Leita í fréttum mbl.is

Hún á afmæli í dag...

Það er hún elsku besta Jóna sem á afmæli í dag :)Jóna sæta Elsku kæra vinkona, vona að þú eigir yndislegan dag, og njótir lífsins, ekki bara í dag heldur alla daga.  Knúsa þig stórt þegar við sjáumst næst.

Ég keyrði börnin mín í skóla í dag og það hefur bara ekki gerst í háa herrans tíð.  Ástæðan fyrir þessari góðsemi minni er að dóttir mín er draghölt, hún er að farast í hnénu.  Þetta virðist vera að ganga hérna á heimilinu...við fáum ekki flensu eins og aðrar fjölskyldur, við fáum bólgu og vökva í hné!!!  Ég pantaði tíma fyrir hana hjá lækni í gær, eftir samráð við sundþjálfarann hennar.  Einhver Reynir á sjúkrahúsinu hérna á Akranesi, hann er víst vanur að fást við íþróttameiðsl bæjarins.  Við förum þangað á morgun og fram að því (og eflaust líka lengur) á hún að slappa af eins og hún getur.  Hún segir svo skemmtilega frá því sem hún ekki má á blogginu sínu!!!  

Ég fékk sms frá elsku múttunni minni í gær, hún er að koma í höfuðborgina í lok október Hlæjandi Það verður yndislegt að hitta hana.  Eitt af því góða við að vera flutt heim, er að við hittum fjölskylduna oftar en áður.  Þó svo að það sé kannski ekki beinlínis hægt að segja að við séum heimilisplágur hvert hjá öðru að þá er þetta samt meira en áður var, sem er yndislegt.

Um helgina erum við t.d. að fara í sumarbústað með elskulegri tengdamóður minni og litla bróðir Einars og hans fjölskyldu.  Vantar sennilega Báru í hópinnGráta en hún er að vinna.  En vonandi sjáum við hana um næstu helgi í staðinn.

Jæja, ætla að fá mér morgunmat og fara svo að læra...svo er ég að fara á kvöldvakt í dag.  Gaman, gaman. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Sigrun, buin ad vera leinilegur lesandi i nokkrar vikur:) Gaman ad lesa pælingar thinar og syn thina a lifid. Annars var systir min mikid ad æfa sund og thad endadi med thvi ad hun matti ekki synda bringusund thvi thad for svo illa med hnen a henni. Annars kær kvedja og gaman ad sja hvad allt er i bloma hja ther og co. Johanna - Adalsteins, Salnyar og Lilju Fanneyjar vinkona.

Johanna (IP-tala skráð) 27.9.2006 kl. 09:00

2 identicon

Hæ elskan mín, takk fyrir. Ég kemst alltaf nær besta aldrinum, hver sem hann nú er :)

jóna (IP-tala skráð) 27.9.2006 kl. 09:56

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk fyrir innlitið, Jóhanna. Já, ég kíki nú alltaf við hjá þér annað slagið líka ;) Já, það verður kannski tekið út bringusundið hjá Ólöfu Ósk, þjálfarinn minntist einmitt á bringusundið.

Já, Jóna, hvað skildi besti aldurinn vera? Mér finnst besti aldurinn vera 35, en þegar ég verð 36 (og það styttist í það) þá finnst mér það örugglega besti aldurinn!!! Er ekki bara mikilvægast að vera sáttur og þá er allt hitt bara ljúft og lipurt?!!

SigrúnSveitó, 27.9.2006 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband