23.9.2007 | 09:47
Nýji kagginn!!!
Nú þarf ég ekki lengur að liggja heima í sjálfsvorkun!! Neibb, því minn heittelskaði keypti sér "nýjan" bíl í gær. Það varð að sjálfsögðu FORD fyrir valinu - hinn bíllinn okkar er FORD og er snilldargóður -
...og auðvitað amerískur...eins og sá græni!!
Ford Ranger, árgerð 1999. Myndin hér að neðan er reyndar ekki okkar, heldur einhver sem ég fann á netinu. Sá sem var keyptur í gær er hvítur með plasthúsi. Og það skondna við bílinn er að það var norðfirðingur sem átti hann!! Þetta er greinilega bara alger nobbarabíll!!!
Jamm, svo ég er nú aldeilis kát með þetta allt!!! Og Einar líka!
En það var nú líka gaman í gær sko. Ég fór með Jóhannes í íþróttaskólann og það var svo gaman að sjá hann þar. Honum þykir svo gaman að hoppa og skoppa.
Svo hitti ég líka Villu, sem ég umgekkst töluvert mikið 1994, þegar ég bjó í Lækjargötunni. Hún er svo skemmtileg. Ég var að segja við hana að það mætti halda að við byggjum í stórborg því á þessu vel rúmlega ári sem ég er búin að búa á Akranesi þá er þetta í 2. sinn sem við rekumst á hvor aðra!!
Jæja, ég fór líka í kaffi til vinkonu minnar í gær, og átti skemmtilegt spjall.
Svo kom Einar að sækja okkur og við fórum til tengdamúttu minnar í Hafnarfirðinum, og biðum þar eftir að bílseljandinn kæmi til að sína Einari Rangerinn. Seljandinn er útgerðarmaður í Grindavík oghafði fengið þennan bíl með kvóta sem hann var að kaupa frá Norðfirði. Svo hann (Rangerinn) var ekki búinn að stoppa lengi á Suðurnesjum!
Í stuttu máli leist Einari vel á bílinn og keypti hann á staðnum! Svo brunuðum við í Mosó og fengum okkur að borða á KFC. Þar hef ég ekki borðað í ár, eða síðan í lok sept. s.l. ár. Því maturinn þar fór svo illa í magann á mér að ég var með velgju lengi vel (með meiru...)...svo ég gat ekki hugsað mér að fara þangað. En í gær var ég SVÖNG!! Og hugsaði með mér að ég hafi nú oft borðað á KFC áður og ekki fengið svona í magann... Einar spurði mig hvort ég ætti von á að "this time it will be different"...og ég sagði honum að í fyrra hafi verið öðruvísi...svo kannski yrði þetta eins og áður...
En nei, nú hef ég borðað kjúlla á KFC í síðasta sinn. Mér var flökurt og hálf illt í maganum fram eftir öllu...og það er ekki þess virði!!!
Jæja, best að skella í nokkur brauð...kryddbrauð og svo ætla ég að vígja brauðvélina fínu!!!
Eigiði góðan sunnudag, elskurnar mínar, það ætla ég að gera.
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 178853
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært að hann fékk annan bíl
Ég er einmitt að baka Haframjölsbollur með sunnudagskaffinu.......
Ég gæti trúað að það sé feitin á KFC sem fari svona í þig. Held þeir séu ekki nógu duglegir að skipta.
Hrönn Sigurðardóttir, 23.9.2007 kl. 09:53
Hljómar vel með haframjölsbollur. Seturðu uppskrift á bloggið???!!!
Já, feitin var eitthvað súr á bragðið...ojojoj...ekki meir KFC fyrir mig!!!
SigrúnSveitó, 23.9.2007 kl. 10:05
eeeee þetta er þín uppskrift......
Hrönn Sigurðardóttir, 23.9.2007 kl. 10:32
já þetta er örugglega feitin, mikið feitt og slæm feiti fer líka ílla í mig.
knús&kossar og til hamingju með afmælið ætlaði ég að skrifa, en með bílinn semsagt.
jóna björg (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 10:35
hehe, Hrönn, já, haframjölsbolluuppskriftin mín er góð, takk fyrir að minna mig á hana!!
Takk, Jóna. Það er sko mikil hamingja með kaggann!!
SigrúnSveitó, 23.9.2007 kl. 10:51
til haingju með nýja trukkinn
Tanni Ofurbloggari, 23.9.2007 kl. 17:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.