Leita í fréttum mbl.is

Enn eitt...

...nostalgíukastið hér á bæ!!!

Hver man ekki eftir þessu?!!!!

--

Mig langar að segja ykkur frá því að amma Bára lést s.l. sunnudag, þá 92 ára og einum mánuði betur.

amma Bára

 

Það hefur því verið töluverð sorg hér á bæ þessa vikuna.  Þrátt fyrir að ég hafi hugsað fyrir viku síðan að ég vonaði að þessu færi að ljúka hjá henni, því það stefndi ekki í annað en endalokin, þá hef ég hugsað aftur og aftur þessa viku; "Afhverju þurfti hún endilega að deyja strax?!"

Yndisleg kona farin.  Heimurinn svo miklu fátækari, svo mikill litur farinn, því hún setti sannarlega lit á lífið.

Það hefur verið tómlegt í vinnunni.

En lífið heldur áfram og ekkert er örugg þegar við fæðumst nema einmitt það að við munum deyja!

Amma Bára var tilbúin, og átti yndislega daga með sínum nánustu áður en yfir lauk.  Það eru ekki allir svo lánsamir, og eftir stöndum við og eigum helling af minningum sem ylja, ekki síst minningar frá tveimur síðustu vikunum.  Ómetanlegt og eitthvað sem ég verð alltaf þakklát fyrir.

--

Svo get ég sagt ykkur að það er bara rúm vika í flutning.  Einar er byrjaður að leggja parket, en við ákváðum að kaupa ódýrt plastparket og leggja á bílskúrinn og þann hluta sem við flytjum fyrst inn í.  Svo fórum við í Ikea í fyrradag og keyptum 3 eldhússkápa í bílskúrinn - sem verða svo notaðir í eldhúsinu þegar þar að kemur. Og við keyptum líka skáp og hillu á baðherbergið, og ljós og þess háttar. 

Ég er á fullu að pakka, og það gengur nú bara alveg ágætlega.  Fór með fyrstu kassana upp í hús í gær og fleiri munu fara um helgina!!  Þetta er bara svo gaman.

--

Ekki meir í bili.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

samúðarkveðja vegna Báru ömmu.Myndbandið er auðvitað dásamlegt

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 22:14

2 Smámynd: JEG

Samúðarkveðjur. Það er alltaf sárt að missa ömmu sína. Amma mín dó einmitt fyrir rúmu ári síðan og ég sakna hennar ólýsanlega enda hafði ég ekki tök á að kveðja hana.

Gangi þér vel í flutningunum. Knús úr sveitinni.

JEG, 2.5.2008 kl. 22:23

3 Smámynd: Úrsúla Manda

Ég samhryggist ykkur Sigrún mín.

Hef oft heyrt þetta lag, en aldrei séð myndbandið  Gaman að því!

Úrsúla Manda , 2.5.2008 kl. 22:29

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Votta þér samúð mína.

Hrönn Sigurðardóttir, 2.5.2008 kl. 22:51

5 Smámynd: María Katrín Jónsdóttir Ármann

Ókey sæta

Nú hefur þú sko vinninginn í halló tónlist

Verð að fara á stúfana og grafa upp eithvað sniðugt.

Annars er Aðalst bróðir með Söndru Kim á heilanum þessa dagana

Gangi ykkur vel að flytja

sjáumst eftir hálfan mán 

María Katrín Jónsdóttir Ármann, 2.5.2008 kl. 23:01

6 identicon

Samhryggist vegna ömmu þinnar

Bryndís R (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 00:32

7 identicon

Samhryggist ykkur öllum vegna ömmu Báru *knús*

Gu-vu hvað ég man eftir Frankie laginu .. flashback lengst aftur :D  Gangi ykkur vel í flutningum!!

ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband