Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
31.3.2007 | 18:39
Mini Pizza
Uuuummm, við gerðum mini-pizzur í kvöldmatinn og það var alveg ljómandi gott.
Við erum 5 (fyrir þá sem það ekki vita)
6 pítubrauð, skorin í tvennt (klofin).
Álegg eftir "smag og behag" (við notuðum pizzusósu, skinku, pepperoni, beikon, sveppi, púrrulauk, mexíkóost, ost...sem fólk valdi eftir smekk á sína pizzu).
Það skemmtilega við þetta er að hver og einn útbýr sína pizzu.
Skellt í ofninn og ETIÐ! Hafði reyndar franskar með líka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.3.2007 | 16:30
Fékk þetta frá tengdamömmu fyrir löngu síðan
Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið , svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.
Kannski opnast dyr hamingjunar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum , en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.
Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.
Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til að við missum það , en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það .
Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti.
Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást ; bíddu þangað til ástinn vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta .
Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum , en það getur tekið líftíð að gleyma einhverjum.
Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa , vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt .
Ekki fara eftir útliti , það getur blekkt . Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið, finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.
Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.
Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2007 | 14:53
Góðan laugardag
Fyrst ætla ég að halda áfram að vekja athygli á ÞESSU HÉRNA.
Jæja, pabbi fékk að þrífa upp ælu í gærkvöldi meðan hann passaði fyrir mig. Jón Ingvi ældi yfir allt rúmið og var voða lasinn greyið. En í morgun var hann magaverkjalaus og ógleðin horfin. Hins vegar er hann með beinverki og hita...vonandi gengur þetta fljótt yfir þar sem hann á að fara í aðgerð á þriðjudaginn...nefkirtlatöku og amk ástungu á hljóðhimnurnar.
Annars allt gott. Ekta letidagur...en verð víst að gera eitthvað í útældu sængurveri og laki...ojojoj...
Mig langar að deila með ykkur vísu, sem ég hef reyndar áður birt á blogginu mínu (kannski samt þessu gamla...)...:
Ég átti blíðan og góðan mann
ég ástina í hans faðmi fann.
En alkohólisminn það hann kann
að gleðja aldrei nokkurn mann.
Mikið var ég hrædd og ein
og fannst ég vinna öllum mein.
Ljóssins faðir þá komst þú inn
og fel ég þér nú anda minn.
Góð vísa er aldrei of oft kveðin, stendur einhversstaðar
Ljós & friður til ykkar þarna úti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2007 | 00:26
Hunter
Stelpur (Erla, Elín og Sigþrúður!!)!!! Takk fyrir frábært kvöld. Æðislegt að hitta ykkur og eiga með ykkur notalega kvöldstund.
Hér koma nokkrar myndir af Hunter...en mér tókst því miður ekki að finna "réttu" myndina...engin mynd af manninum, í gallabuxum, "vel kýldum"...!!
Elín, manstu eitthvað eftir töffaranum? Ég get lofað þér, hann VAR töffari!!!
hahaha, og hárið á henni...stórkostlega yndislegt!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.3.2007 | 00:12
Mexíkönsk súpa
(f. 4-6...góð upphituð svo allt í lagi að búa til meira...)
2 laukar
4 hvítlauksrif - pressuð
4 msk olía
2 ds niðursoðnir tómatar
1 ten. kjúklingakraftur + 1/2 ltr vatn
1 ten. nautakjötskraftur + 1/2 ltr vatn
1 ltr tómatsúpa (fæst í Hagkaup í fernu)
1 msk kóríander duft
1½ tsk chili duft
1½ tsk cayannepipar
Laukur skorinn og steiktur í olíunni í stórum potti. Hinu blandað saman við.
Látið malla í 2 tíma.
Smakkað til, má setja meira krydd eða hvítlauk.
1 grillaður kjúklingur tekinn af beinum og settur út í ca ½ tíma áður en borið fram.
Borið fram með sýrðum rjóma, nachos og rifnum osti.
Þetta fékk ég að borða í kvöld. Hreinasta SNILLD!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.3.2007 | 17:09
Draumurinn minn...
...nú bara að geta hlaupið aftur...mér er nokk sama um maraþonhlaup hvort sem er á jörðu niðri eða í geimnum.
Ef ég á eftir að geta hlaupið þá verð ég mega lukkuleg. En mér er sagt að það geti tekið einhverja mánuði eftir liðþófaaðgerð á hné...vona það besta...
Maraþonhlaup í geimnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2007 | 14:22
3½ árs skoðun
Fór með Jóhannes í 3½ árs skoðun í vikunni. Mér fannst frekar skondið í málþroskaprófinu hvað hjúkkan virtist bíða eftir "rétta" svarinu. T.d. spurði hún: "Hvað gerirðu þegar þú ert þreyttur?" Jóhannes svaraði; "Loka augunum" og hjúkkan beið...og sagði svo; "Ferðu ekki að sofa?" "Jú". Svo var önnur spurning: "Hvað gerirðu þegar þér verður kalt?" og það stóð ekki á svari; "Set á mig kragann"!! Og enn beið hjúkkan eftir "réttu" svari...svo leit hún á mig og sagði; "Þetta er allt í lagi". Önnur spurning var; "Hvað gerirðu þegar þú ert svangur?" "Fer að borða, stundum heitan mat en stundum kaldan mat".
Svo bað hún hann að benda sé á barnið í gulu fötunum...það var mynd með krökkum í gulum, grænum, rauðum og bláum fötum. Þá sagði Jóhannes; "Ég ætla fyrst að sýna þér barnið í grænu fötunum" (Grænt er uppáhaldsliturinn hans ). Hann fer sínar eigin leiðir, þessi ungi maður. Svo sýndi hann henni líka barnið í gulu fötunum!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2007 | 11:38
Loforð Guðs...
...sem ég fékk í sms frá vinkonu minni:
Eitt af loforðum Guðs.
Ég hef aldrei lofað að brautin sé bein,
og gullskrýddir vegir alla leið heim.
Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar,
á göngunni til himinsins helgu borgar.
En lofað ég get þér aðstoð og styrk,
og alltaf þér ljós þó leiðin sé myrk.
Mundu svo barn mitt að lofað ég hef,
að leiða þig sjálfur hvert einasta skref.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2007 | 10:17
HÆ ÖLL
Mig vantar ýmislegt og fjárhagurinn leyfir víst ekki "allt nýtt" þó það sé draumurinn (hvern dreymir svo sem ekki um það). Þætti mér vænt um ef þið vitið um fólk sem er að endurnýja innbúið eða bara eiga hluti sem það vill losna við, þá má alveg benda á mig sem góða hirðirinn, hvort sem hlutirnir eru gefins eða seldir (ódýrt). Strákurinn minn er 9 ára og stelpan 3 ára.
Eftirfarandi vantar mig sérstaklega:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2007 | 09:49
Afmælisbarnið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar