Leita í fréttum mbl.is

Miðvikudagsmorgun

Ætti að vera farin í vinnuna, en prinsessan á bauninni þarf að fara til læknis núna 8.45 svo ég mæti of seint í dag. Henni er illt undir hendinni og finnur til við andardrátt, svo doksi vill skoða skvísuna.

Jóhannes er búin að taka að sér það hlutverk að kristna leikskólaliðið! Finnst konurnar sínar ekki vita mikið um Guð... Ég sagði honum áðan að hann gæti tekið geisladiskinn sinn með einhverntímann og leyft þeim að heyra. Á þessum geisladisk segir Sigga Helga, gömul vinkona okkar systranna, börnunum dæmisögur og syngur.  Diskur sem hefur slegið í gegn hjá drengjunum og þeir sofna út frá á hverju kvöldi!

Ég fékk eitthvað nett óttakast yfir þessu áðan en það bráði fljótt af mér.  Hugsunin sem skaut upp í huga mér var; "Ætli þær haldi að við séum eitthvað ægilega kristin?!" En svo heyrði ég strax röddina í hjartanu sem sagði; "So what ef þær halda það?! Ég trúi á Æðri Mátt, sem ég kalla Guð. Lít á mig sem kristna þó ég stundi ekki kirkjusókn, iðka mína trú fyrir mig. Og það skiptir ekki máli hvað aðrir halda eða hugsa."

Jamm.  Segi það enn og aftur; lífið er svooooo ljúft!

Best að gleypa eitthvað smá matarkyns áður en við mæðgur rjúkum af stað til doktorsins...

Knúsimús... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl elsku Sigrún. Loksins kíki ég almennilega á þig. Það er nú ekkert slæmt að vera ægilega kristinn, maður er eins og maður er. Ég held að okkar trú sé nokkuð svipuð.  Vona að það sé allt í lagi með stelpuna, þú lætur okkur vita.  Eigðu góðan dag mín kæra 

Ásdís Sigurðardóttir, 2.4.2008 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband