12.8.2008 | 18:48
Ásdís mín, og fleira
Mig langar að benda ykkur á ÞESSA færlu hjá henni Ásdísi minni. Kona með stórt á ferðinni hérna.
--
Ég er með ógeðsbragð í kjaftinum...við hjónakornin sátum ein að snæðingi áðan...fengum okkur ægilega fín, kofareykt sveitabjúgu... Jamm, ægilega gott...fyrstu bitarnir...þvílíkt FEITUR matur...og feitur matur fer illa í mína vömb!! Svo nú er ég með klýgju. Mig langaði allra mest að fara fram á wc og stinga puttanum ofan í kok...held ég borði ekki bjúgu í bráð...kannski bara aldrei aftur!
Er smám saman að minnka við mig dýrafituna því hún fer svo illa í mig. Borða magurt....en mér finnst rjómi og ostar bara OF gott...!!! En hver veit, kannski einn góðan veðurdag!
Jamm. Ætla að smella mér í sturtu, fór sko að æfa í morgun og er enn í æfingagallanum... Er sko byrjuð aftur og nú verður kraftur í kögglum! Í kjólin fyrir jólin, sjá tólin fyrir jólin...eða hvernig þetta var... nei, svona í alvöru, þá finnst mér ég svo sem ekkert vera að farast úr fitu...en stundum fæ ég "feituna og ljótuna" og það er ekki gaman. En mest er ég að þessu fyrir líkamann minn, fyrir bakið mitt.
Ok, bæjó, sturta NÚNA!!!
Knús...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.8.2008 | 20:21
sunnudagur og helgarvaktin bráðum búin
Bakvakt til 8 í fyrramálið og þá er ég búin á helgarvakt...á reyndar kvöldvakt á morgun...síðan get ég hafist handa við bakstur. Strákarnir eru búnir að bjóða í afmæli, svo þá er eins gott að standa undir væntingum
Við röltum, hele familien, niður á kaffihús áðan...bara til að koma að lokuðum og læstum dyrum þar! Hélt að það væri opið þar öll kvöld til kl. 22 en svo er greinilega ekki! Verð að skammast í Maríu næst þegar ég hitti hana!!!
Annars röltum við öll saman...nema gelgjan okkar...hún var í fýlu og labbaði ýmist langt á eftir eða langt á undan...en kom samt "með" sem var bara gott. Svo æddi hún á undan heim og Jón Ingvi hjólaði á undan líka, svo þau misstu af stoppi í Shell, en þeir eru með Te&Kaffi-kaffi þar, svo við komum ekki koffíntóm heim! Ljómandi gott kaffi, en takmarkað huggulegt að sitja inni í sjoppu...en allt er hey í harðindum!
Ég er ótrúlega þreytt eftir helgina. Kannski allt í bland; 1. vinnudagarnir eftir ótrúlega yndislegt frí og svo hef ég ekki farið nógu snemma að sofa...smá stjórnleysi í gangi hér á bæ...!
Að lokum, ein mynd fyrir Jónu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.8.2008 | 21:20
Jæja
Nú er ég búin að setja alveg heilan haug af myndum inn á heimasíðu barnanna!! Og ef þið kíkið...endilega munið eftir gestabókinni
Hér er ein af Jóni Ingva og Ólöfu Ósku þar sem þau hlaða vörðu, rétt áður en ekið var niður í Möðrudalinn. og svo ein af okkur hjónakornunum á sunnudagskvöldinu á Neistaflugi.
Einar grillaði í kvella og við fengum okkur bakaðar kartöflur og sveppa-piparosta-rjómalagaða sósu með...slafr...
Jæja...best að koma drengjunum alla leið í las bælos
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.8.2008 | 13:29
Myndir
Ég set vonandi myndir inn í dag eða á morgun (er sko reyndar að vinna....en geri það eftir vinnu...eða eitthvað...) en þetta eru yfir 200 myndir sem ég er að minnka og svona til að geta sett þær allar inn.
Annars allt gott að frétta. Ótrúlega ljúft að koma aftur í vinnuna, en samt stembið að þurfa að drattast á fætur og út úr húsi fyrir 8 á morgnana...en það er náttúrlega samt jól og hátíð miðað við tímann sem ég þarf að fara á fætur á þegar ég verð komin í nýja djobbið...!!!
Lífið er fallegt og ég ætla að njóta þess áfram.
Ást til ykkar allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.8.2008 | 23:31
Smá ferðasaga
Mig langar bara örstutt að láta vita af mér. Ég er hér enn! Hér kemur ferðasagan okkar í örstuttu máli:
Við fórum í viku ferðalag, við familíjan. Keyrðum til Akureyrar þriðjudaginn fyrir versló og gistum í bústað þar um nóttina. Keyrðum svo áfram austur á Neskaupstað daginn eftir, og vorum þar í 5 nætur. Eyddum verslunarmannahelginni sem sagt á Neistaflugi, og í félagsskap fjölskyldunnar. En ef þið vitið það ekki, þá er ég nobbari og stór hluti fjölskyldunnar minnar býr á Nobbó.
Við lögðum svo af stað í átt heim á mánudagsmorguninn. Keyrðum upp á Kárahnjúka og yfir stífluna. Mjög tilkomu mikið að sjá jökulsárgljúfrið hrykalega stórt, djúpt og galtómt!
Frá Kárahjúkum keyrðum við áfram og fórum í kaffi og lummur í Sænautaseli, og það er sko torfkofi sem er veitingastaður. Svakalega heillandi og við stefnum þangað aftur síðar!
Skoðuðum Dettifoss...mér líkar ekki við hæðir eða vatn...og alls ekki þegar það kemur svona saman. Jóhannes hélt fast í hendina á mér...fyrir mig! Mamma hrædda...
Nóttinni eyddum við í bændagistingu á Hóli í Kelduhverfi. Fengum þar góðan mat, ávaxtagraut í eftirmat - sem sló í gegn! Frábær þjónusta á góðu verði.
Á þriðjudagsmorguninn fórum við í Ásbyrgi og Hljóðakletta, stórkostlegt! Hef ekki komið þangað fyrr og þótti mikið til þess koma.
Keyrðum inn á Húsavík, fengum okkur þar rúnstykki í bakaríinu og svo kaffibolla til að taka með á kaffihúsi sem heitir Café Skuld. Sem okkur þótti líka gaman þar sem Einar er af hinni svo kölluðu Skuldarætt hér í bæ.
Keyrðum svo inn á Akureyri. Fengum okkur að borða og röltum smá um bæinn. Spáðum og spekúleruðum hvort við ættum að vera um nóttina eða keyra heim...og enduðum á að keyra heim. Vorum komin heim milli eitt og hálf tvö um nóttina og Ólöf Ósk sagði; "Mamma, úti er gott en heima er BEST!"
Ætla ekki að hafa þetta lengra, set inn myndir very sooooon, og læt ykkur vita. Sumarfríið er búið, vinna á morgun...oooohhhh, það er ekki gaman þegar fríið er búið! Langar að lufsast hérna heima áfram!!
Knús á ykkur öll...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.8.2008 | 10:30
Let's play with some words.
What do you see?
In black you can read the word GOOD, in white the word EVIL (inside each black letter is a white letter). It's all very physiological too, because it visualize the concept that good can't exist without evil (or the absence of good is evil). Now, what do you see?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.8.2008 | 11:54
T-shirt.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.8.2008 | 10:21
Jón Ingvi 8 ára!!!
8 ár síðan þessi yndislegi drengur kom í heiminn. Bræddi hjörtu allra sem í kringum hann voru, og gerir enn.
María sys. var - meðal annara (það var smá ættarmót) - viðstödd fæðinguna og samdi hún ljóð um til drengsins skömmu síðar:
Daginn sem guð okkur gaf þig,
það var daginn sem okkur loks varð það ljóst.
Hversu lífið er í rauninni falleg,
og í heiminum ótal margt gott.
Yndislegri tilfinningu ei tel ég
að í hjarta mér aftur ég finn,
líkt og þegar ég sá þig,
í allra fyrst sinn.
Jón Ingvi þú gjöfina gafst mér,
gjöfina sem mér gerði það ljóst.
Hversu lífið er í rauninni fallegt,
Og í heiminum ótal margt gott.
Ég tárast alltaf þegar ég les þetta. Yndisleg gjöf. Takk María
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.7.2008 | 14:45
Fótboltadómari...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 178744
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar