myndum inn á barnanetið...sem verður til þess að ég nenni því ekki...og þá verður Tanni ósáttur...og ekki viljum við það...!!!
En mig vantar sem sagt aðstoð. Hvernig minnka ég myndirnar???????
Með fyrirfram þökk fyrir hjálpina...sem ég treysti á að þið getið veitt mér...!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.8.2007 | 13:28
Alveg glötuð!!!
Held ég hætti hér með að vera með "afmælisbörn dagsins" á síðunni minni. Undanfarna daga hafa ýmsir mér tengdir eða ótengdir átt afmæli.
15. ágúst: Siggi, 36 ára. Siggi er maður Erlu systir.
19. ágúst: Trausti, 39 ára. Trausti er fyrrverandi mágur minn. Var giftur Erlu systir í mörg ár. Þar fyrir utan voru hann og Einar (minn heittelskaði) saman í Reykjaskóla fyrir mörgum árum síðan.
21. ágúst: Þórður, 38 ára. Þórði kynntist ég á djammárunum í Reykjavík. Þórður var sá eini sem tóki mig á orðinu og heimsótti mig til Englands 1992.
23. ágúst: Stebbi Pálma, 69 ára. Stebbi er pabbi Eyþórs, sem var kærastinn minn fyrir 20 árum (hugsið ykkur, fyrir 20 árum!!!!!). Ég bjó heima hjá Stebba og Hallbjörgu, konunni hans, í 3 ár. Þau reyndust mér vel þessi ár og hafa alltaf átt stað í hjarta mínu, rétt eins og ég veit að ég á enn stað í þeirra hjörtum.
24. ágúst: Sölvi, bróðursonur minn, 5 ára. Sölvi er sonur Gunnars bróðir. Því miður þekki ég Sölva ekkert, hef hitt hann mjög sjaldan. En hver veit nema úr því verði bætt í framtíðinni?!!! Ég vona það.
25. ágúst: Ævar Steinn, systursonur minn, 5 ára. Ævar Steinn er sonur Maríu systir. Ævar Steinn bræddi hjarta mitt þegar ég sá hann fyrst, þá var hann 3 mánaða. Hann bræddi það enn meir þegar hann heimsótti okkur til Danmerkur sumarið eftir, þá 10 mánaða. Brosið hans...OMG!!! Frænkutetrið bráðnaði eins og súkkulaði í smá sól!!!
Jamm, elskurnar mínar allar. Þið lesið örugglega ekki bloggið mitt, en ég óska ykkur engu að síður til hamingju með dagana ykkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.8.2007 | 16:18
24 tímar!!
Við hjónin höfðum það náðugt í gærkveldi og horfðum á 4 fyrstu þættina í einhverri seríu 24 hours. Ég er svo mikil hæna...ég er alltaf á tauginni, hjartslátturinn á milljón...örugglega með of háan blóðþrýsting þegar ég horfi á þessa þætti. En get ekki sleppt því...Jack is back and I love it!!!
Reyndar prjónaði ég stroff á sokk nr. 2 meðan við horfðum, sem er gott því ég er með heilar og ónagaðar neglur fyrir vikið!!!
Átti erfitt með að vakna í morgun. Einar fór að vinna svo hann fór á fætur um 6 leitið, alger hetja. Amk í mínum augum
Pabbi kom undir hádegið og ætlar að vera til morguns. Alltaf ljúft að fá hann til okkar. Yndislegur maður, notalegt að vera í návist hans, pabbinn minn. Krakkarnir elska að fá afa, Jón Ingvi er reyndar sérlegur afastrákur.
Jóhannes fór í afmæli til vinar síns, svo hér er enginn íþróttaálfur skoppandi um. Ég keypti handa honum íþróttaálfs-gúmmí-túttur í gær og hann er svo kátur. Nú verða þetta væntanlega mest notuðu skór næstu vikurnar.
Jamm, hvað get ég annað sagt ykkur? Jú, ég ætla að grísasnitsel í kvella...í raspi...held það sé gott!
En núna ætla ég að prjóna smá og njóta laugardagsins. Það styttist í að ég vinni 3 helgar í röð...svo eins gott að njóta þessarar helgar og slappa af.
Gleymi að segja ykkur...það kom tilboð í íbúðina...hlægilega lágt. Sennilega hafa "þau" ekki verið með hærra greiðslumat, því þau hættu við þegar við gerðum gagntilboð... En það er í góðu lagi, þetta kemur þegar þetta á að koma.
Ljós&kærleikur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.8.2007 | 19:40
Vinnan...
...tefur mig frá prjónaskapnum...
Var að vinna í gærkveldi. Var að vinna í dag. En nú er helgarfrí og ég hef þrjú kvöld fyrir prjónana!!!! Ekki amalegt.
Skólasetning hjá ungunum í dag. Einar fór með Jóni Ingva. Jón Ingvi er stoltur og ánægður með að vera byrjaður í 2. bekk!!! Frekar kúl.
Skvísan sá um sig sjálf, enda of hallærislegt að hafa "þau gömlu" með sér á skólasetningu. En hún er samt litla stelpan þegar hún er að fara að sofa og vill láta breiða yfir sig og helst smá kúrikúr með mömmsunni sinni
Yndislegt.
Núna eru þau að horfa á Disneyshow á DR1...
Einar er uppi í húsi og ef þið spyrjið Jóhannes þá segir hann; "Það er stutt í þakið"!!! Litla krúttið.
Annars kom pakki frá Norðfirði í dag, playmobíll sem Jóhannes fékk í afmælisgjöf og sem týndist á Ormsstöðum. Við skriðum um allt en fundum ekkert. Mamma fann hann svo undir sófa, þar sem bæði ég og Einar höfðum leitað! Eins og mamma sagði; "Álfkonan hefur fengið hann lánaðan handa barninu sínu" og ég er nokkuð viss um að þannig hefur það verið.
En mamma sem sagt skrifaði "Jóhannes Einarsson" á pakkann...Jóhannes var ekki viss um hvort pakkinn væri örugglega ætlaður honum...því hann kallar sig "Jóhannes Sigrúnarson"!!! (Algerlega komið frá honum sjálfum.) Hann sættist svo á að það væri ok að SKRIFA "Jóhannes Einarsson" ef fólk bara man að hann samt heitir "Jóhannes Sigrúnarson"...
Jamm og já...ætla að ganga frá úr Bónuspokunum...
Knús&kærleikur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.8.2007 | 14:00
Gaman
Ooooohhh, hef ekki tíma til að fara að vinna!!! Langar svo að prjóna og sauma og skrappa og fleira...en til að eiga pening í allt þetta föndur mitt þá verð ég víst að vinna...get ekki endalaust látið Einar vera einu fyrirvinnuna...það hefur hann verið í svo mörg ár og staðið sig með mestu príði.
Reyndar finnst mér líka svo gaman í vinnunni. Svo ég svari spurningu sem ég fékk frá Ásdísi bloggvinkonu, að þá er ég enn mjög ánægð í vinnunni. Finnst starfið yndislegt, gefandi og svo allt fólkið sem ég kynnist, bæði íbúar, aðstandendur og ekki síst starfsfólkið. Mér finnst ég vera að komast inn í bæjarsamfélagið og það finnst mér æði.
Ég er svoddan dreifbýlistútta að ég verð að vera "þekkt" andlit, þannig skilið að mér þykir voða notalegt þegar fólk þekkir mig og heilsar þegar ég t.d. kem inn í búð. Þannig hefur þetta alltaf verið heima á Nobbarafirði og þannig var þetta sannarlega orðið í Græsted. Enda gerði ég mér t.d. sérstaka ferð í búðina "mína" í Græsted til að kyssa kaupmanninn bless þegar við fluttum heim s.l. sumar Og svo var mér tekið fagnandi þar þegar ég fór út í febrúar! Yndislegt.
Þó ég verði ALDREI skagamaður(kona) þá vil ég samt ekki vera AKP alltaf (AðKomuPakk)... Heima á Norðfirði (amk. heima á Ormsstöðum) var AKP kallað "útlendingar").
Hef ég sagt þetta áður? Ég ætla amk að segja það... Það sem mér þótti skrítnast (og sorglegast) þegar við bjuggum úti í Danmörku var að börnin okkar höfðu ekki rætur á Íslandi. Þegar við (foreldrarnir) vorum spurð hvaðan við værum (af íslendingum) þá var svarið hjá Einari; "Ég er Skagamaður" og hjá mér; "Ég er norðfirðingur". En börnin voru "frá Íslandi". Nú finnst mér æði að þau eru orðnir SKAGAMENN!!!! De har fået TILHØRSFORHOLD, eins og ég myndi orða það á dönsku!!!
Á eftir er ég að fara að gera það sem mér þykir sárt...ég er að fara með Jóhannes í bólusetningu
ég jafna mig örugglega seint á ótta mínum við nálar... Hann vantar eina bólusetningu til að vera kominn í íslenska kerfið... Meningococcar...heilahimnudæmi. Ég vona að hann standi sig jafn hetjulega og hann hefur alltaf gert...það hafa fallið fleiri tár hjá mér en honum.
EN nú ætla ég að sníða fóður inn í töskuna mína...og fara að taka þessa elsku í notkun...ætla sem sagt ekki að gefa hana í jólagjöf...nema ég skipti um skoðun...langar að eiga hana sjálf...veit ekki hver systra minna hefur "svona" smekk...
Sendi fullt af kærleika til ykkar allra. Þið eruð ÆÐI!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.8.2007 | 19:08
Enginn tími...
...til að blogga. Er að fara að lesa fyrir drengina, svo ætla ég að skríða upp í og prjóna...var að kaupa mér garn og er æst í að byrja á verkefninu!!! Vonandi jólagjöf...ekki orð um það meir!!!
Ljós&kærleikur út í vefheim
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar