16.5.2007 | 08:51
Fékk sjokk...
...en er nokkurnveginn búin að jafna mig.
Þegar ég og Jóhannes hjóluðum upp í leikskóla í morgun var bakkað á drenginn. Sá sem bakkaði á hann var að bakka út úr bílastæði heima hjá sér, yfir gangstétt, og hann sá mig, en bakkaði samt... Hann sá ekki Jóhannes. Jóhannes var sem betur fer kominn svo langt að bíllinn lenti á afturdekkinu á hjólinu hans.
Shitt...þetta var hræðileg lífsreynsla. Ég var svo gersamlega vanmáttug, gat ekkert gert, sá hvað var um það bil að gerast en gat ekkert gert til að hindra það.
Jóhannesi brá að sjálfsögðu, og meiddi sig í öðrum fætinum þegar hann valt út á götu. En hann var fljótur að jafna sig og gat staðið og hjólað...svo hann hafði ekki tíma til að bíða of lengi...vildi hjóla meira!!
Maðurinn var í sjokki líka. Fór ekki fyrr en hann var búinn að fullvissa sig um að ég fyrirgæfi honum.
Ég hins vegar brotnaði saman þegar við komum upp í leikskóla. Hristist og skalf inn í mér, og hágrét.
Konurnar hans Jóhannesar (leikskólakonurnar mínar, eins og hann kallar þær) ætla að fylgjast með honum og hringja í mig ef eitthvað er. Sem ég held ekki að verði.
Þetta var ekki skemmtileg lífsreynsla og ég vona að ég eigi aldrei eftir að upplifa neitt þessu líkt nokkurntímann aftur.
Sendi kærleika út í universið
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 178737
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kærleikur móttekinn og er sendur tilbaka þetta hlýtur að hafa verið hræðilegt!! Og aumingja maðurinn, örugglega hræðilegt að lenda í þessu.
Úrsúla Manda (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 09:06
Elskan mín, þetta var ekki gaman, ég ætla líka að vona að þetta gerist ekki aftur. Gott að enginn slasaðist.
Knús
jóna björg (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 09:47
Til hamingju með daginn í gær, hugsa en um hvað það var leiðinlegt að ég komst ekki í brúðkaupið, en er samt glöð að hafa orðið ljósgjafi :)
Sindri verður glaður að sjá að það sé byrjað að grafa, hann er voða spenntur yfir þessu öllu saman. Var að velta fyrir sér afhverju ekkert gerðist.
ást til þín
jóna björg (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 09:57
Já, þetta var ekki skemmtileg lífsreynsla en ég er mjög þakklát fyrir að enginn slasaðist.
Já, ég hugsaði líka til þín í gær Jóna, því þú varst ekki með. En ég er líka þakklát fyrir að þú ert ljósgjafi. Og endalaust þakklát fyrir að þú ert hluti af lífi mínu
Þú getur sagt Sindra að það er búið að fylla upp í holuna, Einar er búinn að kaupa videókameru...svo þetta verður allt filmað í bak og fyrir og hann með fullt af reynslu til að gefa þegar það kemur að ykkur
SigrúnSveitó, 16.5.2007 kl. 10:10
gríp kærleikann og sendi hann tvöfaldan til baka til þín. Hræðileg lífsreynsla en gott að þetta fór vel.
knús
Hrönn Sigurðardóttir, 16.5.2007 kl. 11:48
úff, en hræðilegt. En gott að það fór betur en á horfðist, lán í óláni. Vona að þið jafnið ykkur fljótt á þessu. Og farið varlega í umferðinni
Jóhanna (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 14:28
Já, nú verður farið enn meira varlega. Þó mér þyki við hafa farið varlega fyrir þá er víst aldrei of varlega farið.
Ég fann þegar ég sótti hann áðan að þá fór ég næstum að gráta aftur, ég er svo þakklát að það gerðist ekkert alvarlegt.
SigrúnSveitó, 16.5.2007 kl. 16:58
Æ, kellingin mín. Ekki lífsreynsla sem maður vill lenda í. Vona að það sé allt í lagi með ykkur öll.
Hugarfluga, 16.5.2007 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.