Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Langar að benda ykkur á...

...handavinnuhorn Sigrúnar Grin Það hefur eitthvað smávegis bæst við...og ef ég kem mér í að kaupa lopa þá bætist peysa...eða tvær eða þrjár við fljótlega...það eru amk. tvær lopapeysur sem mig langar í og Einar langar í peysu líka...!!  En myndavélin mín þarf að komast í viðgerð...en þar sem hún er biluð þá gat ég ekki tekið mynd af nýjasta prjónaverkefninu...en kannski ákveðin vinkona mín taki mynd fyrir mig þegar henni berast herlegheitin...vil ekki ljóstra því upp hér og nú hver það er...þar sem HÚN les þetta blogg reglulega...Wink

Annars er ég að fara að aukavakt á eftir.  Hlakka bara til.  Gaman í vinnunni og gaman að vinna aukavakt...það ætti að gefa smá aukalega í launapokann LoL

En núna ætla ég að hengja upp þvott, taka til eftir hádegismatinn og svo taka slökun og losna þannig vonandi við hausverkinn sem er að hrjá mig akkúrat núna... 


Best að blogga smá meira...!!

Man ekki hvert ég var komin...en amk.  Við hjónin fórum út á lífið á föstudagskvöldinu á Neistaflugi.  Við vorum reyndar næstum því hætt við...röðin var LÖNG strax um 22.30 þrátt fyrir að húsið hafi opnað kl. 22.  Þessu höfðum við ekki átt von á!  EN mig langaði SVO mikið á útgáfutónleikana hans Gumma og að sjá Tinu Turner showið, svo við skelltum okkur í biðröð...sem við stóðum í, í um 20 mín.  

Það var rosa gaman.  Hitti fullt af fólki, suma hef ég ekki séð LENGI, aðra sá ég á síðasta Neistaflugi.

Ég fékk svona smá flashback þegar ég var þarna í Egilsbúð.  Siddi var í dyrunum...þar sem hann hefur staðið síðan löngu áður en ég fór að reyna - ég endurtek REYNA - að smygla mér inn á 16 ára böllin hérna í denn... Siddi glotti þegar ég kom og sagði; "Nafnskírteini?!!!" LoL

Svo þegar ég fór á wc varð mér líka hugsað til þess að ég fór ekki oft edrú í Egilsbúð í "gamla daga".  Vá hvað ég var glöð og ánægð að vera þarna bláedrú.  Mér finnst stórkostlega að þurfa aldrei að drekka áfengi aftur.  Hugsa enn með hryllingi til þess þegar ég drakk síðast.  Ekki að ég hafi skandalíserað, en mér finnst óþægilegt að missa tökin á tungunni...tala frá mér allt vit og hafa enga stjórn, óþægilegt að finna áhrifin og vont að vera þunn!!! 
Eiginlega fyndið að  ég skrifi þetta, man þá daga sem djammið var lífið og ég ætlaði sannarlega aldrei að hætta að drekka!!

Síðast var ég undir áhrifum áfengis í Egilsbúð í janúar 1999 og fæ enn hroll við tilhugsunina...Sideways

En það er nú ekki það sem ég ætlaði mér að skrifa um...

í sveitasælunniÁ laugardeginum fórum ég og Aðalsteinn bróðir og sýndum börnunum fjárhúsið og umhverfi.  Benti þeim á bakkann þar sem við systur sváfum í tjaldi margar sumarnætur, við lækjarnið og rólegheit.  Jóhannesi leist ekki á fjárhúsið, það var dimmt og hann vildi ekki fara þar inn!!! ísveisla á Ormsstöðum

Anna Móberg og Lilja Fanney gistu í sveitinni á laugardagskvöldinu og eftir kvöldmatinn fengu ormarnir allir ís.  Hér er ein af hópnum!! 

Jamm, þetta var skemmtileg helgi.  Lilja og Eysteinn komu svo á mánudaginn, með Ými í sveitina í fyrsta sinn.  Það var auðvitað slegist um að fá að halda á litla gullmolanum.  Jóhannes og Jón Ingvi voru stoltir að halda á litla frænda. 

Jæja, að lokum er ein mynd af okkur systrum.  

þrjár systur

 


Ferðasagan

Við keyrðum sem sagt sem leið lá frá Akranesi til Neskaupstaðar s.l. fimmtudag.  Í blíðskaparveðri alla leið.  Stoppuðum auðvitað fyrst í Staðaskála og fengum okkur ekta íslenskan þjóðvegarhammara...slafr...  Verst að þetta sukk fór illa í Ólöfu Ósk sem var hálf bílveik til Akureyrar.  Svo við stoppuðum á Blönduósi og í Varmahlíð til að leyfa henni að fá frískt loft.  

í bústaðnum hjá JónuÁ Akureyri stoppuðum við í 1½ tíma í bústaðnum hjá Jónu (tengdó).  Þar er hún búin að vera í sumar og njóta lífsins í þvílíkri paradís.  Bústaðurinn er ÆÐI og ekki spillti fyrir að okkar beið ilmandi kaffi og vöfflur með sultu og rjóma!pissustopp á Jökuldalnum

Svo var ætt af stað aftur, yfir Vaðlaheiði.  Næsta stopp var Mývatn, þar var keypt kaffi og ís.  Pissustopp á Jökuldal og teygt úr fótum á Egilsstöðum...og þá vorum við farin að nálgast endastöðina okkar ískyggilega.  Þegar við komum út úr Oddskarðsgöngunum (og ekki orð um þau meir!!) þá eiginlega misstu börnin sig í spenning.  Lætin mögnuðust og gleðin var mikil þegar við renndum í hlað á Ormsstöðum. 

stolt móðursystirDagarnir í sveitinni liðu alltof fljótt.  Við nutum samvista við foreldra mína, systkini mín og þeirra fjölskyldur.  Hittum Ými og knúsuðum hann...sérstaklega ég!!!  Hann er alger draumur í dós.  Fær mig næstum því til að langa í kríli...en samt ekki!!  En yndislegur er hann!!Jóhannes, Felix og Gunni

Svo var stuð á Neistaflugi og eins og ég skrifaði í gær þá hitti Jóhannes þá félaga Gunna og Felix...

En ég ætla ekki að skrifa meira í kvöld, ætla í bað og svo í bælið...

Megi mátturinn vera með ykkur öllum...Heart


Halló elskurnar!!

Jæja, ég var að detta inn úr dyrunum fyrir rúmum klukkutíma...eftir að hafa verið á ferðalagi síðan 8.13 í morgun!!  Svo ég er þreytt...og er að fara að vinna á morgun...svo þið fáið ekki neina ferðasögu núna.

Ég skrifa örugglega meira á morgun og set inn myndir frá helginni.   En þetta get ég sagt:

- Ýmir er algert YNDI.  Hefði viljað vera lengur á Norðfirði til að geta knúsað hann enn meir.  Gat varla sleppt honum.

- Neistaflug var vel heppnað!!

- Jóhannes hitti átrúnaðargoðin sín, Gunna og Felix!!!

- Ég fór út á lífið!!!

- Ég hitti FULLT af FRÁBÆRU fólki, sem ég hitti ALLTOF sjaldan!!!

- Mér var boðin vinna.... 

Ekki meir í bili...smáatriðin koma síðar...

Until then; Verið góð við hvort annað Heart


Eilífðarhamingja

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að
halda  maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.

En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og
 um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg
efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá
 fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft
   niður undir hné.

En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu
 dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur
betri   dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við
 þessum þremur hlutum


1. Rigningardegi 2. Týndum farangri 3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar,
 komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það
sama  og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með
 hornabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa
   boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég
 yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir
 þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir
 ekki hvernig þú lætur því líða.

Hann heitir...

...ÝMIR!!  Litla bjútíið hennar Lilju sys. 

---

Svo ég svari nú "fyrirspurnum" úr kommenti...jú, pylsurnar eru komnar niður fyrir bringspalir...!!!

Góð helgi að verða liðin.  Meir um það síðar...er í bloggleti...Pinch

---

Afmælisbarn dagsins er vinkona mín hún Inga Rós.  Inga Rós er ein þeirra fjölmörgu vina sem ég eignaðist í Danmörku.  Kynntist henni í kirkjuskólanum í Jónshúsi, þá bjó hún og familían í Ballerup. Síðar fluttu þau til Slagelse og þá hittumst við því miður voða sjaldan.

Elsku Inga Rós, góðar kveðjur til þín í tilefni dagsins. Heart


SS pylsur...

...rosalega góðar...en þungar í maga...sérstaklega ef maður borðar 2 stykki...eða sko þegar ÉG borða 2 stykki...ég er með æluna upp í háls...remólaðið spilar kannski þar inn...ég ELSKA remó...Heart...nammi, namm.  SS pylsur voru eitt af því sem ég saknaði mest þessi 9 ár í 'útlegðinni' í Danmörkinni minni.  

Reyndar var ýmislegt annað sem ég saknaði líka, og þá m.a. - og mest - fjölskyldan.  

Um næstu helgi ætlum við að halda afmæli fyrir drengina okkar.  Börnin (og við ekki minna) elska FJÖLSKYLDUAFMÆLI, enda er það eitthvað sem þau hafa ekki þekkt fyrr en s.l. ár.  Reyndar eigum við stóran og yndislegan vinahóp í Danmörku, sem var (og er) fjölskyldan okkar.  En það er eitthvað sérstakt fyrir börnin að fá afa og ömmur í afmæli til sín.  Svo þau hlakka öll mikið til, þessar elskur.

Ólöf Ósk er strax búin að biðja mig að halda sameiginlegt afmæli fyrir mig og hana í haust... "svona fjölskylduafmæli", sagði hún.  Og ég get sko ekki neitað henni um það (og kannski fæ ég smá pakka líka Grin).

En familía, ef þið lesið þetta...þá takið þið frá seinni partinn á laugardaginn eftir viku (11. ágúst).  

-----------

Reynir ZëegaSvo eru eiginlega tvö afmælisbörn...eitt í gær; Reynir Zoëga, hann varð sko 39 ára í gær!! (ellismellur...úff, hvað er ég þá...LoL) Við Reynir brölluðum ýmislegt saman í gamla daga...og Sverrir Ágústar bjó til þessa líka 'dýrindis' vísu um okkur...veit ekki hvort ég á eitthvað að birta hana hérna.  En hvað um það, ég og Reynir voru perluvinir í mörg ár, svo skildu leiðir eins og gengur og gerist.  En ég hugsa alltaf til hans á þessum degi.

 

Hitt afmælisbarnið á afmæli í dag og er það fyrrverandi mágur minn, hann Gústi sem er líka 'dörtí-næn'.  

Ágústmánuður rétt að byrja og þetta er bara rétt byrjunin í afmælisörtröðinni...Wizard

Nenni ekki meir...bið ykkur vel að lifa og megi mátturinn vera með ykkur öllum. 


Stolt móðursystir :)

Liljustrákur EysteinssonLitla bjútíið sem kom í heiminn í morgun! Heart

Elsku Lilja, Eysteinn og strákahópurinn! Til hamingju með nýjasta prinsinn!!

Hann er algert yndi!!! InLove 


Þá er það afmælisbarn dagsins!!

Jón IngviElsku strákurinn okkar, Jón Ingvi, er 7 ára í dag!!! 

Yndislegi molinn okkar.  Hann vaknaði kl 7.45 í morgun og beið rólegur eftir að pabbi hans kæmi heim hálftíma síðar og þá fékk hann tvo pakka.  Playmo!!!  Rómverska riddara, með tjaldi og svo bófa með 'alvöru' peningaskáp, með talnakóða og alles!!  Hann er svo ánægður með þetta, þessi elska. 

Um hádegið ætla Erla sys. og fjölskylda að koma og eyða deginum með okkur.  Og ég er búin að baka Daimístertu að ósk afmælisbarnsins Smile

 


Drengur Eysteinsson

Sms´ið kom rétt áðan:

Drengur Eysteinsson fæddur :-) sprækur og hress, nánar síðar.

3360 gr og 50 cm

--------------

Yndislegar fréttir.  Enn einn drengurinn í hópinn.  Lilja er, og verður, drottning í sínu ríki!!!  

Jiiiii hvað ég hlakka til þegar ég fæ að knúsa þau öll.   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband