Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Það er best að blogga!!

Ótrúlega bissý kona...hef varla tíma til að blogga...hvað þá að lesa blogg annara...og þó...kíki nú við hjá ykkur þó ég kvitti ekki alltaf.

Nema hvað.  Ég var  að vinna í gær, sko á kvöldvakt.  Fram að því var Rebecca hjá mér með krakkana sína.  Svo reyndar gistu þau hjá okkur í nótt og eru núna að tæma gáminn svo þau komist inn í íbúðina sína í dag.  

Við hjónin sofum enn í stofunni, en fáum að sofa í rúmi Ólafar Óskar í nótt...svefnsófinn er fínn...eina og eina nótt.  Ekki í margar nætur...og þá alls ekki fyrir tvo fullorðna...

Á morgun er ég að fara í valkyrjusaumaklúbb, ætla að taka með mér avókadó-kökuna góðu.  Reikna fastlega með að hún slái í gegn!!  Gerir það venjulega.

Geimfrúin kom í kaffi áðan og fékk þessa líka sætu kaniltertu með kaffinu og fór héðan alsæl.  Alltaf jafn yndislegt að hitta þig, elsku Valdís.  TAKK fyrir komuna og vonandi sjáumst við fljótt aftur. 

Það er enn einn skipulagsdagur kennara í dag, svo börnin eru heima.  Mér þætti svo gott ef dagvistin væri opin allan daginn þá daga sem skólinn lokar svona.  Dagvistin opnaði kl. 13 í dag, eins og alla daga.  Hvað eiga foreldrar að gera sem eru að vinna dagvinnu, og geta ekki tekið sér frí?  Ok þegar börnin eru orðin stór en hvað með börn t.d. í 1-3 bekk?  Ég get ekki skilið Jón Ingva eftir einan heima heilan dag.  Allt í lagi smá stund meðan ég skrepp út í búð, eða álíka, en ekki heilan dag. 
Kannski bjó ég of lengi í Danmörku...og finnst þetta þess vegna fráleit þjónusta...eða hvað? Ég trúi ekki að ég sé eina mamman sem hef þessa skoðun...!!  Ég er hins vegar svo lánsöm að vera í vaktavinnu og Einar líka í vaktavinnu svo þetta hefur ekki verið vandamál í vetur.  S.l. vetur var þetta vandamál þegar ég var í dagvinnu...og Einar í vaktavinnu þannig að hann var oft líka að vinna á daginn.  

Já, fussum svei!!!

Nenni ekki að pirra mig á þessu...finnst þetta bara furðulegt.  

Á morgun er ég væntanlega hluti af foreldraráði í Grundaskóla...og get kannski komið þessari skoðun minni á þessu á framfæri!!! 

Annars er ég að fara upp í hús á eftir að taka myndir...það er komin útidyrahurð í!!!  Oooohhh, spennandi...(hafiði heyrt mig segja það áður?!Wink)

En núna...Ljós&kærleikur... 


Helgin og kannski eitthvað fleira...

Jæja, elskurnar.  Best að gefa skýrslu yfir helgina.

Við byrjuðum á að bruna á hótelið þarna á föstudaginn.  Þetta fínasta herbergi, mun stærra en það sem við vorum í að Hótel Sögu á síðustu árshátíð.  Bæði baðkar og sturta og nice.  Nema wc-ið var hengt aðeins og hátt upp...erfitt að ná jarðsambandi sem getur verið nauðsynlegt stundum... Whistling

Nema hvað, við fórum svo út og ætluðum á Ruby Thuesday og smakka hammara þar...en það var bið eftir borði og við nenntum ekki að bíða.  Er Ruby Thuesday eftirlíking af Hard Rock????  Svipaði til þess amk.

Við enduðum nú á American Style, enda klikka þeir ekki í hamborgaragerð!!  Við vorum svo lögst upp í rúm á hótelinu með osta og kex og mynd í imbanum kl. rúmlega 21...  Rólegheita kvöld.

Á laugardagsmorguninn mættum við í morgunmat og hittum þar eitthvað fólk sem Einar þekkir...  Svo var það rúmleiðangur.  Við fórum og versluðum rúm, sem á að koma n.k. mánudag!!! Það verður ÆÐI!!! Svo skoðuðum við gólfefni og innréttingar og versluðum smá...m.a. smá pakka handa börnunum.  

Svo fór Einar á fund og ég í förðun.  Ég fór til Guðrúnar vinkonu og það var jafn yndislegt og alltaf.  Svo gott að sitja í rólegheitum og spjalla yfir góðum kaffibolla.  

Nema hvað, svo var að sækja Einar...og svo komum við við á Nonnabita...orðin ansi svöng enda ekkert borðað síðan í morgunmatnum...bara drukkið kaffi!!  

Upp á Hótel, borða, skipta um föt og svo hittum við Benna (tengdapabba) og Jónu á barnum og fengum okkur dýrindis kaffibolla...en vélin var biluð svo við fengum ekki latte...

Árshátíðin var rosalega skemmtileg.  Frábær skemmtiatriði, bæði þau aðkeyptu og þau heimatilbúnu. Ólafía Hrönn var veislustjóri og var mjög góð. 

Maturinn var mjög góður, en bara alltof lítið af honum.  Það var kjöttvenna; lambakjöt og nautakjöt, smá bitar og svo ein, lítil karftafla og smá grænmeti.  Grínlaust þá hefði þetta ekki verið nóg ofan í Jóhannes...og hann er 4ra ára!!!  Og svo það sem við höfum aldrei upplifað fyrr...það var EKKI ábót!!!  Desertinn var álíka nískulegur...og svo voru bara smákrakkar að þjóna sem vissu ekkert greyin, svo ég sleppti því alveg að athuga hvort ég gæti fengið sykurlausann desert.  En það fékk ég í fyrra, þá kom þjónninn með dýrindis ávaxtasalat handa mér.  

Svo kom kaffið, og það mátti bara setja eina kaffikönnu og eina litla mjólkurkönnu á hvert borð...og það var ekki nóg kaffi handa öllum við borðið...og við þurftum að biðja 4 þjóna og bíða í góðan hálftíma áður en við fengum meira...  

Þannig að...fyrir utan magn af mat og gæði þjónustunnar var þetta FRÁBÆR árshátíð!!!

Grandbandið, hljómsveit hússins, spilaði fyrir dansi.  Söngkonan þar var bara æðisleg, rosa hress, fyndin og geggjuð söngkona.  Hún söng í Tinu Turner showinu og var m.a. á Neistaflugi í sumar ásamt Siggu Beinteins...man ekki hvað hún heitir...  En amk., við dönsuðum meira en nokkru sinni og ég þurfti ekki að nöldra og suða til að fá minn heittelskaða út á gólfið, neibb, hann naut sín líka á gólfinu.  

Svo fórum við upp á herbergi milli hálf 2 og 2...eða svoleiðis, og pöntuðum pizzu...því við vorum glorsoltin W00t

---

Það var svo alveg yndislegt að koma heim í gær og fá knús og kossa frá ungunum.  Jóhannes ætlaði aldrei að sleppa mér, þessi litli mömmukarl. 
En það var búið að ganga mjög vel hjá þeim.  Alveg til fyrirmyndar, þessi börn Wink

Og tengdó var sko búin að gera fleira en "bara" passa...hún var búin að gera fiskibollur handa okkur úr 3 kg af fiski!!!  Gott að eiga fisk í frystinum þegar hún kemur í heimsókn...!!  Og frábært að hún hafi gert þetta, krökkunum þykja fiskibollurnar hennar LANGbestar!!

En vitiði...núna ætla ég að hringja í Lilju sys og þakka henni fyrir afmælisgjöfina sem mér barst fyrir helgi!!!

Knús... 


Örstutt...

...stendst ekki þessa pressu frá Rænku frænku Tounge híhí...

Annars get ég sagt ykkur það að ég var með gesti í gær og fór svo á kvöldvakt, svo ég náði bara ekki að tjá mig hérna inni.

Svo var ég koma heim úr vinnunni núna...og er að fara að gera mig klára fyrir helgina!!  Við hjónakornin erum að fara í helgarferð til Reykjavíkur!!  Barnapían er á leiðinni...og ég á eftir að pakka árshátíðardressinu og einhverju fleiru!!  

Guðrún vinkona ætlar að farða mig á morgun...hlakka til.  Ég nota aldrei neitt nema maskara og smá blýant, svo ég verð óþekkjanleg LoL svona eins og þegar við giftum okkur...mér dauðbrá þegar ég leit í spegil...bæði "nýtt" hár og "nýtt" andlit...hehe...

En sem sagt, ég er komin í bloggfrí fram á sunnudag.  Ekki sakna mín of mikið...

Við hjónakornin ætlum að njóta helgarinnar og hvors annars.  Og ég vona að minn heittelskaði nái að slappa vel af...honum veitir ekki af.

Nóg í bili.  Ást og friður... 


nenni ekki...

...að blogga. 

Er að spá í að drösla stól inn í herbergi og glápa á imbann og prjóna.  Nice.  Svo í nótt get ég kúrt nálægt mínum heittelskaða InLove - á svefnsófanum - án þess að detta niður í Helv....gjánna!!! LoL 

Svo held ég að ég sé farin að sjá fyrir endann á jólagjöfunum handa systkinabörnum...er amk. rúmlega hálfnuð!! Gaman að því.  Næstum því komin með allar jólagjafir sem eiga að fara austur!!  Magnað.  Svo er að fara að skella mér í að prenta út jólakortin. 

---

Annars hlakka ég mega mikið til helgarinnar...segi ykkur frá því síðar...

Bless í bili...ást... 


júbbí jey!!!

Rúmið er selt.  Setti rúmið okkar til sölu á barnalandinu í fyrrakvöld, og það seldist í dag!!  Svo nú verður farið og verslað annað rúm, að öllum líkindum samskonar dýna því við vorum mjög ánægð með hana, en í þetta skiptið HEIL dýna...því eins og ég hef áður sagt...ég hef sofið vel í rúminu þegar Einar hefur verið á næturvakt...en ekki eins vel þegar hann hefur verið í rúminu líka...því ég skríð alltaf yfir til hans...í svefni OG vöku og var þess vegna ansi oft hálf á minni dýnu og hálf á hans...eða með löppina vel skorðaða á milli...

En nú heyrir það sögunni til!!  Þangað til við kaupum nýtt rúm munum við sofa á svefnsófanum í stofunni!!  Herbergið okkar er mjög stórt núna, enda hálf tómt!  Ekkert sjónvarpsgláp eða neitt slíkt, nema bera stóla inn í herbergi.  

---

Benni og Jóna (tengdó) kíktu við áðan og vildi svo heppilega til að ég var með MIKINN mat í ofninum, svo við buðum þeim að borða með.  Þau voru ægilega hrifin af ostabollunum, þær slá eiginlega alltaf í gegn.  Svo prófið endilega. 

Ég er enn verkjalaus...kannski er þetta alls ekki mjólkurfitan sem er að gera mér lífið leitt?! Ég verð að analysera þetta betur...

Jæja, er að fara á fund ;) Knús&kossar... 


Ég er EKKI ólétt!!!

Og hana nú!!!

Skil samt ekki þessa magaverki og ógleði.  En núna ætla ég að prófa að taka feitu mjólkurvörurnar út!! Kaupi meiri soyamjólk...eða kannski hrísmjólk...hvernig ætli hún sé hituð??  Jóna, hefurðu reynslu?? Hefurðu prófað hrísmjólk í te-latte´ið þitt??

---

Fór á fætur með skólabörnunum okkar í morgun, skreið svo upp í aftur þar sem leikskólatappinn okkar var sofandi enn.  Einar var líka sofandi, hann er að fara á næturvakt.  Nema hvað, ég náði eiginlega ekki að sofna aftur, reiknaði með kalli frá þeim stutta fljótlega.  Nema hvað.  Svo heyri/skynja ég, að hann opnar hurðina og trítlar inn...og er kominn að rúminu...ég átti von á að hann myndi hoppa upp í á hverri stundu...þá kallar hann - úr rúminu sínu!  Ég er ekki í vafa, þetta var fylgjan hans, komin á undan honum.  Ekkert óþægilegt við þetta, bara gott sem honum fylgir Smile  Hef ekki fundið fyrir svona fylgju áður, þó ég hafi skynjað og séð ýmislegt gegnum árin.

---

Núna ætla ég að fara að hræra í ostabollur...og steikja.  Tók út 2,5 kg af hakki og nú verður steikt í löngum bönum!!!

Ostabollur, uppskrift frá múttunni minni.

400 gr nautahakk
100 gr rifinn ostur
1 dl raspur
2 dl mjólk
1 st egg
kjötkraftur - Kød og grill

Öllu blandað vel saman, gerðar bollur, velt upp úr raspi, steikt á pönnu, sett í ofn og steikt "færdigt".
Borið fram með kartöflum og feiti...Bernais fyrir þá sem það vilja (Einar t.d. elskar Bernais...ég er ekki eins hrifin...)

---

Bless í bili.  Ást... 


ojojoj

Ég skil ekki hvað er hlaupið í magann á mér... Síðan ég fékk þessa magapest fyrir rúmum 3 vikum (eða tæpum 4) hef ég fengið annað slagið svona geðveikt ógleðikast.  Ligg á sófanum og líður ömurlega.  Í dag fylgdi hausverkur...eða þá að ógleðin tengdist hausverknum...!!  Don´t know.

Hins vegar er ég eitthvað sjúkdómahrædd þessa dagana...ætti kannski að fara í heilsufarstékk (eins og sumir vinnustaðir bjóða reglulega upp á)?!!  Hef einu sinni farið í blóðtékk, svona til að ath með kólesteról...og svoleiðis, því það eru hjarta-og æðasjúkdómar í ættinni...ættunum mínum.  

---

Nóg um það.

Hér stendur yfir gelgjupartý.  Ólöf Ósk bauð stelpunum úr bekknum í síðbúna afmælisveislu.  Það voru steiktir hamborgarar ofan í liðið og svo liggja þær inni og horfa á einhverja bíómynd og troða í sig snakki og nammi.  Það er víst mál málanna...!!  13 stelpur og lokaður gluggi = táfýla og súrefnisleysi!! Vona að þær fái ekki hausverk...af súrefnisleysinu...!!

Ég og Jóhannes voru í fríi í dag.  Dútluðum okkur í morgun, fórum seint á fætur, fórum í bað og áttum góðan tíma saman.  Svo skruppum við í nokkrar búðir og síðan í kaffi á efstu hæðina.  Það var voða gaman hjá okkur.  Fórum heim rétt í þann mund sem ógleðin og höfuðverkurinn var að hellast yfir mig :( 

Jamm...best að prjóna smá...svo er foreldrafundur í sundhópnum hennar ÓÓ á eftir, út af Esbjerg-ferðinni sem hópurinn fer í, í maí.  Afar spennandi.

Meira síðar...

Ást... 


örstutt...

...skrifa meira á morgun...er á lífi...var að vinna um helgina...leiðindakvöld í gær...og so on.

Ást... 


TAKKKKKKKK!!!!!

Takk fyrir allar yndislegu kveðjurnar, sem ég fékk í gær.  Þið eruð yndisleg.

Ég er sko alveg sammála að 1970 er ÁRIÐ!!  Mér finnst ég bara alls ekki gömul, og heldur ekkert barn.  Held ég sé loksins að verða fullorðin LoL

Hvað varðar orð dagsins í gær um afmælisbarnið þá var bara Hrönn sem brást við spurningu minni...og sagðist ekki vita með hljómlistarhæfileikana en þætti hitt passa.  

Ég verð að vera sammála henni.  Ég hef aldrei kannað þetta með hljómlistarhæfileikana, svo ég veit ekki...hins vegar hefur mig í mörg ár langað að læra á gítar og hver veit nema ég láti verða af því einn góðan veðurdag.  En hitt er víst að ég ELSKA að syngja!!

Allt hitt, að ég sé listræn, samviskusöm, ábyggileg og gædd skilningsgóðum gæfum; ég held ég bara segi já, þetta er ég.

Ég er rómantísk og hef orðið fyrir sárum vonbrigðum...ég giftist ekki mjög snemma en heldur ekki seint, ég var 28 og hálfs. 
Vonbrigðin er ég þakklát fyrir í dag, þó þau hafi verið sár á sínum tíma.  Hins vegar, ef ég hefði ekki orðið fyrir þessum vonbrigðum og  orðið meira úr því sambandi, sem ég fæ í hugann, þá væri ég líklega bara ekki gift Einari...og það get ég ekki hugsað til enda.

Enda trúi ég því statt og stöðugt að við séum ætluð hvort öðru og ekkert hefði fengið því breytt!!!

Þegar við Einar kynntumst, árið 1995, þá kom fljótlega í ljós að við þekktum margt af sama fólkinu, þó svo að leiðir hafi ekki legið saman fyrr.  En það var strax þá greinilegt að við ÁTTUM að hittast.  Frekar magnað.
Síðan hefur margt gerst sem hefur styrkt okkur bæði í þeirri trú að við vorum "ment to be".  Og við erum líka svona ljómandi ánægð með það...og hvort annað líka InLove Það er gott að geta sagt að ég er gift besta vini mínum.  Ég hlakka til að verða MIKLU eldri en 37...með honum.

Ég var í vinnunni um daginn og þar eru hjón á níræðisaldri sem alltaf leiðast þegar þau labba saman, og þau eru mjög ánægð með hvort annað.  Ein sem ég vinn með spurði mig hvort ég ætlaði að vera "svona" með mínum karli þegar ég yrði gömul.  Ég sagði henni að við stefndum að því, og óskuðum þess að okkur bæri gæfa til þess. 
Og við æfum okkur, því það er ekki þannig að "nú erum við 83 og þá byrjum við að leiðast".  Ég trúi að við verðum að æfa okkur alla ævi, og við verðum að hlúa að hvort öðru að og sambandinu, því annars leiðumst við ekki þegar við verðum 83!!!  

Eins og sagði í ljóðinu sem við fengum í brúðkaupsgjöf;

"...Þau vita reyndar bæði að gæfan hún er garður,
ef garðurinn er ræktaður þá verður mikill arður..."

---

En nú ætla ég að skoppa af stað með Jóhannes í leikskólann...hann ætlar EKKI að missa af samsöng!!

Ljós&friður til ykkar þarna úti... 

 

 


Ég á afmæli í dag...

Takk fyrir kveðjurnar sem þegar hafa borist!! Kissing ég

Mér finnst skrítið að hugsa að ég sé 37 ára!  Ef ég vissi ekki betur þá myndi ég sennilega halda að ég væri svona 25...var lengi vel 18...en er það ekki lengur...sem betur fer LoL

Ég veit ekki afhverju mér finnst skrítið að vera 37, kannski af því að ég man svo vel eftir fertusafmælinu hennar mömmu...og mér fannst hún svo svolítið gömul... kommon...FERTUG!!!  En svona er þetta skrítið.  Mér finnst mamma ekkert gömul lengur og mér finnst ég ekkert gömul...en hins vegar þykir dóttir minni það stundum...

Hvað um það.

Ég fór að æfa í morgun og sat svo í næstum klukkutíma, þambaði kaffi og spjallaði við kerlurnar sem þar voru.  Mjög gaman.  Gréta, date-ið mitt, mætti rúmlega 8 eins og um var samið, var að koma af næturvakt.  Ætlum að hittast aftur í fyrramálið, sami staður, sami tími.  Mér finnst æði að hafa hana með í þessu, og held það sé gagnkvæmt.  Eintóm hamingja Heart

við hjónakorninKom svo heim og komst að því að minn heittelskaði var enn vakandi...hann var sko á næturvakt...en hann hefði verið farinn að sofa...nema af því að hann langaði að knúsa mig InLove Yndislegast.

En núna ætla ég að fá mér morgunmat og vinna ákveðið verkefni sem ég hef frestað undanfarið...en þetta þarf að vera klárt í kvella þegar til mín kemur kona til að heyra hvað ég hef fram að færa...Cool

Njótið dagsins og þess sem lífið hefur upp á að bjóða...

Að lokum þetta úr gömlu afmælisdagbókinni minni um persónu fædda 8. nóv.:

Þú ert mjög listrænn að eðlisfari og þráir fegurð, samstillingu og skraut í kringum þig.  En þú ert mjög samvizkusamur og ábyggilegur, og gæddur skilningsgóðum gáfum.  Þú hefur meðfædda hæfileika til hljómlistarstarfa.  Þú giftist sennilega snemma,og þar sem tilfinningar þínar eru mjög rómantískar, muntu bæði njóta mikillar hamingju og einnig verða fyrir sárum vonbrigðum.

---hvað segiði um þetta??? 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband