Leita í fréttum mbl.is

Yndislega Óskin okkar, Ólöf Ósk, er 13 ára í dag, 28. október!!!

Mér finnst auðvitað algerlega óskiljanlegt að hún sé orðin 13 ára (eða verður það sko kl. 20.03).


En ég get með sanni sagt að hér fer stúlka sem ég er sannarlega yfir mig stolt af, ég er stolt að geta sagt að Ólöf Ósk er dóttir mín.

Við mæðgur erum eins ólíkar og dagur og nótt, að utan jafnt sem innan. Held svei mér að hún hafi fengið allt frá pabba sínum!! Ekki að það sé slæmt, neibb það er sko gott mál.

Ólöf Ósk er skellibjalla, glaðvær, opin, jákvæð. Hún hefur alltaf tekið lífinu opnum örmum. Þegar hún hefur verið sett í nýjar aðstæður, í nýtt umhverfi, þá hefur hún tekið því tækifæri brosandi.

Ólöf Ósk brosir framan í lífið og lífið brosir við henni.

Ég er þakklát fyrir að hafa fengið það hlutverk að vera mamma þín, elsku stúlkan mín.

Ég elska þig. Þín mamma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Innilega til hamingju með skvísuna þína.  Vona að þið eigið yndislegan dag. Kveðja úr sveitinni.

JEG, 28.10.2008 kl. 17:26

2 identicon

Til hamingju með dótturina

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2008 kl. 17:46

3 Smámynd: Þóra Elísabet Valgeirsdóttir

Innilega til hamingju með fallegu stelpuna

kveðja Þóra. 

Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 28.10.2008 kl. 19:59

4 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

 Villtu knúsaða hana frá mér

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 28.10.2008 kl. 22:03

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með stúlkuna þína. 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.10.2008 kl. 22:16

6 Smámynd: Dísa Dóra

til hamingju með dömuna þína

Dísa Dóra, 29.10.2008 kl. 04:39

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegt Til hamingju báðar tvær með hvor aðra.

Hrönn Sigurðardóttir, 29.10.2008 kl. 11:38

8 Smámynd: Úrsúla Manda

Til hamingju með stóru stelpuna þína

Úrsúla Manda , 29.10.2008 kl. 12:16

9 Smámynd: Kokkurinn Ógurlegi

Til hamingju á ykkur, knúsaðu hana ólöfu frá okkur Bibbu, strákunum og bumbubúastelpunni

Kokkurinn Ógurlegi, 29.10.2008 kl. 14:29

10 identicon

Til hamingju með prinsessuna þína, knús á ykkur báðar

jóna björg (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 18:56

11 Smámynd: Renata

Til hamingju með unglinginn :)

Renata, 29.10.2008 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband