Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Gullmót KR

Ólöf Ósk er að keppa í sundi á Gullmóti KR um helgina.  Hún var að hringja og segja mér hvernig gekk í gær:

- 50 m flug: bætti sig um 18 sek.

- 50 m skrið: bætti sig um 11 sek. - vann riðilinn

- 50 m bak: bætti sig um 16 sek. - vann riðilinn

Hún er ekkert smá dugleg, þessi stelpuskotta Heart


Ég ákvað...

...að fela síðustu færslu...af tillitssemi við litla frændur mína sem skoða bloggið mitt :)

Lilja, ég kem skilaboðunum til Einars! Ef hann var ekki búin að sjá þau...!  Og takk.  Og já, endilega hringdu í mig :)

Nú er tiltekt og þrif mál málanna...fasteignasalinn er að koma á morgun með fólk til að skoða...

Annars ekkert sérstakt. Blogga meira síðar...ætla að fá mér morgunmat og kaffibolla...smá power fyrir tiltektina!!!

Knús... 


Smá blogg...

...ekki vil ég að Jóna engist of mikið af fráhvarfseinkennum ;)

Við rétt náðum heim áður en gestina bar að garði.  Algerlega frábært að hitta þau.  Þetta voru Rakel, Keld, Ásdís og Sophie.  

Jóhannes faldi sig inni í þvottahúsi...ægilega feiminn.  Svo fórum við, fullorðna fólkið, inn í eldhús að gera kaffi og þá hljóp hann inn í herbergi og fór að leika við Sophie...á dönsku!  Sophie er ári eldri en hann og þau hafa þekkst frá fæðingu...fæðingu Jóhannesar sko ;)

Jón Ingvi og Ásdís hafa alltaf náð vel saman, en Ásdís er 3 árum eldri en hann.  Svo þau áttu góðan eftirmiddag saman.

Svo var það Disneyshow fyrir börnin kl 19.00, með popcorni ;)

Við hin, ég, Einar, Rakel og Keld, fengum okkur hins vegar þessa himnesku súpu og mjög góðar bollur.  Mér finnst snilld að láta bolludeig hefast svona í ísskáp.  Smella í deigið að morgni og þá er það tilbúið til notkunar þegar ég kem heim úr vinnu.  Eða smella í deig að kvöldi og henda svo bollum í ofninn að morgni; súper morgunmatur!

Jamm.

En núna ætla ég að setja utan um eitt stykki rúm og fleira skemmtilegt ;)

Set inn myndir á morgun...held ég...

Kyss.... 


13 ár!!

Í morgun voru 13 ár síðan óléttuprufan var jákvæð!!!  8½ mánuði síðar fæddist prinsessan okkar, Ólöf Ósk. 

Mér finnst hreint út ótrúlegt að það séu liðin 13 ár, það er svo stutt síðan...en samt svo langt.

Margt hefur vissulega breyst á þessum árum, og út frá okkur fjölskyldunni get ég með sanni sagt að það hefur eingöngu breyst til batnaðar.  

Eigiði góðan dag, elskurnar.  Ég er að elda súpu fyrir morgundaginn, fáum góða gesti frá Danmörku í mat  á mogun...og ég er að vinna til 16 og Einar líka...svo ég er að flýta fyrir ;) Bollurnar verða látnar hefast í ísskáp frá 7 í fyrramálið og þar til við komum heim.  Þið getið fengið uppskriftina ef þið viljið...er bara að flýta mér núna...

...á sko eftir að fara í bað...og klára súpuna og svona áður en ég fer á fund kl 15...

Sí jú! 


Kjúlli kjúll

Ég fékk þessar uppskriftir sendar frá vinkonu minni.  Er ekki búin að skoða þær, en langar að deila þeim með ykkur. 

Skrifa meira síðar...er eitthvað andlaus...en þarf að taka myndir af kjólnum...sem ég er búin með!!  Á bara eftir að ganga frá nokkrum endum og svo að þvo dýrið!!! 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Jóhannes og gullkorn gærkvöldsins

Jóhannes gat ekki sofnað í gærkvöldi.  Hann var heima í rólegheitafríi í gær og það er uppskrift á að hann geti ekki sofnað á kvöldin...maður þarf sko að vera þreyttur til að geta sofnað!!!

Nema hvað. Ég sat inni í rúmi að prjóna og horfa á breskan sakamálaþátt á DR1.  Jóhannes sat hjá mér og spjallaði.  Svo var hann nú farinn að þreytast eitthvað og spurði mig hvort hann mætti ekki bara sofa hjá mér í nótt.  

Ég sagði honum að hann mætti sofna hjá mér og svo myndi pabbi hans fara með hann inn í hans rúm þegar hann kæmi inn í rúm.  Jóhannes ljómaði af gleði og lokaði augunum eitt augnablik.  Opnaði þau svo aftur og sagði;

"Einu sinni þegar ég sofnaði hér hjá þér, og svo vaknaði ég í mínu rúmi...þá hélt ég að ég hefði FLOGIÐ!" 

Lífið er svo einfalt þegar maður er 4ra ára Heart

Jóhannes á öskudaginn


Myndir teknar í morgun...

...á nokkurn veginn sama stað og myndin hér að neðan sem var tekin fyrir ári og einum degi.

IMG_1415

 IMG_1416

 


Fór í ránsferð...

...og rændi þessari mynd af síðunni hjá mínum heittelskaða.  Hún er tekin fyrir nákvæmlega ári síðan...og síðan hefur margt og mikið breyst á nákvæmlega þessum stað...núna stendur húsið okkar flotta þarna!!!
 11. feb. 2007


Afi-lafi-pottaskafi!

Þetta sagði hann oft sjálfur hann afi minn.  Afi minn sem hefði orðið níræður í dag. Nonni afi.Ég, Ólöf Ósk og Nonni afi

Afi sem sagði; "elskið friðinn og strjúkið kviðinn".

Ég á fullt af góðum minningum um Nonna afa, eða afa á Ökrum, eins og við kölluðum hann líka.  

Afi vildi allt fyrir okkur gera, og sagði aldrei nei.  Afi átti alltaf fulla geymslu af pappír til að teikna á, og oftast var kassi af eplum og appelsínum í geymslunni líka.  Og oft kassi af mandarínum!  Þetta var æði.

Allir bíltúrarnir, í gamla Grána, í vörubílnum og síðar í Toyotunni og síðast í Mözdunni. 

Afi átti alltaf tíma fyrir mig.  

Afi dó 15. mars 1999.  Bráðum 9 ár síðan og það líður varla sá dagur að ég hugsi ekki til þín, elsku afi. 

Ólöf Ósk náði að kynnast langafa sínum, en hún man því miður ekki eftir honum.  En ég er þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með afa.  Afi sá ekki sólina fyrir litlu prinsessunni.  

Ég vildi óska að strákarnir hefðu náð að eiga tíma með afa.  Sérstaklega kannski Jón Ingvi, sem hefur alltaf verið mikið fyrir afa og ömmur, langafa og langömmur.

Að lokum ætla ég að deila með ykkur vísunni frá afa:

Sigrún elsku stúlkan okkar bjarta,
þú sífellt ert í hug okkar og hjarta.
Vertu alltaf þæg og góð við mömmu,
þá verðurðu líka ástin afa og ömmu.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband