Leita í fréttum mbl.is

Jæja þá

Ég er ekki að standa mig í blogginu þessa dagana, vona að fólk sakni þessi ekki of mikið. Finnst ég einhvernveginn ekkert hafa að segja.

Get auðvitað sagt ykkur endalaust hvað ég er ánægð í vinnunni...en held þið nennið ekkert að lesa það dag eftir dag...Grin

Ég gæti líka sagt ykkur að ég elska lífið mitt, en ég held að þið hafið komist að því af því að lesa bloggið mitt í smá tíma...Tounge

Úff...ég gæti svo sem alveg sagt ykkur hvað dóttir okkar elskuleg er að drepa mig úr gelgjugangi. Alveg sama hvað ég segi...þá urrar hún, segir mér að ég sé í fýlu, þakkar mér fyrir að kalla sig aumingja og ég veit ekki hvað. Ég vona innilega að þetta sé mjöööög tímabundið hormónakast sem líði hjá á nokkrum dögum...hún er grínlaust með horn og hala...Devil

Bænin mín þessa dagana, sú mikilvægasta, er einföld; "Góði Guð, hjálpaðu mér að elska hana eins og hún er"...því ef ég geri það, þá þarf ég ekki að pirrast eða urra á móti, umburðarlyndi og kærleikur eru það mikilvægasta í öllum samskiptum og það á sannarlega vel við þegar gelgjur í ham eru annars vegar...LoL

Jamm. Annars er ég að fara að vinna í kvella og fyrramálið. Svo þið þurfið ekki að búast við bloggi frá mér næsta sólarhringinn...

Annað. Vitiði bara hvað?!!! Ég fór að hlaupa í gær, alsæl með það. Hljóp fyrst 2 hringi síðan 1½ með labbi fyrir, á milli og í lokin. Ánægð með frammistöðuna, alls 1267 metrar sem ég hljóp. Ég finn fyrir hnénu en vona að það lagist fljótlega...að það sé bara af því að ég er nýbyrjuð að hlaupa...og hnéð eigi eftir að venjast...var að spá í að fara jafnvel í Curves 1x í viku til að styrkja vöðvana í kring...

Vitiði, það er brjálað að gera framundan, í sósjallífinu. Endalausir hittingar og skemmtileg heit. Gaman að hugsa til samveru með vinum okkar Heart

Jæja, ég ætla að hætta í bili. Meira síðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dóra

Gaman að lesa jákvætt blogg Sigrún mín..

Já maður þarf að anda inn og svo út þegar maður er með dóttir á gelgjunni ... úff það er ég búin að gera með 3 ... nú er örverpið eftir og hún er rétt 10 ára og það virðist skipta máli með hverjum hún er ... og hvort hún fái nógan svefn...  Vonum bara að það taki fljótt af með þína...

Gangi þér vel að halda geðheilsunni í þeirri þrautargöngu dúllan mín

Risaknús og kærleikskveðjur Dóra Esbjerg

Dóra, 20.11.2008 kl. 07:50

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 20.11.2008 kl. 08:30

3 identicon

Úff, ég á tvær svona gelgjur þó sú yngri sé bara 9 ára...!  Þær geta tekið á taugarnar og kenna manni svo sannarlega þolinmæði  :)

Gaman að heyra að þú sért farin að hlaupa.  Það er mjög eðlilegt að finna til í hnjánum svona fyrst á meðan vöðvarnir eru að styrkjast.  Það er gott að taka lýsi og svo er hægt að vera í teygjustrokk til að styðja við liðinn svona fyrst.

*knús!*

Eva

eva ólafs~ (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 09:38

4 Smámynd: JEG

Innlitskvitt mín kæra og kæra kveðja úr Hrútósveitó. 

JEG, 20.11.2008 kl. 10:16

5 Smámynd: Renata

Ufff þú ert nú góð, segir að hefur ekkert merkilegt að segja og kemur þessi myndarlega bloggsaga   ... en kannski þegar maður byrjar þá orð byrja rúlla á stað. Eigðu góða sosjallífshelgi :)

Renata, 20.11.2008 kl. 19:23

6 Smámynd: Hugarfluga

Hugarfluga, 21.11.2008 kl. 10:51

7 Smámynd: Úrsúla Manda

Ég bara varð að láta þig vita, að við átum lifrarbuffið þitt í gærkvöldi!! JUMMÍ!! Þvílíkt sem það var gott, þúsund þakkir  Ég lagaði það reyndar ekki sjálf, heldur mamma, og þetta er æð!! Nú er buffið komið á listann af mat sem mamma þarf að gera handa mér

Úrsúla Manda , 21.11.2008 kl. 11:51

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

AlheimsLjós yfir til þín og megi það fylla vitund þína alla

s

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 21.11.2008 kl. 20:15

9 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Já ég skil þetta með umburðalundið og hvað það getur verið erfitt! Það er sjálfsagður hlutur að elska börnin skilyrðislaust. en það er ekki þar með sagt að það sé alltaf hægt að umbera erfiða hegðun.                      Knús til þín. Það er alltaf gott að lesa bloggið þitt.

kveðja Þóra Elísabet.

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 21.11.2008 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband