31.12.2007 | 13:48
Gamlársdagur 2007
Fyrir ári síðan rifjaði ég upp, hérna á blogginu, það helsta sem á daga okkar hafði drifið árið 2006. Er að hugsa um að gera slíkt hið sama núna.
Janúar fór rólega af stað. En 18. janúar fögnuðum við 60 ára afmæli tengdamúttunnar minnar. Og var þessi mynd af börnunum okkar tekin við það tækifæri.
Í lok janúar var smá stress í gangi hjá mér, en þeim mánuði lauk með 3ja daga prófi að hætti Sygeplejeskolen í Hillerød, nema prófið fór fram á deild 32A á Landspítalanum. 2ja daga verklegt próf sem lauk með munnlegu prófi 3. daginn. Þeim sem þekkja mig kemur eflaust ekki á óvart að ég var listarlaus og með ógleði þessa daga...
Þetta voru líka dagarnir sem ég formlega féll, og við tók 3ja mánaða sykurfyllerí...
En prófið, ég stóð það sem stæl!! Og var mjög lukkuleg, því það þýddi að ég myndi geta farið að skrifa lokaritgerðina mína!!
Febrúar
Febrúar byrjaði ég á því að smella mér í aðgerð á hné...og ætla Jónu vegna ekki að setja neinar myndir af því hérna inn... Hluti af liðþófanum í hnénu var tekinn og hefur það gert gott. Ég er oftast verkjalaus í hnénu, þó ég sjái ekki fram á að komast aftur á hnén nema hafa púða undir...!!
Um miðjan febrúar lögðum við Jóhannes upp í langferð, fórum í 4 vikna dvöl til Danmerkur. Ég átti eftir síðasta kúrsinn í náminu, áður en ég gæti byrjað að skrifa. V
Þessar 4 vikur vorum við í góðu yfirlæti hjá Tinnu, Kim og börnum í Græsted. Vinur okkar sem hafði lofað mér að hann myndi hjálpa mér að passa Jóhannes, sveik mig á síðustu stundu - þegar við vorum komin út. Þá voru góð ráð dýr...en leikskólinn sem strákarnir voru á meðan við bjuggum úti, opnaði dyrnar og bauð Jóhannes velkominn til sín. Endurgjaldslaust og með bros á vör!
Við áttum yndislegar 4 vikur í Græsted og var erfitt að segja bless að þeim loknum.
Reyndar voru líka erfiðar stundir, Jóhannes veiktist, fékk hitakrampa og þurfti tvisvar að kalla eftir aðstoð. Fyrst voru það Falck-sjúkraflutningamenn sem mættu, og létu mér eftir eina túpu af vöðvaslakandi til að eiga ef þetta gerðist aftur. Nóttina eftir var það vaktlæknirinn sem kom og kíkti á ungann, en þá var hitinn kominn í 40.7 og á leið hærra upp... Lungnabólga reyndist vera sökudólgurinn og fyrsti pensilín skammturinn sló á pöddurnar og var drengurinn hitalaus morguninn eftir!!!
Jóhannes og Ida áttu góðar 4 vikur saman og styrktu enn böndin sem á milli þeirra eru.
Mars
Við vorum í Danmörku fram í miðjan mars. Jón Ingvi kom út til okkar síðustu vikuna og eyddi mestum tíma hjá Camillu vinkonu sinni.
Jón Ingvi hafði saknað Danmerkur þessa mánuði á Íslandi og langað aftur "heim" en komst að því þarna að hann átti ekki lengur heima í Danmörku, hann náði að sakna Íslands og skólans og hlakkaði til að koma heim aftur. Þessi vika breytti miklu og gerði honum gott. Þó hann langi enn til Danmerkur en núna er það til að heimsækja Camillu, ekki til að flytja...eða reyndar myndi hann vilja flytja aftur...var að spyrja hann...!!
Apríl
Apríl fór að mestu í ritgerðarsmíð, sem gekk fremur hægt lengi framan að. Miklar diskutioner...minna um skrif.
Svo komu páskarnir...og þá tókst mér, á 2. í páskum, að komast aftur í sykurfráhald og er enn þar. Hafði legið í sykri LENGI og leið illa á líkama og sál...
Á sumardaginn fyrsta keyrðum við austur í Úthlíð, þar sem tengdamútta var í bústað. Ólöf Ósk fór með henni austur daginn áður og þegar við mættum var hádegismaturinn tilbúinn. Mikið borðað...og mikið huggulegur dagur. Í YNDISLEGU veðri. Við keyrðum Þingvallaleiðina austur og vorum gersamlega orðlaus yfir fegurð Íslands! Váááá!!!
Maí
Maí var viðburðaríkur hjá okkur.
14. maí var byrjað að grafa fyrir húsinu okkar!!! Mikil spenna var búin að vera kringum þetta verkefni, og ríkir vissulega enn. Einar sýnir enn og aftur hvað hann kann, og hvað hann er fljótur að læra, en hann á að langmestu leiti heiðurinn af húsinu okkar!
Um miðjan maí fengum við líka heimsókn, en þá kom Annemarie til okkar í viku. Annemarie og ég skrifðum saman lokaverkefnið okkar. Og var þessi vika notuð í það verkefni...með viðkomu á Þingvöllum og Geysi og svo í Bláa Lóninu á leiðinni út á flugvöll!
Heimsóknum var ekki lokið því við fengum líka yndislega vini í heimsókn í lok maí, Dave og Polly. Þeim kynntumst við í Danmörku vorið 2004, en þá voru þau þar að tala á ráðstefnu sem við sóttum. Þau voru í sömu erindagerðum hér, og fengum við þau heim í mat. Yndislegt fólk þarna á ferð.
Júní
Í byrjun júní var komið að því að skila lokaverkefninu. Það var góð æfing í vanmætti...því ég gat ekki sjálf skilað verkefninu en varð að stóla á Annemarie í því efni. Það kom svo í ljós að það var gott ég vissi ekki fyrr en eftir á hvað gekk á í Danmörku... Þegar Annemarie ætlaði að fara að prenta út síðustu síðurnar klikkaði allt sem klikkað gat. Prentarinn vildi ekki...svo tætti hann pappírinn...blekið kláraðist og til að bæta gráu ofan á svart...þegar hún loks komst af stað var allsstaðar vegavinna...eins og gjarnan í Danmörku á vorin, sumrin og haustin... En hún hringdi í skólann og það var ok að hún kæmi aðeins of seint...bara ef hún kæmi í heilu lagi!! Úff, gott ég vissi þetta ekki fyrr en eftir á!!!
Næstu vikur fóru í undirbúning fyrir vörnina... Og ekki má gleyma brúðkaupi Ragnhildar frænku og Ingu, 16. júní. Yndislegur dagur sem við erum þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í. Fallegar konur sem þar játuðust hvor annari, þær ljómuðu "om kamp med solen".
Svo kom að því að við fórum til Danmerkur, hele familien! Heimsóttum vini og áttum góðar stundir.
Og stóri dagurinn!! Útskriftin!!! Ég orðin hjúkka!! Hefði sjálf aldrei trúað því...og geri stundum ekki enn...!!
Heim fórum við 29. júní.
Júlí
Og 2. júlí byrjaði alvara lífsins og ég byrjaði að vinna!!! Skíthrædd og fannst ég ekkert kunna...dauðskelkuð þegar einhver kom og spurði MIG um eitthvað...ég var vön að vera nemi og vera sú sem spurði...
En júlí var líka viðburðaríkur. María sys. og fj. komu við á leiðinni heim frá úgglöndum. Við fengum gesti frá Danmörku, Sindri, Jóna og börn komu. Og svo komu Hjálmar, Janne og börn líka. Algerlega frábært að hitta þau öll.
Einar fór áleiðis á Hvannadalshnjúk, en þeir komust að Hnjúknum en urðu þá að snúa við vegna veðurs og lélegs færis.
Platan var steypt 17. júlí!
Og sama dag fórum við í hestaferð með tengdó og Valtý (bróðir Einars) og fjölskyldu. Jólagjöfin frá tengdó. Frábær dagur og vorum við; ég, Ólöf Ósk og Sigga Bára (tengdó) farnar að leggja á ráðin um hrossakaup... Það væri æði, en kostar víst of mikið bæði fjárhagslega og tímalega séð til að það sé raunverulegt eins og málin standa í dag... En hver veit?!!!
Júlímánuði lauk með að Bára, stóra stelpan okkar, varð 16 ára!!!
Ágúst
1. ágúst var annað afmæli hjá okkur. Jón Ingvi varð 7 ára.
Ekki nóg með það heldur fengum við lítinn frænda, en Lilja systir eignaðist enn einn drenginn, sem fékk nafnið Ýmir.
Við ferðuðumst líka innanlands í sumar, en við lögðum land undir fót...eða við keyrðum austur á Norðfjörð. Með viðkomu í bústaðnum hjá Jónu í Eyjafirðinum. Svo eyddum við Verslunarmannahelginni á Neistaflugi og í faðmi stórfjölskyldunnar á Ormsstöðum. Alveg yndisleg helgi í alla staði þar sem við hittum marga. Jóni Ingva blöskraði á tímabili og spurði mig hvort ég þekkti virkilega ALLA þarna!!!
Jóhannes, litli molinn okkar sem stækar óðum, átti svo afmæli 16. ágúst og varð 4ra ára!!!
September
Í september ber hæst þegar við fórum norður til Akureyrar, í dagsferð, til að vera með fjölskyldunni þegar Ýmir var skírður. Áttum þar yndislegan dag í faðmi fjölskyldunnar.
Hinn stórviðburður septembermánaðar var án efa REISUGILLIÐ. Reyndar varð ekkert úr neinu gilli...en það var flaggað og við hjónakornin fögnuðum saman!!!
Það var stór áfangi sem náðist þar.
Október
Í október gerðust ekki neinir stórir hlutir. Reyndar skelltum við okkur í helgarferð til Reykjavíkur, dvöldum á hóteli og alles! Mikið notaleg helgi hjá okkur og börnin í góðu yfirlæti hérna heima, með ömmu sína hjá sér (tengdóið mitt).
Í lok mánaðarins kom elsku mamma mín og var hjá okkur yfir helgi. Sömu helgi héldum við upp á 12 ára afmæli heimasætunnar!!
Hreint ótrúlegt að stelpuskottið sé 12 ára!!!
Nóvember
Í nóvember var lítið að gerast...þannig...aldrei svo sem lognmolla kringum okkur... En samt. Lífið gekk sinn vanagang, vinna, húsbygging, börn og svo huggó stundir í tíma og ótíma.
Desember
Við kláruðum að búa til jólagjafir handa fjölskyldunni. Allir afa og ömmur fengu dagatal, sem höfðu verið í vinnslu frá því í febrúar, enda margir afar og margar ömmur hjá okkur.
Ég prjónaði og pjónaði síðustu mánuði fyrir jól...og náði að klára það sem ég ætlaði mér. Fengu börnin ýmist sokkar, vettlinga eða grifflur, og reyndar einn fékk buxur...grænar íþróttaálfsbuxur eins og ég saumaði á Jóhannes.
Þá er þeim leyndarmálum uppljóstrað ;)
Við bökuðum slatta og mikið af því er uppetið...
Jólin komu og voru hátíðleg. Cille kom á 2. í jólum og er hér enn. Verður í tvær nætur í viðbót en þá flýgur hún aftur til Danmerkur.
---
Þetta er árið okkar í stórum dráttum...mörg atriði sem týnast í svona upptalningu. En þau eru öll, samt sem áður, vel geymd í minningunni og eru tekin fram á ólíklegustu stundum.
Elskurnar mínar allar, mig langar að þakka ykkur samfylgdina á árinu sem er að líða. Bæði hér á blogginu og utan þess.
Megi Gamlárskvöldið vera gott hjá ykkur öllum.
Kærleikur til ykkar allra og með tilhlökkun til að eiga með ykkur enn eitt árið.
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elsku Sigrún. Þetta er mikill annáll, ég ætla að geyma mér til morguns að lesa hann. Hafið það sem allra, allra best og megi nýja árið færa ykkur hamingju og góða daga. Kær kveðja frá Selfossi og næst kíkið þið í kaffi.
Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 13:54
Flottur annáll hjá þér frænka .. gaman að lesa yfir árið hjá ykkur og notó að sjá að dagurinn okkar hjóna komst á blað tíhí :) Gleðilegt nýtt ár til ykkar allra og vonum þið eigi gott kvöld framundan í "logninu" ;)
Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 14:43
Ásdís, ég verð nú bara hér með að lofa þér því að ég kíki í kaffi næst þegar ég kem á Selfoss. Ég á orðið svo marga sem ég þekki á Selfossi að ég þarf nú bara að taka mér eina Selfosshelgi við tækifæri.
Takk, sömuleiðis, Ísak.
Takk, frænka. Auðvitað komst dagurinn ykkar á blað,einn af bestu dögum ársins. Þó við felldum mörg tár, við hjónakornin, þá voru það GLEÐI og HAMINGJUtár!! Þið voruð svo fallegar, og þessi dagur vakti hjá okkur minningar um okkar dag.
Ást til ykkar allra.
SigrúnSveitó, 31.12.2007 kl. 15:06
Aldeilis flottur annáll hjá þér! Ætla að gera eins og Ásdís og lesa hann í betra tómi. Vildi bara óska þér og þínum gæfu og gleði á nýju ári og þakka þér góða bloggvináttu á árinu! Knús og kossar.
Hugarfluga, 31.12.2007 kl. 15:46
Gleðilegt nýtt ár Flórens. Þakka góða viðkynningu árinu sem er að líða
Hrönn Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 16:17
Gleðilegt nýtt ár elsku Sigrún mín og fjölskylda!! Hittumst hressar á nýja árinu.
Knús knús
Særún
Særún (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 12:52
Æðislegur annáll! úff, þú ert alveg ótrúleg kona
Gaman að sjá að þið völduð góðan dag til að hefja húsbyggingu, 14 maí er náttlega besti dagurinn hehehehehe (afm.d. minn)
Gleðilegt ár kæra Sigrún mín, hafðu þökk fyrir samskipti í bloggheimi og alltaf gaman að sjá þig þegar þú kíkkar í lúguna :)
Já og til hamingju með útskriftina í sumar, var ekki farin að fylgjast með þér þá :*
Guðrún Jóhannesdóttir, 1.1.2008 kl. 13:12
Gleðilegt ár Sigrún og fjölskylda. Alltaf gaman að "kíkja í heimsókn" til ykkar hérna, kem oft en kvitta sjaldan. Glæsilegur annáll. Gangi ykkur vel með allt á nýja árinu.
Eyrún
Eyrún Inga Þórólfsdóttir, 1.1.2008 kl. 15:34
Hæ skvísa. Nú er ég búin að lesa annálinn. Gott að fá svona uppfærslu, því mig vantaði framan á kynni okkar. Nú veit ég miklu meira. Hlakka mikið til að hitta þig á þessu nýja ári, veit að svo mun verða. Kær kveðja og haltu áfram að njóta þess að vera til og elska.
Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 15:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.