Leita í fréttum mbl.is

sunnudagur og helgarvaktin bráðum búin

Bakvakt til 8 í fyrramálið og þá er ég búin á helgarvakt...á reyndar kvöldvakt á morgun...síðan get ég hafist handa við bakstur. Strákarnir eru búnir að bjóða í afmæli, svo þá er eins gott að standa undir væntingum LoL

Við röltum, hele familien, niður á kaffihús áðan...bara til að koma að lokuðum og læstum dyrum þar! Hélt að það væri opið þar öll kvöld til kl. 22 en svo er greinilega ekki! Verð að skammast í Maríu næst þegar ég hitti hana!!!

Annars röltum við öll saman...nema gelgjan okkar...hún var í fýlu og labbaði ýmist langt á eftir eða langt á undan...en kom samt "með" sem var bara gott.  Svo æddi hún á undan heim og Jón Ingvi hjólaði á undan líka, svo þau misstu af stoppi í Shell, en þeir eru með Te&Kaffi-kaffi þar, svo við komum ekki koffíntóm heim!  Ljómandi gott kaffi, en takmarkað huggulegt að sitja inni í sjoppu...en allt er hey í harðindum!

Ég er ótrúlega þreytt eftir helgina. Kannski allt í bland; 1. vinnudagarnir eftir ótrúlega yndislegt frí og svo hef ég ekki farið nógu snemma að sofa...smá stjórnleysi í gangi hér á bæ...!

Að lokum, ein mynd fyrir Jónu Wink

Vi� K�rahnj�ka


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG læt mig dreyma um að fara hringinn á næsta ári, þá ætla ég að kíkja þarna uppeftir.  Eigðu ljúfa viku elskan mín.   






Ásdís Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 20:33

2 identicon

á ekki bara að röbb it inn *grát*mér finnst þetta hræðilegt og ég ætla aldrei að skoða þetta ef ég kemst hjá því. Einu sinni var þetta landsvæði stærsta ósnerta landsvæði í evrópu en það er það ekki lengur, það eru íslendingar búnir að sjá fyrir og eiga sjálfsagt eftir að sjá eftir því eftir einhver ár...snöft.

En þrátt fyrir röbbið :) þá sendi ég þér knúss og kossa, það var gaman að koma til ykkar. om ikke så længe bliver det ikke så langt i mellem os.

jóna björg (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 05:28

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Glæder mig rigtig meget, min dejlige veninde

SigrúnSveitó, 11.8.2008 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband