Leita í fréttum mbl.is

ááiiiii

Ég fór til tannlæknis í dag að láta laga eitt stykki jaxl.  Ég er sko ekki jaxl þegar kemur að tannlæknum...  Var ég ekki búin að tjá mig um danska tannlækninn sem ég var hjá í eftirliti á 6 mánaða fresti??  Samt var ég með stóra holu...undir fyllingu...því sá danski tók bara myndir 2. hvert ár...  Og ekki nóg með það heldur er þessi jaxl sem var verið að laga innsti jaxlinn (12 ára jaxl) í efri góm og lítil beinfesta fyrir hann því það var fræst svo mikið af beininu þegar endajaxlinn var tekinn...þannig að kannski þarf bara að láta hann flakka í ruslið við tækifæri...ojojoj... = meiri deyfing...og mér er meinilla við sprautur!!!

---

Nóg um það.  Ég og Jóhannes erum búin að dúlla okkur heima í dag.  Hann skrapp á leikskólann rétt á meðan ég fór til tannsa (byrja ég aftur...) og er búinn að vera alsæll hér heima síðan kl. 10!!  Ég dreif í að sauma GRÆNAR buxur á hann...ég fékk grænt flísteppi í Ikea í sama lit og íþróttaálfsbuxurnar hans voru! Svo nú er hann alsæll í grænu buxunum sínum InLove Hef ekki tíma til að setja inn mynd af honum núna því ég er að fara að vinna...vaktaskipti hérna...Einar kemur og ég fer.  

Á morgun byrja Einar og Ingvar að setja glugga í húsið!!  Spennandi!!

---

Over and Out...!!  Love & Peace...!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég læt ekki deyfa mig, nema í algjörri neyð þá. Ég er jaxl

Ásdís Sigurðardóttir, 31.10.2007 kl. 22:53

2 Smámynd: SigrúnSveitó

Einmitt, ég vissi það...man eftir því þegar þú skrifaðir um það um daginn...skil ekki svona fólk!!  Ég er með illt í bakinu, held svei mér að það sé eftir að hafa legið með ALLA vöðva spennta þarna í morgun...!!!

SigrúnSveitó, 31.10.2007 kl. 23:39

3 identicon

Æ nei það er ekki gaman að fara til tannsa, fór um daginn, var þá ekki búin að fara í 2,5 ár og hélt að stellið væri ónýtt en allt kom fyrir ekki, stellið í fínasta lagi. Vel á minst þá er tannsinn minn íslensk eldri kona :)

kys min söðe 

jóna björg (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband