Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006
3.12.2006 | 22:36
Æðri máttur...
Ég prófaði að slá inn leitarorðinu "Higher power" á google.com og þetta kom m.a. upp...
og þetta...
Það sem mér féll best við var þetta...
og þetta...
...en ég ætla að fara að sofa...og vakna kl. 6.00 og stökkva eldhress í sturtu...og bruna svo í höfuðborgina...góða nótt...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.12.2006 | 22:33
Næring fyrir sálina
Fengum 8 yndislega gesti í heimsókn. Sannkölluð næring fyrir sálina að eiga samverustund með þessu fólki. Góður matur, góður eftirréttur (enn ein snilldarkakan...uppskrift kemur síðar...þegar ég fæ hana), góður fundur, já, bara stórkostlegt kvöld.
Börnin fóru til Gurríar og voru þar í dekri. Þvílíkt ánægð og glöð börn sem komu heim með málaðar piparkökur með sér. Afrakstur kvöldsins. Elsku Gurrí, ástarþakkir
Takk, takk, takk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2006 | 14:09
Fíllinn
Ég bara má til með að deila með ykkur sögu sem ég las á blogginu hjá einni vinkonu minni. Mér finnst hún alveg yndisleg.
Sagan var um stóran fíl sem var bundinn við pínulítinn trjábút. Lítill drengur var á göngu með föður sínum og spyr pabba sinn hvers vegna fíllinn slíti ekki spottann eða rífi upp drumbinn. Fíllinn var bæði stór og sterkur og hefði hæglega geta slitið sig lausan, en af einhverri ástæðu gerði hann það ekki. Faðirinn sagði drengnum frá því að þegar fíllinn var bara lítill var hann bundinn við þennan sama staur. Hann rykti og togaði í spottann og reyndi allt hvað hann gat til að losna en ekkert gekk. Þá var spottinn sterkari en litli fíllinn. Litli fíllinn gafst upp og sætti sig við örlög sín. Hann stækkaði og varð stór og stæðilegur fíll. En þrátt fyrir að hann stækkaði svo mikið að hann hefði hæglega geta slitið sig lausan gerði hann það aldrei. Það var búið að sannfæra hann um að hann gæti það ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2006 | 18:25
Jæja
Þá erum við komin heim aftur. Vá, þetta var alveg æðisleg ferð. Á Kjalarnesi hittum við Lóu og Anders, og líka Írisi og Þóri. Frábært alveg. Lóa ætlar að kíkja í heimsókn þegar Ingó er kominn, en þau ætla að stoppa fram yfir áramót. Anders og Ásdís koma svo 21. des og verða fram yfir áramót líka. Íris og Þórir eru flutt heim...vorum að sjá þau í fyrsta sinn síðan við fluttum...en sjáum þau vonandi sem fyrst aftur. ooohhh, ég elska þessa vini okkar.
Svo var líka æði í Kópavoginum. Þær mæðgur, Sigga Bára (tengdamúttan mín) og Sigga (tengdaamman mín) eru svo æðislegar. (Set inn mynd af okkur um leið og ég finn snúruna til að flytja myndir yfir í tölvuna...) Svo var auðvitað fullt af öðrum úr fjölskyldunni á svæðinu. Bara frábært að hitta alla.
Svo ætlar tengdamúttan mín að mæta hérna um næstu helgi og ráðast í fiskibolluframleiðslu. Ekki amalegt. Ætli ég láti ekki hana og Einar um það og laumi mér út í bílskúr og læri. Nota tækifærið þegar Einar er loks í helgarfríi!!!
Tengdamúttan mín bakaði geggjaða köku, sérstaklega með mig í huga. Sykurlaus og svakalega góð . Hún ætlar að lauma uppskriftinni til mín og þá kannski skelli ég henni hérna inn, svona til að fleiri geti notið hennar...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.12.2006 | 09:31
Góðan daginn
Jón Ingvi tók daginn snemma, að vanda. Var vaknaður kl. 5:eitthvað og spurði hvort það væri ekki kominn morgun. Mér tókst að telja honum trú um að það væri nótt, til kl. 6...en hann sofnaði ekki aftur. Kl. 6 gat ég svo ekki haldið honum lengur og hleypti honum inn í Ólafar Óskar herbergi til að horfa á Pétur Pan (bíómyndina). Ólöf Ósk var inn hjá mér í nótt (horfði á Eric Brockovich með mér). Það er gott að hafa sjónvarp í öllum herbergjum (og ekki í stofunni), svo þegar Jóhannes vaknaði kl 7 þá fór hann að horfa á Pétur Pan (teiknimyndina) inni í sínu herbergi!! Ég gat dormað inni í herbergi á milli þess sem krúttin mín komu og vantaði eitthvað. Þegar Einar svo kom heim af næturvakt kl 8 þá skreið ég á fætur og leyfði honum að taka við að verma bælið
Það er töluvert mikill munur á veðrinu á austfjörðum og vestfjörðum þessa dagana eins og þessar fréttir frá Súðavík og Reyðarfirði sýna. En náttúruöflin láta ekki að sér hæða, hvor sem um er að ræða snjó eða rigningu.
Svo er það Kjalarnes og Kópavogur eftir hádegið. Ætlum að leggja í´ann milli eitt og hálf tvö. Koma við á opnu húsi í Gler í Bergvík (hjá Sigrúnu glerlistakonu), skoða muni, sjá glerblástur og drekka kaffi í góðra vina hópi. Oooohhh, ég hlakka til.
Svo er ferðinni heitið í Kópavog, í pönnsukaffi til Siggu ömmu. Rúsínuafi (móðurafi Einars) hefði átt afmæli í dag, en hann lést í nóvember á síðasta ári, tæpum mánuði fyrir níræðisafmælið sitt. Svo nú ætlar stórfjölskyldan að hittast. Alltaf gaman að því þegar fjölskyldan hittist.
Já, þetta er svona það sem ég hef að tjá mig um núna. Er að spá í að fá mér morgunmat og kannski taka aðeins til í eldhúsinu...það er ekki sérlega fínt þar núna...EN ég hengdi upp seríur í eldhúsinu í gærkvöldi og það kemur svona líka ægilega vel út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2006 | 21:01
Julekalender...
Börnin eru búin að sitja freðin yfir "Julekalenderen" á DR1 og TV2. Þau fengu send dagatöl frá Danmörku og sælan er mikil. Gaman að "hitta" Pyrus, danska jólaálfinn, aftur. Sælir endurfundir. Reyndar leist Jóhannesi ekkert á Pyrus...held reyndar að það hafi verið þreytan sem réðu hvað mestu þar um. Hann var alveg búinn á því og skreið upp í, upp úr kl átta. Litli molinn minn.
Á morgun verður meira um endurfundi. Við ætlum að kíkja á Kjalarnesið, þar sem kona nokkur að nafni Sigrún, með opið hús í glergalleríinu sínu. Börnin hennar tvö, Lóa og Anders eru stödd hjá henni. Þau eru hluti af okkar stóra og kæra vinahópi frá Dk. Lóa kom í gær og verður í 5 vikur, en Anders kom bara yfir helgina til að hjálpa mömmu sinni með opna húsið. Það verður gaman að hitta þau, og gaman að skoða listaverkin hennar Sigrúnar. Ég kom í galleríið hennar í haust, þegar Ásdís (konan hans Anders) var stödd hjá tengdamúttunni sinni. Rosa flott. Já, ég hlakka til.
En hvað segiði um nýja lookið á síðunni minni? Mér finnst það sjúklega geggjaðslega flott. Raggý, er ok að ég nota myndina...eða á ég að finna aðra sveitamynd?
Jæja, ætla að fara að glápa á Erin Brockovich á DR1 og hafa það náðugt. Einar er á kvöldvakt og fer svo beint á næturvakt...svo ég kúri ein í nótt...nema einhver af ungunum þremur skríði upp í til mín. Hver veit?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2006 | 12:57
Af rýmingarsölum og öðru...
Gömul jólasaga sem stendur fyrir sínu hehehe...
Lúxus á okkur, við hjónakornin bæði heima í dag og rómantíkin blómstrar auðvitað Við ætluðum í rómantíska verslunarferð í hina nýju verlsun Kaskó, sem var að opna í dag. Ekki til að næla okkur í opnunartilboð heldur vegna þess að íssápurinn var tómur. Ekki veit ég hvort allir ísskápar á Akranesi voru jafn tómir og okkar...eða hvort opnunartilboðið voru svona freystandi...ég held það hafi verið það seinna...amk var enginn innkaupavagn laus...og við sáum biðröðina og hlupum í burtu. Það er ekki þess virði að standa í biðröð í 1½-2 tíma eins og fólk gerði líka í síðustu viku þegar Nettó hélt rýmingarsölu á sama stað...maður skildi ætla að frystikistur bæjarbúa séu fullar...
...við fórum í Húsasmiðjuna og keyptum seríu í gluggann, krökkunum finnst hálftómlegt þegar þau sá gluggana hjá öllum hinum (aldrei var kvartað yfir þessu í DK...). Svo serían er komin í hús, vantar aðeins að ég hengi hana upp.
Sóttum Ólöfu Ósk í skólann, hún er með magapest
Fórum í Einarsbúð (þar var ekki biðröð út úr dyrum) og keyptum það sem okkur vantaði nauðsyndlega...meðal annars hamborgara og franskar til að borða í hádeginu...smá gúff í gangi...
Jæja, best að fara að læra meira...ég er búin að senda eina umsókn um vinnu af stað!!! Svo er bara að láta EKKI staðar numið hér heldur halda ótrauð áfram. Ég veit að það vantar helling á Landspítalann...en ætla að líta í kringum mig hérna nær heimabyggðinni fyrst um sinn...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2006 | 08:05
Rok
Ég lagði ekki í að keyra í morgun. Fór inn á Veðurkort Vegagerðarinnar kl. 6.15 og sá að rokurnar á Kjalarnesinu voru 44 m/s...svo ég hringdi í vinnuna og sagði að ég kæmi ekki. Svo núna kl. 8.00 fór ég aftur inn að kíkja...bara í gamni og þá hefur bara snarlægt, rokurnar komnar niður í 24m/s!!! Þá fæ ég samviskubit yfir að vera heima...þó það taki því varla að æða af stað núna...svona er ég...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 179122
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar