Færsluflokkur: Bloggar
22.10.2007 | 22:44
Jæja...
...það tók "bara" 6 tíma að setja 6 myndir inn á barnanetið!! Frekar lélegt...en þannig var það í þetta skiptið. En nú eru komnar nokkrar myndir af þakinu!! Reyndar bara bílskúrsþakinu...það var svo ógeðslega kalt og hvasst að ég lagði ekki í að labba bakvið húsið...geri það þegar lægir!!!
Gluggarnir væntanlegir á þriðjudaginn...eða fimmtudaginn...man ekki alveg hvað Einar sagði...gluggarnir koma nefninlega og svo Ingvar...ekki allt á sama tíma...!!
En gluggarnir koma bráðum!! Svo það fer aldeilis að styttast í að það verði fokhelt, og þá verður hægt að drekka kaffið inni í húsinu!!! Já, og auðvitað verður þetta alger lúxus að geta unnið inni í vetur! Aðallega fyrir minn heittelskaða, þar sem hann er mest í þessu.
---
Svo er það Kaloríubomban...:
3-4 eggjahvítur
150 gr sykur
100 gr möndluspænir
Sykur og eggjahvítur stífþeytt, möndlum blandað varlega saman við.
Bakað í eldföstu móti eða álformi.
150° C í 45-60 mín.
3-4 eggjarauður
75 gr sykur
2 stór daim
1 peli þeyttur rjómi
Eggjarauður og sykur þeytt vel saman. Daim sett út í og rjóminn. Látið ofan á kalda kökuna og fryst.
Borið fram beint úr frysti.
Ég held að það væri mjög gott að blanda 50/50 rjóma og soyarjóma, þá verður ísinn ekki eins grjótharður. Bara hugmynd...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.10.2007 | 16:41
Núðlukjúlli
Skinnlausar kjúklingabringur 200g,
1 laukur,
3 hvítlauksrif,
1 msk rifið ferskt engifer (eða þurrkað),
40 ml Hoisin-sósa,
Ólífuolía 2 msk,
1 sítróna,
250 g Kínverskar eggjanúðlur,
250 g frosin kínversk grænmetisblanda,
smáskvetta af Ketjap Manis sósa (sæt sojasósa).
1. Skerið kjúklingabringurnar í strimla eða litla bita.
2. Hellið 2 matskeiðum af sítrónusafa yfir kjúklinginn ásamt 1 matskeið af rifnu engifer og 1 matskeið af Hoisin-sósu.
3. Látið marinerast (gjarnan yfir nótt í kæli).
4. Skerið laukinn og hvítlaukinn. Hitið olíuna á pönnu og mýkið laukinn og engiferið í olíunni þar til laukurinn er orðinn glær.
5. Takið af pönnunni.
6. Sjóðið eggjanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
7. Bætið olíu á pönnuna og gegnum steikið kjúklinginn. Takið af pönnunni.
8. Steikið grænmetisblönduna á pönnunni, bætið síðan öllu á pönnuna og hrærið vel saman. Setjið smáskvettu af Ketjap Manis yfir.
Salat til að hafa með:
2 perur, 1 appelsína, 1 agúrka - skerið perurnar, appelsínuna og agúrkuna frekar smátt og blandið saman og berið fram með núðluréttinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2007 | 11:25
Hæ
Verð að deila með ykkur góðu kökunni sem ég gerði fyrir laugardagskvöldið. Hún sló bara í gegn hjá mér...hinir voru of uppteknir af Kaloríubombunni... Svo tók ég reyndar afganginn með í vinnuna í gær og þar sló þessi kaka hressilega í gegn. Svo þið verðið líka að fá að njóta
Þetta er uppskrift af Café Sigrún.
Dökk súkkulaðikaka (án súkkulaðis)
Gerir 1 köku
- Botninn:
- 1 bolli möndlur (ég miða við 250 ml bolla)
- 1,5 bolli cashewhnetur
- 1,5 bolli döðlur. Láta liggja í sjóðandi heitu vatni í um 15 mínútur. Ekki henda vatninu eftir á, þið þurfið kannski að nota smávegis af vatninu í kökuna, ef hún er of þurr.
- 1,5 kúfuð msk gott kakóduft.
- 1/4 tsk heilsusalt
- 1 banani, vel þroskaður
Aðferð: - Blandið fyrst hneturnar vel í matvinnsluvél bætið svo salti og carobi saman við. Geymið í skál.
- Blandið saman döðlur og banana þangað til vel maukað.
- Blandið saman við innihaldið í skálinni (carobið, saltið og hneturnar).
- Kælið í um klukkutíma.
- Hellið kökunni á þann disk eða bakka sem bera á kökuna fram á og mótið kökuna með t.d. sleikju. Það má hafa hana ferkantaða, kringlótta (hjartalaga þess vegna!) en aðalatriðið er að hún verði ekki of þykk (fínt að hafa hana svona 2 cm. á hæð).
Ég setti svo súkkulaðið af gulrótarkökunni ofan á:
Súkkulaði
1 1/4 dl hreint kakó
3/4 dl kókosolía
1/2 dl agave
vanilludropar
Allt sett í skál og hrært vel saman. Síðan er kreminu smurt yfir kökuna.
Bera kökuna fram með rjóma. Algert nammilaði með góðum kaffibolla!!!
---
Set kannski inn uppskrift af Kaloríubombunni á eftir...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.10.2007 | 19:48
Jæja...
...vona að þið hafið ekki saknað mín of mikið
Hafði alls ekki tíma fyrir blogg í gær. Var að vinna til 16.10, brunaði þá upp í hús til að sjá hvernig gengi með þakið (tek myndir á morgun!!!), svo brunaði ég heim til að gera heita réttinn og súkkulaði á kökuna (þessi sykurlausu). Svo að breyta smá...setja stóla inn í stofu, og moppa það sem var bakvið sófann. Einar var reyndar kominn heim þegar þarna var komið við sögu og tók fullan þátt. Svo var það bað og hárblástur...hysja sig í spjarir...og volla!!
Og svo komu gestir!!!
Við áttum FRÁÁÁBÆRT kvöld. Það var góð mæting, það var mikið hlegið og mikið spjallað. Algerlega frábært fólk.
Og ég hef sjaldan verið eins södd. Því vá, þvílíkt góðu réttirnir sem allir komu með...og svo desert á eftir...og mikið kaffi drukkið.
Hreinasta snilld. Hlakka sannarlega til að hitta allt þetta frábæra fólk aftur.
Er að hlaða myndum inn hér.
---
Það er búið að setja þak á húsið!!! Spennó!!! Á eftir að fara að skoða. Gaman, gaman.
En núna ætlum við Einar að horfa á skemmtiþátt í félagsskap Jóns Ingva. Það er fátt skemmtilegra en að horfa á skemmtiþætti með honum, hann hlær svo dátt og smitandi, þessi elska.
Have a nice time, það ætla ég amk. að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2007 | 19:11
Partý on!!!
Partýið hjá Ólöfu Ósk byrjaði kl. 18.30 og stendur til 22.30... Hún og Alexander standa fyrir náttfatapartýi...þau byrjuðu á einhverjum leik, svo komu þau fram og borðuðu hamborgara sem ég steikti fyrir þau...og ó mæ god...þvílíkar gaggandi hænur, öll 9!!!
Núna eru þau inni í herbergi...ætla að liggja í rúminu, á dýnu og vindsæng og glápa á einhverja mynd...og troða í sig snakki og nammi.
Sem sagt algert nice partýkvöld. Þau eru yndisleg, öll sömul. Og greinilega gott á milli allra, góður vinskapur. Frábært.
Við hjónin ætlum svo að horfa á síðustu 2 þættina af 24 tímum...veit ekki hvaða seríu...en eitt er víst; Jack is back!!! Sætur að vanda.
Svo er það vinna á morgun og svo partý hjá okkur fullorðna fólkinu annað kveld. Nice weekend!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.10.2007 | 13:30
Jamm og já
Ég spjallaði við Lilju sys. í morgun...í tæpan 1½ klukkutíma...í 3 sinn á viku...eða svo. Við tökum svona tarnir annað slagið, svo líður lengra á milli símtala þess á milli. En það er gott að eiga góða systir...systur. Því ég er, eins og þið vitið þá á ég nokkrar slíkar
Svo hringdi Elín sys. líka. Langt síðan ég hef heyrt í henni og ég fann hvað ég er farin að sakna hennar.
Talaði líka við Erlu sys. í gær.
Vantar bara að heyra í Maríu
Annars er ég búin að hringja mig inn veika fyrir kvöldvaktina. Það var töluvert erfitt...en komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki gamla fólkinu bjóðandi að hafa mig yfir sér...með æluna í hálsinum og jafnvel smita þau af þessum fj....!! En ég geri ráð fyrir að vera orðin frísk á morgun, treysti á að ég hrista þetta af mér jafn fljótt og börnin gerðu!!
Er búin að liggja inni í rúmi og glápa á eina ameríska vellu...og prjóna...hvað annað?!!
Best að fara að telja hvað koma margir annað kvöld...þurfum víst að fá lánaða stóla...
Knús&kærleikur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.10.2007 | 19:38
Eins og drusla!!!
Mér er illt og ég er slöpp...eins og drusla, gæti sofið út í eitt...!!
Skil ekki hvað er málið með mig. OK, ég er þó sennilega að verða búin að komast að því að ég þarf að prófa að taka út feitar mjólkurvörur...eins og ég gerði sumarið 1991 og lagaðist til muna í ristlinum. Undanfarið hef ég verið að fá ristilkrampa...og get hreinlega beintengt það við þegar ég hef fengið mér t.d. brauð með osti og/eða drukkið mikið kaffi...með nýmjólk...hverju öðru??!!!
En mér reynist þetta bara ekki eins auðvelt og þarna sumarið 1991. Á þeim tíma drakk ég t.d. ekki kaffi, bara mjólk og gat án vankvæða skipt yfir í undanrennu. Ég get hins vegar ekki hugsað mér að drekka undanrennu í kaffið (ojojoj) og hvað þá að hætta að drekka kaffi!!
Ég er fyrir nokkru síðan búin að kaupa mér soyamjólk...og ætla að prófa...um leið og ég þori!! Frétti reyndar í gær að aðaldrykkurinn á kaffihúsum höfuðborgarinnar sé Soya Latte. Svo ég kemst í tískuna ef ég læt verða af þessu.
Hvað svo með brauð með osti? Ok, ég borða það kannski ekki oft...en mér finnst soyaostur VONDUR!!! Hef smakkað hann!!
Meira um þetta síðar...núna ætla ég að lesa fyrir drengina mína. Nýjustu bókina þeirra; "Víkingarnir koma".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.10.2007 | 12:09
Steinrotaðist...
...fór sko á fætur með börnunum, kom stelpuskottinu af stað í samræmdu (meira um það á eftir...), skutlaði Jóhannesi í leikskólann, fór að æfa og svo heim...í sturtu...og lagðist svo aðeins fyrir...þetta var fyrir 2 tímum...
...og eins og sjá má á myndinni þá svaf ég meira að segja ullarsokkalaus...!!!
...sem gerist ekki oft...upplýsingar þessar eru ætlaðar ykkur til gagn og gamans
Annars er ég í prjónagírnum, kláraði IA leistana á Jón Ingva í gær...og Einar langar SVO í svona líka...
Fór og keypti meira í garn áðan, áður en ég fór heim og sofnaði...
---
Heyrðu, ég sagði að það kæmi meira um samræmduprófin... Ég veit ekki alveg hvað mér finnst, jú, eiginlega þykir mér þetta bull og vitleysa. OK, ég get skilið samræmduprófin í 10. bekk, þau skera úr um hvort krakkar fari í hraðferð eða hægferð (var amk kallað það þegar ég var á þessum aldri...fyrir 21 ári síðan...!!). En þessi samræmdupróf í 4. og 7. bekk... Sko, hérna í skóla barnanna er t.d. verið með yfirlýsingar eins og; "Við pössum upp á að skapa enga pressu", "Þetta er ekki próf, bara könnun". ENGIN pressa!!!
SAMT; eru þau látin vinna verkefni, gömul samræmd próf, í fleiri vikur fyrir þessar "kannanir"!!
SAMT; er haldin hátíð í skólanum ef þau koma vel út!!! Því að skólinn, og kennarinn, fá ekki fallega mynd á sig ef krakkarnir koma illa út...!!!
Mér þykir þetta DOBBEL MORALSK!!!
---
Mér finnst prófavesen á íslendingum, sennilega vegna þess að ég bjó svo lengi í Danmörku þar sem ekki er verið að stressa sig í að prófa börnin á þennan hátt.
Hins vegar er ég að vinna með einni sem bjó álíka lengi í Þýskalandi...og henni þykir of LÍTIÐ af prófum!!
Svona er þetta misjafnt.
En núna ætla ég að fá mér morgun/hádegismat...BRUNCH!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.10.2007 | 18:54
Beiðni um aðstoð!
Ásdís bloggvinkona mín bað mig að hvetja ykkur öll til að skoða ÞETTA og skrifa undir!!!
---
Af mér er allt gott að frétta. Reyndar fer illa í mig að vinna kvöldvakt-morgunvakt svo ég er gersamlega búin að vera eftir þessu stuttu skipti. Ég er ekki sami jaxlinn og minn heittelskaði sem getur tekið t.d. 4 vaktir í röð með stuttum skiptum (vinna 8 tíma-sofa 8 tíma-vinna 8 tíma o.s.frv.).
Ég var að vinna kvöldvakt í fyrrakvöld og morgunvakt í gær...og ég var gersamlega búin að vera þegar ég kom heim. En gat ekki sest niður og slappað af því ég þurfti að taka til og snurfusa þar sem það var fólk að koma og skoða kl. 18.30...ég get sagt ykkur að það munaði litlu að ég hringdi grátandi í Einar...en lét mig hafa það og náði að gera fínt. Ólöf Ósk var lasin svo þar var enga hjálp að fá - en hún er annars mjög dugleg að hjálpa, og í ofanálag þurfti ég að taka hennar herbergi líka...
Allt náðist þetta og ég fór út á rúntinn með börnin meðan skoðað var. Við fórum í Olís og fengum okkur pylsur í kvöldmatinn...nema Ólöf Ósk sem var með ælufötu með sér...fékk sér saltstangir og kók...sem hún varla bragðaði á!!
Í dag er ég svo búin að vera uppi í húsi með mínum yndislega eiginmanni. Hann að brasa í þakinu, negla spýtur...og ég naglhreinsaði það sem eftir var og tók svo skurk fyrir utan en þar var orðið hættulegt fyrir krakkana að vera sökum margra naglaspýtna...
(Fleiri myndir að hlaðast inn hérna.)
---
Nú fer að styttast í heljarinnar geim hjá okkur. Við erum búin að bjóða systkinum Einar og frændsystkinum í föðurættina hans - og mökum - í hitting á laugardaginn. Þessir "krakkar" hafa alltaf haldið vel sambandinu, eða gerðu lengi vel. Svo nú á að gera tilraun til að skapa hittings-reglu...spennandi að sjá hvort einhver vilji standa fyrir næsta hittingi og hvort af því verði... Það eru einhvernveginn allir svo bissý eitthvað, svo lítið verður úr svona löguðu. Enda skipulögðum við þetta með löngum fyrirvara - amk. á íslenskan mælikvarða (erum dálítið dönsk...) - og sendum út skilaboð með 3 vikna fyrirvara...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.10.2007 | 00:17
Afmælisbörn dagsins
Ragnhildur frænka á afmæli í dag, degi á eftir sinni heittelskuðu. Elsku Ragnhildur, innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn. Efast ekki um að þú átt eftir að njóta dagsins vel. Megi hamingjan halda áfram að blómstra í þér.
Hitt afmælisbarnið er töluvert yngra, eða 4ra ára í dag. Hún les ekki þetta blogg, af (amk.) tveimur ástæðum; hún er ekki læs enda ekki mjög gömul...og svo er hún dönsk.
Þetta er stúlkan sem yngri sonur minn talar um sem kærustuna sína eða stúlkuna sína. Stúlkan sem hann ætlar að flytja til þegar hann verður 18 ára...sem sagt eftir tæp 14 ár...!!
Ida skvísa er sem sagt hitt afmælisbarnið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 179269
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar