Leita í fréttum mbl.is

Yndislegt kvöld

Aðfangadagskvöld liðið.  Yndislegt kvöld.  Mikil spenna í loftinu, sérstaklega hjá Jóni Ingva og Ólöfu Ósk.  Jóhannes var bara svo hissa og glaður í hvert sinn sem hans nafn var lesið upp og sagði með einlægri undrun og gleði; "Handa mér?!".  Yndislegt alveg. 
Þegar búið var að opna alla pakkana, og það tók drjúga stund, amk 2 tíma, þá varð spennufall.  Jón Ingvi sagði, "Núna get ég farið að leika mér", greinilega dauðfeginn.  Það var ótrúlegt að upplifa muninn.  Alger ró.

Kvöldið var yndislegt.  Frábært að fá að hafa pabba, tengdó og ömmutengdó með okkur.  

Núna er alger afslöppun (nema fyrir meltingafærin...endalaus vinna fyrir þau um jólin...).  Pabbi farinn á Selfoss, og Ólöf Ósk fór með honum og ætlar að vera hjá Hörpu í nótt. Strákarnir mínir þrír í sitt hvoru herberginu með sitt hvora myndina að glápa á!! Gaman að því.  Og hér sit ég og blogga og gæli við það hvort ég ætti kannski að taka upp eina skólaskræðu...veit að ef ég geri það þá verður friðurinn úti...

Image hosting

Á morgun er svo fyrsta jólaboðið á þessum jólum.  Þar verður dansað kringum jólatréð og mér er sagt að jólasveinar muni mæta...en skyldi jólatréð dansa þar?  Efast um það. 
Veit ekki hvort ég næ að blogga alveg á næstunni, við förum að heiman um hádegi á morgun, gistum svo hjá tengdó, svo fer prinsessan á bænum til Dk snemma morguns 27/12.  Þá æðum við á Selfoss, til Elínar og svo til Bryndísar og Sigga, svo fáum við slatta af fólki í mat 28/12.  Gaman að því.  Nóg að gera hjá okkur.  En svo er líka frí 29/12...nema hjá Einari því hann fer að vinna, kvöldvakt.  Svo morgunvakt 30. og svo jólaboð beint eftir vinnu...nóg að gera.  Gamlárskvöld verður rólegheitakvöld...ég hef amk ekki frétt annað. 

Verð að segja ykkur, rétt í þessu hringdi síminn hjá mér, og það var útlenskt númer...byrjaði á +44...ég náði ekki að hugsa hvað þetta gæti verið...en þá voru þetta Andy og Marylyn, vinir mínir sem ég kynntist í Englandi 1992!!!  Við höfum verið í bréfasambandi síðan, og aðeins talað saman í síma einu sinni þennan tíma og það eru ca 12 ár síðan...eða 13!!!  Vá, hvað ég varð hissa!!!  Og glöð!!  Ooohhh, ég vona að þau eigi eftir að heimsækja okkur, það væri svo gaman.  Yndislegt fólk.  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ elskurnar

Vá Hún Anna Móberg var sko ekk svona róleg þó er hún árinu yngri. Það svifu bara pappírsumbúðirnar um alla stofu þegar henni var réttur pakki og svo var bara beðið um næsta.  Svo kom bara skeifa þegar allt var búið.  ÆS hins vega sagði alltaf þegar hann opnaði pakka það þetta væri akkúrat sem hann óskaði sér. Við erum búin að vera ræða ansi mikið núna síðustu vikur að mann eigi að vera þakklátur fyrir það sem mann hefur og það sem mann fær. 

En þúsund þakkir fyrir okkur og segðu ÓÓ að ég sé svo stolt af því hvað hún sé flínk að prjóna. Hlakka til að geta sagt öllum að 11 ára frænka mín hafi nú prjónað þetta.

Jæja hafið það gott

Heyrumst 

María Katrín (IP-tala skráð) 25.12.2006 kl. 20:30

2 identicon

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Hæ Ísak, og takk sömuleiðis

María, ég skila þessu til hennar.  Hún var líka mjög stolt og ánægð að gefa eitthvað sem hún hafði sjálf búið til. 
hehe, já ég var búin að frétta af Önnu Móberg...litla skrímslið gaman að þessum elskum.  Þau eru jafn misjöfn og þau er mörg, og öll yndisleg.
Elska þig, litla sys. 

SigrúnSveitó, 25.12.2006 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband