Leita í fréttum mbl.is

Morgunblogg

Góðan daginn, kæru bloggvinir. 

Jæja, þá eru skólabörnin mín farin í skólann.  Litli ormurinn minn er að borða morgunmat, mjög svangur í dag.  Hann var varla búinn að opna augun þegar hann bað mig að skera handa sér ananas...svo vildi hann líka ristað brauð og meira ristað brauð.  Og "Huginn og Muninn" (bók) með í leikskólann - mjög mikilvægt!!  Allt þetta í nánast sömu setningunni...honum liggur stundum mikið niðri fyrir þessari elsku.

Annars er lífið ljúft, er að fara á símafund kl. 8.45, fyrst með Annemarie og síðan bætist Lis (leiðbeinandinn okkar) í hópinn kl. 9.  Þá vonandi skýrast þessi mál með "det kvalitative interview" og "livsverden" sem ég var uþb. að tæta af mér hárið út af í fyrradag LoL

Ég fékk hjólið mitt heim í gær svo nú er stefnan sett á að prófa hvort hnéð mitt hafi eitthvað á móti hjólreiðum...mjög spennandi.  Þarf að græja hjólið í dag, setja stólinn hans Jóhannesar á og svo að kaupa lás fyrir hjólið hans Jóns Ingva og þá ættum við að geta hjólað upp í skóla á morgun.  Og ekki veitir af að ég hjálpi honum á fimmtudögum fram á vor...því þá daga er hann bæði í skólasundi og í íþróttum svo auðvitað plús skólataskan.  En hann byrjaði í skólasundi í fyrradag og er í himnasælu.  Segist hafa lært bringusund í gær!!  Ég þarf að skella mér í sund með hann fljótlega svo hann geti sýnt mér.  1. bekkur er í sundi núna x4 í viku fram að sumarfríi, svo það er ekki ólíklegt að hann læri slatta á þeim tíma.

Jæja, ég hef bara ekkert að segja ykkur...svo þá er best að ég bara þegi...

Eigiði góðan dag, kæru vinir nær og fjær Heart Ljós og kærleikur til ykkar allra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Takk görlís

SigrúnSveitó, 25.4.2007 kl. 08:54

2 identicon

Ohh hjá hjólatíminn er að byrja :)  Vona að hnéið þitt þolir það .. ég held það út ef ég er með hnakkinn hátt stilltan (svo fóturinn er næstum beinn) og íþrótta-hlífina (hálfgerð spelka).   Vona að verkefnið þitt gangi vel :)

ragnhildur (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 19:59

3 Smámynd: SigrúnSveitó

Hæ frænka.

Ég á teygjuhólk sem ég hef notað.  Væri kannski góð hugmynd að smella honum á hnéð.  Fann þegar ég fór í langan labbitúr með Jóni Ingvi um helgina að hnéð er ekki í toppþjálfun...labbaði hægt og rólega en var með væga verki daginn eftir.  EN þeir voru vægir!!!  Sem er batamerki...miðað við það sem var áður.  Svo hef ég stórlagast eftir að ég tók sykurinn út hjá mér!!  Sykur er eitur fyrir kroppinn minn, sama hvernig ég lít á það.

Og hvað er svo með gjafalistann?  

SigrúnSveitó, 25.4.2007 kl. 20:05

4 identicon

úfff .. þú ætlar ekki að gleyma þessum gjafalista     er að senda þér meil akkúrat í þessum skrifuðu orðum :)

R frænka (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 20:48

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir skrifin á síðuna mína, maður getur alveg  misst sig þegar maður hugsar og talar um börn sem farið er illa með.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.4.2007 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband