Leita í fréttum mbl.is

1. maí

Jæja, mánuður og 4 dagar þar til við eigum að skila verkefninu okkar...!!

Jón Ingvi vakti mig kl. 7.05 og bað mig að kveikja á DR1...en það var enginn barnatími þar.  Aldrei slíku vant - á frídegi - þá ákvað ég að liggja EKKI þar til ég myndi sofna aftur heldur dreif mig á fætur eftir að hafa kúrt aðeins með Jóni Ingva og spjallað.  rundstykker

Ástæðan fyrir þessari miklu morgunhressu var að ég hafði lofað mínum heittelskaða að ég myndi fara í bakarí og við myndum öll borða saman morgunmat þegar hann kæmi heim.  Sem við og gerðum.  Það er bara á frídögum sem við náum að borða öll saman svo það er voða ljúft.  Eitthvað sem allir njóta (þó krakkarnir hefðu kosið snúða líka...).

Erla sys.Annars ætlum ég og börnin að skella okkur í Borgarnes, til Erlu sys., á eftir og vera þar eitthvað fram yfir hádegi.  Mér finnst svo FRÁBÆRT að geta skotist í kaffi til hennar systir minnar.  Kynni sennilega ekki að meta það hefðum við ekki búið svona lengi í útlöndum.  Einu sinni liðu einmitt 3½ ár milli þess sem ég og Erla hittumst!  Jón Ingvi og Heimir Smári (Erlu strákur) eru jafn gamlir (6 dagar á milli þeirra) og þeir voru rúmlega 2ja ára þegar við sáum drengi hvor annarar.  Þess ber kannski að geta að Erla bjó þá í Súðavík...og var eðlilega ekki alltaf á ferðinni í bænum þegar ég var á Íslandi.  En semsagt, mér finnst þetta ÆÐI!!!

Reynar hentaði það mér svo sem ekkert brjálæðislega vel að það væri 1. maí og allt í fríi...og Einar að sofa...þar sem ég þarf að vinna í verkefninu, en "skit pyt", ég tek þá bara á því á morgun Winkég og Hrafnhildur í kveðjupartýinu okkar í Græsted s.l. sumar

Í kvöld ætla ég svo að hitta elskuna hana Hrafnhildi og eiga með henni kvöldstund.  Hún og familían eru stödd á landinu í nokkra daga.  Það verður gaman, svo mikið veit ég!! 

Jóhannes er að læra að hjóla.  Einar var að græja hjólið hans í gær og við ákváðum að hann gæti bara lært strax að hjóla án hjálpardekkja...svo við vorum að æfa í gær og núna togar hann í mig og vill fá mig út með sér...svo ég verð að rjúka svo hann nái smá æfingartíma áður en við brunum í Nesið...

Ljós og kærleikur til ykkar allra... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Þú ert svo duglega að snattast og hitta fólk og elda og baka og læra og allt! Manni fallast vængir! Eigðu góðan dag, ljúfust.

Hugarfluga, 1.5.2007 kl. 09:52

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 stefnir í góðan dag hjá ykkur

Hrönn Sigurðardóttir, 1.5.2007 kl. 09:54

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk görls

SigrúnSveitó, 1.5.2007 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband