Leita í fréttum mbl.is

Góðan daginn

Jón Ingvi tók daginn snemma, að vanda.  Var vaknaður kl. 5:eitthvað og spurði hvort það væri ekki kominn morgun.  Mér tókst að telja honum trú um að það væri nótt, til kl. 6...en hann sofnaði ekki aftur.  Kl. 6 gat ég svo ekki haldið honum lengur og hleypti honum inn í Ólafar Óskar herbergi til að horfa á Pétur Pan (bíómyndina).  Ólöf Ósk var inn hjá mér í nótt (horfði á Eric Brockovich með mér).  Það er gott að hafa sjónvarp í öllum herbergjum (og ekki í stofunni), svo þegar Jóhannes vaknaði kl 7 þá fór hann að horfa á Pétur Pan (teiknimyndina) inni í sínu herbergi!!  Ég gat dormað inni í herbergi á milli þess sem krúttin mín komu og vantaði eitthvað.  Þegar Einar svo kom heim af næturvakt kl 8 þá skreið ég á fætur og leyfði honum að taka við að verma bælið Sleeping

MySpace images

Það er töluvert mikill munur á veðrinu á austfjörðum og vestfjörðum þessa dagana eins og þessar fréttir frá Súðavík og Reyðarfirði sýna.  En náttúruöflin láta ekki að sér hæða, hvor sem um er að ræða snjó eða rigningu.

 

MySpace images

Svo er það Kjalarnes og Kópavogur eftir hádegið.  Ætlum að leggja í´ann milli eitt og hálf tvö.  Koma við á opnu húsi í Gler í Bergvík (hjá Sigrúnu glerlistakonu), skoða muni, sjá glerblástur og drekka kaffi í góðra vina hópi.  Oooohhh, ég hlakka til. 
Svo er ferðinni heitið í Kópavog, í pönnsukaffi til Siggu ömmu.  Rúsínuafi (móðurafi Einars) hefði átt afmæli í dag, en hann lést í nóvember á síðasta ári, tæpum mánuði fyrir níræðisafmælið sitt.  Svo nú ætlar stórfjölskyldan að hittast.  Alltaf gaman að því þegar fjölskyldan hittist. 

Já, þetta er svona það sem ég hef að tjá mig um núna.  Er að spá í að fá mér morgunmat og kannski taka aðeins til í eldhúsinu...það er ekki sérlega fínt þar núna...EN ég hengdi upp seríur í eldhúsinu í gærkvöldi og það kemur svona líka ægilega vel út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband