Leita í fréttum mbl.is

Jæja,

best að blogga smá...læt ekki spyrjast út að ég sé dottin í facebook...LoL

Í gær var Einar að fara á fundi í borginni svo við (ég og börnin) fórum með og hittum mömmu, sem þar er stödd.  Við fórum í Grasagarðinn.  Hugsið ykkur, ég hef ALDREI áður komið í Grasagarðinn!! Aldrei áður séð þvottalaugarnar eða neitt! Skammarlegt!

Við röltum þarna um, í sólinni (og blæstrinum) og nutum útivistarinnar og samverunnar.  Krakkarnir voru með bolta með sér svo þau hlupu um og spiluðu. Gaman gaman. Við fórum svo á kaffihúsið þarna; Café Flóra og fengum okkur hressingu.  Alveg snilld! Mæli með svona kvöldstund!

--

Nú fer sumarfríinu hjá börnunum að ljúka...við misjafnar undirtektir...þeim finnst ósanngjarnt að ég hafi verið í fríi frá 15. maí - 1. okt. þegar ég var í barnaskóla!!! En það er heldur ekki reiknað með þeim í sauðburð og réttir...Wink

Svo get ég sagt ykkur að nú eru vinnuskiptin orðin endanleg, það er komin dagsetning! Ég hætti á Höfða 1. okt. og byrja strax á 32A á Lsp.  Reyndar reiknast mér til að síðasta vaktin mín sé 29.  sept. svo ég fæ dags frí!

Ég hlakka til að takast á við ný verkefni.  Þó margs verði að sakna frá Höfða, og verð ég þá sérstaklega að nefna frábært samstarfsfólk.

--

Um helgina eru Einar og Jón Ingvi að fara á svokallaða feðgahelgi hjá KFUM&K í Vatnaskógi. Vinir okkar í Danmörku (feðgarnir Dóri og Martin) fóru í fyrra og fannst svo gaman, og seldu okkur þessa hugmynd á staðnum.  Svo nú á að láta á þetta reyna.  Jón Ingvi er mjög spenntur, það verður æðislegt fyrir þá að eiga svona helgi bara tveir. Gott fyrir Jón Ingva að eiga pabba út af fyrir sig í smá stund. Það getur stundum verið erfitt að vera hluti af systkinahóp og vera sjaldan einn um athyglina. 
Jóhannes er strax farinn að tala um að næsta sumar fari hann og pabbi samanSmile

--

Já, þetta var sem sagt í fréttum helst hjá okkur hérna á Skaganum InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Já greinilega spennadi tíma farmundan hjá þér.   Pabba tími er nauðsyn það er  nú bara þannig.  Minn yngri er svo mikill pabba strákur reyndar sá stóri líka en hann hittir pabba sinn bara svo sjaldan að það er stundum vandræði.

Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 20.8.2008 kl. 13:47

2 Smámynd: Tína

Gangi þér vel í nýja starfinu krúttan mín. Aldrei að vita nema ég rekist einhvern tímann á þig þarna enda alltaf með annan fótinn á þessum yndislega stað . Og ef þú lendir í því að það er klikkuð kona sem stekkur á þig og knúsar þig................ well þá veistu hver það er .

Kram, kreist og knús inn í daginn þinn elskulegust.

Tína, 21.8.2008 kl. 06:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband