Leita í fréttum mbl.is

Ekki er ráð...

...nema í tíma sé tekið.

Það hefur verið þannig undanfarin ár, að ég hef farið að spá í jólagjafirnar strax í janúar. Ég hef oftar en ekki búið til allflestar gjafirnar og þar sem það er stór hópur kringum okkur, þá veitir ekkert af tímanum. Núna er ég komin með hugmynd að allnokkrum gjöfum og ætla að sjálfsögðu ekki að ljóstra því upp hér þar sem margir hlutaðeigandi lesa bloggið Wink

Annað sem er að veltast um í mínu hugsandi höfði er fermingarundirbúningurinn. Ég tók mig til snemma á haustmánuðum og skannaði inn helling af myndum af prinsessunni. Að gera powerpointshow er eitt af því sem mátti gera í tíma og ég gerði það. Eins og sagt er; það er ekki eftir sem búið er Tounge

Svo nú er ég að spá í að vinna í öðru hvoru, þar sem ég er ein heima og hann Robbi okkar sér alveg um að ryksuga meðan ég sit og blogga, hreinasta snillllld!! Um daginn setti ég hann í gang og fór upp og horfði á Friends! Er hægt að hugsa sér það betra???!!!!

Annars get ég sagt ykkur að árið byrjaði yndislega og ég á ekki von á öðru en að það haldi áfram að vera yndislegt. 

Í lokin ætla ég að deila með ykkur einum gullmola:

"Ég voga mér að halda því fram að maður græðir meira á eigin mistökum en að gera það sem aðrir telja rétt."

- W. Somerset Maugham (úr Human Bondage)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er ekki frá því að þessi moli sé með þeim betri sem ég hef séð :)

Eigðu góðan dag. 

Hrönn Sigurðardóttir, 8.1.2009 kl. 12:37

2 Smámynd: JEG

Nkl það borgar sig að vera tímanlega því þá er eftirleikurinn svo easy.  Knús á þig essgan

JEG, 8.1.2009 kl. 12:59

3 identicon

Alveg í hreinskilni Sigrún þá veit ég ekki hvort ég gæti látið það eftir e-rju vélmenni að ryksuga heima hjá mér .. mér finnst það bara of gaman! hahah  Veit - pínu klikk! :o)   Hlökkum mikið til að hitta ykkur á morgun!!

Ragnhildur frænka (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 07:26

4 Smámynd: Renata

ó já, ég hef líka svona ryksugu, fékk Robert nafn og er besti vinur ...gólfsins daglega.

En með jólagjafir ...obobob...

Renata, 9.1.2009 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Hér skrifar

SigrúnSveitó
SigrúnSveitó

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband