Leita í fréttum mbl.is

Sumarfrí!!!

Jæja, langt síðan ég hef bloggað. Mamma saknar blogganna minna, svo ég ætla að sjá hvort andinn komi yfir mig aftur :)  Kannski aðrir hafi gagn og gaman af bullinu í mér líka...

Ég er sem sagt komin í sumarfrí, og það í heilan mánuð! Frá 23. júní - 23. júlí!! Einar er sofandi eftir síðustu næturvaktina sína, annars er hann kominn í frí til 30. júlí.

Ég og Jóhannes smelltum okkur í sund um hádegisbil. Það gerist ekki oft að yfir mig kemur sterk löngun til að fara í sund, en ég ákvað að akta á þessa löngun í stað þess að setjast niður og bíða þess að hún liði hjá Tounge Það var svooo notalegt hjá okkur, og drengurinn svo flinkur. Hann var í sundskóla einu sinni í viku í allan vetur. Hjá fyrrum ólympíuparanum Röggu Run, sem er frábær sundkennari og þjálfari. 

Eftir sundið bauð ég tappanum upp á ís og það var bara lukka. Notalegt að eiga svona stund bara við tvö. Hinir ormarnir eru út og suður, með vinum sínum. Jóhannes er hins vegar ákveðinn í að gera allt með mér meðan ég er í fríi...spurning hvað tekur hann marga daga að verða leiður á mér...Whistling

Annars er prjónasköpunin að ráðast á mig, og er ég með kollinn fullan af allskyns hugmyndum, sem ég hins vegar ætla ekki að viðra hér! Set inn myndir af "the collektion" þegar hún er tilbúin í sölu...thíhí....LoL

Jæja, ætla að skutla tappanum á golfvöllinn!! (Hann er strax orðinn leiður á mér....hoho...)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband