Leita í fréttum mbl.is

Helgin

Yndisleg helgi að verða búin.

Í gær brunuðum við hjónin í bústað í Brekkuskógi, þar sem við áttum yndislegan tíma með vinum okkar úr paragrúppunni.  Stórkostlegt kvöld :)

Ólöf Ósk var heima með Jóhannes og svo kom Bára og var hjá þeim í gærkvöldi og í nótt, já og fram að hádegi. Þau voru sæl og glöð með tímann með stóru sys. sem þau sjá alltof sjaldan. En svona er að vera eiga 17 ára systir sem er upptekin af lífinu Wink

Við sóttum svo Jón Ingva til pabba, þar sem hann var alsæll eftir yndislega helgi. 

Þegar heim kom fengum við gesti, Benni (tengdapabbi) og Jóna komu og svo komu Díana og Viktor (föðursystir Einars og maðurinn hennar). Mjög notalegur sunnudagur.

Einar fór svo út að mála, eða réttara að grunna. Svo nú er búið að grunna þessi þrjú herbergi. Næsta mál er að mála þau, svo þarf að leggja rafmagnið, setja í loftin, lakka gólfin og þá er þetta klárt! Styttist í þetta! Mjög mikil spenna. Ólöf Ósk getur varla beðið, hún er þreytt á litla herberginu og þreytt á *litla* rúminu sínu...hún sefur núna í *bara* 90 cm rúmi en á 140 cm rúm sem hún fer að nota aftur þegar hún fer í herbergið sitt. Mikil tilhlökkun!

Ég fékk 90 cm rúm í fermingargjöf og fékk víðáttubrjálæði! Ólöf Ósk fékk 140 cm rúmið þegar hún var 11 ára!! Reyndar fékk hún þetta rúm þar sem okkur bauðst að kaupa nánast nýtt rúm, mjög gott rúm, á 200 kr danskar (og þetta var sem sagt þegar það var ca 2000 ísl.kr!Tounge).

Jæja, ætla að fara að prjóna, er sko alveg að klára peysu nr 2 á bróa minn, sú fyrri varð ALLTOF stór...vona að þessi passi betur...

Kyss&knús... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alltaf sami dugnaðurinn og lífsgleðin í kringum þig Sigrún mín.  Ég er að reyna að prjóna þessa dagana því ég hef svo gaman af því, en puttarnir eru orðnir bólgnir og stirðir og vöðvabólgan að drepa mig, ég kann mér aldrei hófs í neinu, verð að ´prjóna annanhvorn dag. Hafðu það gott elskuleg

Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2008 kl. 10:46

2 Smámynd: Tína

Að vanda finnst mér þú ÆÐI stelpa. Verður þú heima í vikunni? Á hvaða tíma er best að kíkja ef manni skyldi nú detta í hug að leggja land undir dekkjum?

Knús fallegust.

Tína, 3.11.2008 kl. 13:27

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

peysu númer tvö??? Dos?? Jæks og ég er enn að prjóna peysu númer eitt - á mig.......... ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 4.11.2008 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband