Leita í fréttum mbl.is

Ég er LOFTHRÆDD!!!!!!!!

Vissi að ég væri svolítið lofthrædd...en ég vissi ekki að ég væri svona svakalega mikið lofthrædd.  Ég fór að hjálpa mínum heittelskaða í húsinu...taka mál og svona fyrir burðarveggjum.  Og það gekk ljómandi vel...þar til hann sagði að nú yrðum við að fara upp á "stillads" og mæla fyrir bitanum...  Upp komst ég...en svo þurfti ég að labba fram og tilbaka.  Ok meðan ég gat haldið mér í eitthvað...en svo kom staðurinn (norðurhliðin) og þar var ekkert til að halda í, tvær spýtur hlið við hlið til að labba á...og þær DÚUÐU!!!  Ómægod!!! Einar reyndar labbaði á undan og leiddi mig...en ég ýki ekki þegar ég segi að ég fór að skæla!!! Crying

Svo segir Einar; "Ástin mín, ég vissi ekki að þú værir svona lofthrædd"!  Hélt sig vita allt um mig eftir tæpl. 11 ára sambúð...!! En ég gat með góðri samvisku snökkt; "Ekki ég heldur!!!"!!!!!!!!!

Þegar við vorum komin niður aftur sagði þessi elska; "Þú verður þá ekki með mér á stillads að klæða loftin..."

NEI, vitiði, ég held bara ekki...ég myndi hvort eð er ekkert sjá fyrir tárvotum augum!!!

Það er gott að kynnast sínum takmörkunum...!!  Gott að geta grátið...tvo daga í röð!!! LoL

En núna ætla ég að standa við loforðið sem ég gaf Jóhannesi áðan og finna saumauppskrift...grænu íþróttaálfsbuxurnar hans eru BÚNAR, gersamlega gatslitnar, enda notaðar MIKIÐ af þremur börnum! Svo ég ætla að finna snið, fara svo í höfuðborgina very soon og kaupa grænt efni og sauma nýjar buxur á gorminn!!! Heart

Svo get ég sagt ykkur að Jón Ingvi átti góðan dag í gær í skólanum og dagvistinni.  Hann var ánægður þegar hann fór af stað í morgun.  Yndislegt. InLove

Eigiði góðan dag, elskurnar og gangi á vegi Æðri Máttar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Lofthrædda dúllan mín, ég var alveg eins en óx upp úr því þegar börnin voru orðin stór. Gott að heyra með Jón Ingva.  Prófaðu að kenna honum að setja hönd á hjartastað, kreppa hana og taka ljós út, steypa því svo yfir sig eins og sturtu og segja "nú vernda ég mig fyrir daginn" þetta virkaði á minn sem átti erfitt í skólanum og ég veit fyrir víst að hann notar þetta enn í dag í vissum aðstæðum. Bros til ykkar.  

Ásdís Sigurðardóttir, 28.8.2007 kl. 10:25

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk. Ég vona að ég vaxi upp úr þessu líka...get reyndar alveg ímyndað mér að það gerist þegar börnin eru orðin stór.
Ég ætla að prófa þetta með ljósið.  Hljómar vel.

Bros tilbaka

SigrúnSveitó, 28.8.2007 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband