Leita í fréttum mbl.is

Söknuður

Stundum finnst mér mjög erfitt að vera 700 km burtu frá æskustöðvunum, burtu frá þeim sem ég ólst upp með og á svo margar góðar minningar um og með.

Átti bara töluvert erfitt þegar ég talaði við mömmu áðan.  Sakna hennar og Jóns Þórs mikið svo og systkinanna minna sem búa fyrir austan mikið.  

Áður fyrr voru engin jól nema vera með þeim.  Í dag eigum við yndisleg jól, okkar eigin jól heima hjá okkur.  

En svo koma dagarnir milli jóla og nýárs...  Mikið sakna ég ykkar, elskurnar mínar.  Fékk svo stóran kökk í hálsinn áðan þegar ég heyrði í þér, mamma, að ég gat varla talað.  Tárin renna þegar ég skrifa þetta.  

Það er sárt að sakna.

Hlakka til að sjá ykkur um páskana!!!  

Vona að þið eigið yndislegan dag saman, í dag.  Er sannarlega hjá ykkur í huganum.  Elska ykkur öll svo undur mikið Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, það er sárt að sakna og það er yndislegt að elska og vera elskaður. Gleðin býr alltaf með sorginni og öfugt. Hafðu það gott ljósið mitt og milljón hjörtu til ykkar

Ásdís Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 15:17

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Já, það góða við að sakna er að það er einmitt vegna ástarinnar sem ég sakna!  Ef ég elskaði ekki þetta fólk þá myndi ég tæplega sakna þeirra!  Og ég veit fyrir víst að þau elska mig líka

SigrúnSveitó, 30.12.2007 kl. 15:46

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gleðin er systir sorgarinnar og söknuður er bróðir ástarinnar.

Jamm ég er djúp.......

Hafðu það gott ljúfust

Hrönn Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 16:06

4 Smámynd: Hugarfluga

Elsku dúlla. Gleðstu yfir að fá að sakna og elska og upplifa og þrá og vona og alls þess sem lífið færir þér í formi tilfinninga, hláturs og gráts.  Takk fyrir falleg orð á minni síðu.  Þú ert einstök. 

Hugarfluga, 30.12.2007 kl. 16:43

5 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk yndislegu görlís!

Það eru til orð sem segja eitthvað um að skoða það sem veldur manni sorg, og þá mun maður finna að það sem sorginni veldur var eitt sinn hin stærsta gleði.  

Ljós&kærleikur til ykkar allra

SigrúnSveitó, 30.12.2007 kl. 17:38

6 identicon

Æ dúllan mín. Við söknum þín líka.

Þetta var sko alvöru kaffiboð það fór rafmagnið og allt ;)

Þau hin verða einmitt saman á morgun en ekki við með ;( En það verður huggó hjá okkur líka :)

Vissi ekki að þið kæmuð um páskana. Strax farin að hlakka til. Æjú auðvitað fermingar :/

Hafið það gott

Kv frá okkur

María Katrín (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 17:59

7 identicon

Hæ hon.

Æ hvað er erfitt að heyra þegar þú grætur. En við hittumst um páskana og eigum góðan tíma saman þá. Elska ykkur og sakna ykkar - kann hins vegar ekki að gráta ;-)

Kv. Lilja P.S. rafmagnið var að koma ;-)

Lilja Guðný Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 21:45

8 Smámynd: SigrúnSveitó

Ooooohhh, þetta hefur verið EKTA.  Las mamma Íslenskar Þjóðsögur?!!  Jamm, við eigum góðan tíma saman yfir tertustússi um páskana.  Hlakka strax mikið til.
Elska ykkur sannarlega líka 

SigrúnSveitó, 30.12.2007 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband