Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006
10.12.2006 | 14:01
Sunnudagur
Fengum góða gesti í hádegismat. Tengdapabbi og Jóna komu við á leiðinni heim, en þau búa á Akureyri. Yndislegt að hitta þau.
Einar og Jóhannes voru að leggja af stað í höfuðborgina, ætla að hjálpa tengdamúttunni minni með einhverja hluti, bora og hamra. Enda tók Jóhannes með sér öll sín verkfæri og var mjög spenntur yfir þessum framkvæmdum! Jón Ingvi nennti ekki með svo Einar keyrði hann heim til vinar síns. Ólöf Ósk er heima og nennti ekki með í bæinn. En hún heldur sig mest inni hjá sér...svo nú hef ég enga afsökun fyrir því að fara ekki að læra. Er meira að segja búin að ræða við manninn á efri hæðinni og biðja um aðstoð við að koma mér að verki!!
Þannig að ég kveð ykkur að sinni en kem örugglega inn aftur í dag eða á morgun!!!
Hef ekki enn fundið snúruna til að setja myndirnar inn í tölvuna svo það er ekkert nýtt í myndamálum því miður. En vonandi kemur þetta fljótlega, verð sjálfsagt að fjárfesta í nýrri snúru...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2006 | 13:45
Fiskibolluframleiðsla
Elskuleg tengdamúttan mín er mætt á svæðið. Tilkynnti okkur fyrir nokkru að hún hefði hugsað sér að koma og steikja fiskibollur með okkur (eða með Einari...þau sjá um þetta). Það brutust út mikil fagnaðarlæti, því eins og Ólöf Ósk segir þá eru fiskibollurnar í skólanum góðar en ömmubollur er LANGBESTAR!!!
Ég þykist ætla að læra...get ekki tekið mig saman í andlitinu. Veit ekki hvar ég á að byrja. Er búin að senda mail á eina góða konu í Danmörkinni og biðja um hjálp með hluti sem flækjast fyrir mér...Svo nú er að bíða og sjá...Eða ekki alveg, verð náttúrlega að gera eitthvað strax og svo bara snúa mér að öðru þegar hjálpin berst. Það er af nógu að taka, margt sem ég á enn eftir að lesa upp...en þetta hefst allt.
Best að koma mér að verki!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2006 | 10:26
Afmælisbarn dagsins
Afmælisbarn dagsins er frændi minn, Alli Scheving. Alli er akkúrat mánuði yngri en ég og er því 36 ára í dag. Elsku Alli, til hamingju með afmælið. Vona að dagurinn verði góður.
Ég verð að rifja upp smá minningar um okkur Alla. Við vorum líklega 4-5 ára þegar við kynntumst. Hulda, mamma Alla og Jón Þór, elsku stjúpi minn, eru systkini, svo við kynntumst eftir að mamma og Jón Þór fóru að vera saman, þegar ég var 4 ára.
Alli bjó í Hafnarfirði en kom alltaf í sveitina til afa síns og ömmu á sumrin. Við Alli náðum strax vel saman og brölluðum ýmislegt næstu mörg árin. Alli var fyrsti kærastinn minn, það "samband" byrjaði sennilega sumarið áður en við urðum 6 ára, og hélst sumarlangt, á hverju sumri þar til við vorum að verða 15 ára. Smá kelerí í hlöðunni eða úti í móum. Ekta sveitarómantík
Við Alli gerðum margt sem ekki mátti. Við laumuðumst upp á fjárhúsþak í tíma og ótíma, þar máttum við ekki vera svo þar gátum við setið löngum stundum og kjaftað um heima og geima. Alli var alltaf mikill brandarakall og oftar en ekki veltist ég um af hlátri. Hann kunni alltaf svo marga brandara. Sumir þeirra lifa enn í minningunni og hafa gengið í arf til barnanna minna.
Okkur þótti ofsalega gaman að stríða systrum okkar (sjá á sveitamyndinni hér fyrir ofan - þar erum við Alli og svo systur okkar og Jón Þór). Það var sennilega ekki til sá hrekkur sem við gátum ekki fundið upp á.
Einu sinni tókum við allt sandkassadótið þeirra og grófum það niður í moldarbarði úti á hól. Við höfðum þó vit á að merkja staðinn...en ekki nógu vel því um nóttina gerði rok og merkin okkar fuku. Við fundum aldrei aftur dótið og urðum að játa verknaðinn...
Einu sinni stálum við eggjum úr hænsnahúsinu og köstuðum í hlöðuvegginn. Garðar, pabbi Alla, komst að þessu og neyddi okkur til að fara inn, játa verknaðinn og biðjast afsökunar...ojojoj, það var ekki auðvelt, en við gerðum það samt.
Svona mætti lengi telja, og ég gæti haldið endalaust áfram. En ég ætla að láta staðar numið. Sumt af hrekkjunum er ekki prenthæft...
Ég hugsa með kærleika og hlýju til allra sumranna sem við Alli áttum saman í sveitinni. Öll kvöldin sem við látum í netinu, sem við höfðum fest á baggasleðann og gert okkur dýrindis hengirúm, þar gátum við legið fram eftir öllu og spjallað. Alveg þangað til mamma eða Maja (amma Alla) eyðilögðu stemninguna og kallaði að það væri kominn háttatími!!!
Já, those were the days my friend
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.12.2006 | 10:03
Læri læri...
ekki lambalæri sko, heldur lærdómur. Hef ekki eirð í mér til þess...en þarf að finna hana (eirðina). Kannski ráðlegt að ræða við manninn á efri hæðinni um þetta?!?! Ég veit amk að ég myndi benda öðrum á þann kost!!
Annars náði ég að klára jólakortin áðan, rétt í þann mund sem elskulegur eiginmaður minn var að skreppa niður í bæ, svo ég gat skellt á hann bunkanum. Finnst fínt að hann sjái um að póstsetja bunkann, þar sem ég sé um allt annað sem við kemur þessum kortum. Góður díll. (myndi heldur ekki vilja hafa það öðruvísi!!)
Var í sambandi við Danmörku áðan, nánar tiltekið skólann, og komst að því að það er amk ekki frí eða veikindi sem hafa orsakað það að Merete (international koordinator) í skólanum hefur ekki svarað mér varðandi ýmislegt. Nú verður sparkað laust í rassinn á henni og þá gerist vonandi eitthvað. Hún hefur sjálfsagt haft í önnur horn að líta...en ég vil samt athygli!! Og hana nú!!! Mig vantar t.d. upplýsingar varðandi prófið...jamm, farin að spá mikið í prófið, enda nálgast það óðfluga. Sennilega verður prófið 22.-24. janúar....birrrrr...ég skelf eins og hrísla við tilhugsunina...er búin að láta konuna sem mun prófa mig vita af mínum miður skemmtilega prófkvíða. Svo hún veit afhverju ég tek með mér fötu...(ekki vil ég æla á gólfið á skrifstofunni hennar...). En nóg um það. Fyrir síðasta próf náði ég að setjast í sólina og ræða við manninn á efri hæðinni og meditera...og viti menn, ég meira að segja varð svo afslöppuð þarna nokkrar mínútur í próf að ég sofnaði!!! Já, svona virkar þetta. Stórkostlegt.
En nú ætla ég að hætta þessu bulli í bili. Elska ykkur, krúttin mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2006 | 22:09
hihihi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.12.2006 | 21:35
Ljúfa líf, ljúfa líf
Við áttum yndislegt kvöld í gær. Borðuðum ekta íslenskan mat, steiktar kótelettur í raspi!! Mikið svakalega er íslenskt lamb rosalega gott á bragðið. Það er mjög langt síðan við höfum gert þetta, að borða saman tvö þegar börnin eru komin í bælin. Við gerðum þetta á löngu tímabili alla sunnudaga. Það var svona datingkvöld heima í stofu. Það gaf okkur rosalega mikið. Undanfarið hefur ekki verið tími í það, Einar oft að vinna eða að sofa fyrir næturvakt eða á fundi, svo við höfum ekki haft mörg kvöld saman í haust. En það á eftir að breytast, og þá kemst allt í fastar skorður aftur. Og hver segir líka að þetta verði að vera á sunnudögum?!
Annars er þetta búinn að vera langur dagur í dag. Ég svaf reyndar óvenjulengi eða til kl 6.45. Einar var heima svo ég þurfti ekki að koma Jóhannesi á fætur og í leikskólann. Ljúft að geta tekið því rólega...var nú samt næstum því búin að gleyma kaffinu mínu á símaborðinu...
Ég var svo að vinna til kl 15.50. Ég fékk slatta af hrósi í dag, hjúkkunum finnst ég vera að standa mig rosa vel Það var voða gaman að fá að heyra það. Mér finnst þetta líka svo gaman.
Eftir vinnu náði ég í Ólöfu Ósk í Mosó, við fórum og keyptum nokkrar jólagjafir og skelltum okkur svo á fund. Hittum Guðrúnu og Berglindi. Yndislegt.
Svo var bara að bruna beint heim svo Einar kæmist á fund. Já, nóg að gera. En nú sofa ungarnir, og ég held ég halli mér líka...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.12.2006 | 06:46
Húrra

Í dag eru eigum við sem sagt 10 ára kærustu-afmæli Við ætlum að fagna því með rómantískum dinner þegar ungarnir eru farnir í rúmið í kvella. Gaman að því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
5.12.2006 | 20:26
jamm og já
Ég hef svo sem lítið að skrifa, en vil ekki valda tryggum lesendum mínum vonbrigðum með því að þegja
Ég fór náttúrlega í vinnuna í dag. Svei mér, fljótt skipast veður í lofti...held barasta að ég gæti alveg unnið á geðdeild. Maðurinn minn hefur svo sem löngum sagt að það sé þar sem sé mest þörf fyrir mig, fyrir fólk með mína reynslu og þann boðskap sem ég gæti boðið upp á (if you know what I mean...). Og það sama sagði deildarstjórinn "minn" í dag...að það vantaði "svona fólk" í geðið... Ég sem var að tapa gleðinni á læknafundi fyrir stuttu síðan yfir hvað læknavísindin stundum vilja hafna öllu andlegu...og hellti mér yfir leiðbeinandann minn á eftir. Hún kinkaði kolli og sagði að það væri stundum "frustrerandi" að vera "bara" hjúkrunarfræðingur... EN deildarstjórinn minn sagði að ég mætti sko alveg segja fólki frá mínu hjartansmáli, láta fólk vita af öllum úrræðum sem finnast, en samt ekki deila eigin reynslu!! Svo það var nú aldeilis gaman að fá að vita það, nú get ég aldeilis frelsað heiminn...eða þannig... Ef ég get kveikt von í bara einu hjarta á meðan ég er þarna þá er mikið unnið!!!
Jólastússið er komið langt á veg, vantar ekki margar jólagjafir, og jólakortin eru skrifuð. Svo nú er eiginlega ekki annað eftir en að pakka jólagjöfunum inn og senda þær af stað. Og náttúrlega jólakortin...það er víst hægt að kaupa frímerki með lími á svo ég þarf EKKI að sleikja fimmtíu og eitthvað jólakort!!! Gaman að því.
Jamm og já, ætla að spjalla aðeins við hana Lisbeth á skypinu, skutla mér svo í bað og í bælið. Annað kvöld ætlum við hjónakornin svo að borða saman góðan mat þegar börnin eru farin að sofa...meira um það á morgun
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2006 | 22:06
Snilld frá Sollu
Jólakakan hennar Sollu
200 g döðlur lagðar í bleyti í 15 mín til að mýkja þær
2 dl agave síróp
1 dl kókosolía, látið renna smá heitt vatn á krukkuna til að mýkja olíuna.
3-4 egg
150 g spelt (t.d fínt og gróft til helminga)
75 g kókosmjöl
2-3 msk kakóduft
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk kanill
1 tsk allrahanda
1/2 tsk malaðar kardimommur
1/2 tsk vanilluduft
1/2 tsk sjávarsalt
1 dl rúsínur
100 g döðlur smátt saxaðar
50 g möndlur gróft saxaðar
50 g heslihnetur
50 g sesamfræ
50 g sólblómafræ
1 msk rifið appelsínuhýði
1 msk rifið mandarýnuhýði
Setjið 200g döðlur, agave og kókosolíu í matvinnsluvél og maukið.
Ef þið notið egg þá bætið einu útí í einu.
Blandið restinni af uppskriftinni saman í skál og blandið svo agaveblöndunni
varlega saman við með sleif.
Setjið í smurt form og bakið í 180° í um 1 klst.
Svo er hér alveg brilliant konfekt
1 bolli furuhnetur
250 g rúsínur
2 msk kakóduft
Allt sett í matvinnsluvél og blandað vel saman.
Búa til kúlur og má velta uppúr hreinu kakódufti
Geymist best í ísskáp eða frysti.
Enjoy
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2006 | 18:27
Laugardagskakan
Hér er kakan sem tengdó bakaði: Jólakaka með ensku ívafi. Og eins og ég sagði, snilldarlega góð með þeyttum rjóma. ooohhhh, ég fæ vatn í munninn. Saðsöm og góð. Svo fæ ég vonandi fljótlega uppskriftina frá Guðrúnu.
Dagurinn í dag byrjaði kl 5.55, rauk í sturtu og svo af stað til höfuðborgarinnar kl. 6.45. Það var mikið að gera í vinnunni í dag, ég var með minn hóp svo ég fúnkaði eins og hjúkka sem var bara fínt. Held þær hafi verið fegnar að hafa mig, þó ég megi ekki nýtast eins og starfskraftur...uss, sumt fær ekki að fréttast út í skólann...
Kom heim 16.15, við borðuðum í hvelli einhvert snart og svo upp í skóla í jólaföndur. Vorum að koma heim, krakkarnir eru að horfa á jóladagatalið í sjónvarpinu (DR1 að stríða okkur svo það var RUV sem þau kíktu á í staðinn). Nú er bara að koma ungunum í bælið, þar sem það er hússtjórnarfundur hjá mér kl 20.30...og svo ætla ég BEINT í bælið á eftir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 179122
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar