25.9.2006 | 22:25
Mikið að gera sem foreldri...
Foreldrafundir eru verkefni haustsins!!! Í síðustu viku fór ég á foreldrafund í bekknum hjá Ólöfu Ósk, í kvöld var fyrri hluti foreldrafræðslu í 1. bekk, seinni hlutinn annað kvöld. En áður en ég fer á þennan seinni hluta annað kvöld þarf ég aðeins að skella mér á foreldrafund á leikskólanum!!! Nóg að gera í þessu. Gott ég á ekki 10 börn!!! Þá hefði ég ekki tíma fyrir neitt nema fundi ;) hehe...
Ég ræddi þarna við sérkennara í samb. við börnin mín. Það hefur verið talað um að þau eigi rétt á auka kennslu í íslensku og ég vil að það verði farið að gera eitthvað ef þörf er á. Annars sagði reyndar kennarinn hennar Ólafar Óskar um daginn að hún væri rosalega vel stödd í íslenskunni, sem er náttúrlega frábært. Barn sem hefur búið í útlöndum frá 1½ árs aldri. Það er sennilega þrjóskan í okkur sem hefur hjálpað til þar ;) hehe... Og ekki má gleyma dugnaðnum í stúlkunni, hún hefur náttúrlega lesið og lesið á íslensku. Síðasta vetur var það t.d. verkefni sem hún hafði, að lesa á íslensku í hálftíma á dag. Sem hún gerði nánast undantekningarlaust, þessi dúlla.
Annars líst mér bara svo rosalega vel á Grundaskóla. Það virðist ótrúlega góð starfsemi í gangi. Enda var skólinn víst kosinn besti grunnskóli, ég held landsins, s.l. vetur. Svo er skólinn móðurskóli fyrir umferðafræðslu og gerir mikið út á það (www.umferd.is).
Mér finnst þetta bara æði. Það er svo mikill munur að vera að koma úr skóla, eða amk bekk þar sem ekkert var nema vandræði og aftur vandræði, bekkur sem var umtalaður sem "versti bekkur skólans" og koma svo inn í þetta umhverfi. Bekkurinn sem Ólöf Ósk er í núna er víst umtalaður sem "einn besti bekkur skólans", sem er náttúrlega frábært eftir fyrri reynslu. Eftir að hafa barist við "illt í maganum" og "illt í hausnum" í meira og minna 5 vetur þá er stórkostlegt að upplifa að hún er ánægð og glöð og líður vel í bekknum. Þrátt fyrir að hún þekkti engann (hafði hitt eina stelpu einu sinni og eina aðra tvisar áður en skólinn byrjaði) þá hefur ekki verið einn morgunn þar sem henni hefur verið illt!! *7-9-13*
Ég fór í sprautu í morgun, sprauta 2 af 3 í bólusetningu gegn lifrarbólgu B. Ég er alltaf jafn skíthrædd þegar á að sprauta mig :( en svo er það aldrei neitt sérlega vont. Einu sinni fékk ég flensusprautu, á bólakaf í vöðvann á upphandleggnum og það var svo hrykalega sárt. Þessi lifrarbólgusprauta er líka í þann vöðva en það hefur bara ekki verið neitt slæmt, í hvorugt skiptið og það er sitthvor hjúkkan sem hefur stungið mig. Svo mér dettur nú bara í hug að þessi sem gaf mér flensusprautuna hérna um árið hafi bara verið svona afspyrnuléleg að munda sprautuna!!! Amk ætla ég að reyna að halda í þessa minningu frá í dag; að þetta var bara ok og ég dó ekki!!! Ég þarf sko að fá eina enn, eftir 5 mánuði. Þá ætti ég að vera safe.
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að heyra hvað dóttir þín stendur sig vel í íslenskunni. Mér finnst alltaf gott að heyra svona sögur, það gefur mér aukið "búst" með minn gutta en ég tala bara við hann á íslensku, les fyrir hann og annað. Gaman að heyra svona. Góðar kveðjur úr Chicago, Svanfríður (úr Valkyrjuhópnum)
Svanfríður (IP-tala skráð) 26.9.2006 kl. 05:07
Velkomin á nýja bloggheimilið! Er svo vanaföst að það tekur mig eflaust einhvern tíma að venjast þessu. Ég er reyndar fúl út í blog.central því að það er erfitt að setja inn myndir, held ég.
Knús, Gurrí (www.blog.central.is/gurrihar)
Gurrí (IP-tala skráð) 26.9.2006 kl. 10:26
Gaman að fá þig í "heimsókn" Svanfríður. Það er sko frábært þegar þessir ungar eru að standa sig vel :) Og endilega halda áfram með íslenskuna, þetta er svo mikill fjársjóður.
Já, Gurrí, ég skil ekki þetta vesen hjá blogger.com, tómt vesen með færslur hjá mér, ég er búin að rembast við þetta í 3 mánuði núna og nenni ekki meir, ætla að prófa hérna inni. Þú hlýtur að ná þessu fyrir rest, þó það sé erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og allt það ;) hehe...
Hvernig eru annars lappirnar??
ég sjálf (IP-tala skráð) 26.9.2006 kl. 11:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.