18.12.2006 | 15:34
I´m singing in the rain
Veikindum barnanna er að ljúka. Jóhannes er hitalaus í dag. Jón Ingvi var afar þreyttur í gærkvöldi, og hann óskaði þess innilega að hann væri veikur svo hann gæti verið heima í dag. Grátklökkur bað hann mig að mæla sig, og viti menn, hann var með 37,7. Viðmiðunarmörkin eru þau að 37,5 að morgni eru hiti, en ekki 37,5 að kvöldi. En þegar hitinn fer yfir 37,5 að kvöldi þá fer ég nú að líta á það sem hita. Svo þegar ég sagði honum að hann væri með smá hita þá heyrðist í honum; "YESS!!!".
Svo þeir bræður voru heima hjá pabba sínum í dag. Og hafa báðir verið hitalausir í dag, svo það er engin miskunn hjá Magnúsi á morgun, enda jólafríið á næstu grösum og þá hægt að slappa af.
Jóhannes svaf reyndar til 9.30 í morgun, greinilega að ná upp kröftum eftir hitahelgi.
Ég fór í vinnuna, og það var jafn gaman og áður. Fólk er duglegt við að segja mér hvað sé best að gera að námi loknu. Það eru skiptar skoðanir um hvort best sé að byrja á deild með líkamlegum kvillum (sómatískri deild) eða á geðdeild. Margir virðast á því að best sé að ná í reynslu á sómatískri deild, komast almennilega upp á lag með að leggja nál og svoleiðis. Svo sé hægt að snúa sér að geðinu. En ég er ekki svo viss. Ræddi einmitt við eina sem byrjaði á geðinu eftir útskrift og hún kom með góðan punkt. Hún sagðist vera á því að hún væri miklu betri hjúkrunarfræðingur þar sem hún byrjaði á geðinu og hefur þurft að setja sig inn í hin ýmsu geðrænu vandamál, þurft að læra að spyrja óþægilegra spurninga og að geta verið til staðar og leyft fólki t.d. að gráta. Og að læra að láta fólk sjálft koma með lausnirnar í staðinn fyrir að koma með tilbúna lausn. Hún mundi eftir atviki þar sem hún var nemi og það kom inn sjúklingur, sem líka var skizofren. Allir forðuðust konuna, gengu í boga í kringum hana. Hún sagði að hún sjálf hefði líklega gert það sama. Hún sagðist hafa lært að leggja nál þegar hún var nemi en ef hún færi á sómatíska deild þá þyrfti hún að læra það upp á nýtt. Og þannig virkar þetta, og það er yfirleitt þannig að þegar maður ræður sig í vinnu á nýrri deild með nýju "speciale" þá fær maður aðlögunartíma. Svo ég ætla að hætta að spá svona mikið í þetta og bara gera það sem mig langar mest....hvað sem það verður í vor
Mér fannst gott að heyra hennar skoðun, þar sem það eru skiptar skoðanir á þessu og fólk liggur ekkert á þeim við mig. Ég veit að allir vilja mér það besta og eru þessvegna að benda mér á.
Annars lítið að frétta. Ætla að skella mér út í rigninguna og rokið og fara í jólafataleiðangur með Ólöfu Ósk og Jóhannes...og kaupa perlur fyrir Jón Ingva listamann. Ef hann hefur blöð og liti, perlur og perluspjald þá er hann sæll. Rosalega kreatívur og mjög mikill listamaður, þessi elska.
Tenglar
Uppskriftir
- Uppskriftir frá vinum
- Möndlu-marens
- Döðluterta
- Mörtu-terta
- múslíkonfekt og súkkulaði
- Kókoskúlur
- Afmælisdöðluterta
- Súkkulaðikaka með mangókremi
- Súkkulaðikakan með jarðarberjakremi
- Appelsínukaka
- Jarðarberjaterta með súkkulaði
- Lífrænar súkkulaði og hnetusmákökur
- Kókossmákökur
- Gulrótarkaka með súkkulaði
- Gulrótar- og döðluterta
- Jólakaka Sollu
- Ostakaka Hemma&Birnu
- Epla- og valhnetubaka
- Súkkulaðikaka CaféSigrún
- Jónu-ís
- Grétu-brauðréttur
- Einn bragðsterkur
- Gulrótarmúffur
- Bananabrauð
- Kryddbrauð
- Jólabrauð Rakelar
- bollur a la LE
- Haframjölsbollur
- Örnu-brauð
- Eddu-brauð
- Stellu-brauð
- Pizzasnúðar og pylsuhorn á ísl.
- Pølsehorn
- Pizzasnegle
- Mini pizzur
- Margrétar-pizza
- ávaxtagrautur
- Mexíkönsk súpa
- Brúðkaupssúpa og bollur
- Kjúklingasalat Særúnar
- Pestó&FetaKjúlli
- Núðlukjúlli
- Kjúlli með íslenskum ostum
- Kjúkl. & eftirréttur Lilju
- Kjúllinn hans Gústa
- Paella frá Hrönn
- Lilju-fiskur
- Pabba-fiskur
- Karrýýsa með grænmeti
- Siggu-Báru-ömmu-fiskur
- Ásdísar-lasagne
- Lasagne
- Hakkréttur með piparosti
- Beikonbollur
- Einn fljótgerður
- Kjötbollur
- Ostabollur
- Lifrarbuff
- Svínakjöt Janne
- gúllas með kókosmjólk
- Svínalund
- Kartöflukrás
- Bakaðar kartöflur að hætti Hugarflugu
- Nachos
- Örnu-snakk
- Sinnepsósa Úrsúlu
- Uppskriftir í WORD
- Shit...gæster!!
- Súkkulaðikaka Maju
- Kanilterta
- Ein dísæt
- Frönsk súkkulaðiterta
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 178858
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er rétt. Þetta er eintóm sæla.
ég sjálf (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 13:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.